Tropic Organic Acaí Powder
kr.2.690 – kr.19.990
LÍFRÆNT VOTTUÐ FROSTÞURRKUÐ ACAÍ BER FRÁ AMAZON REGNSKÓGINUM
Þessi dökkfjólubláu ber sem eiga rætur sínar að rekja til Amazon regnskógarins hafa náð miklum vinsældum síðustu ár. Berin eru þekkt fyrir háan andoxunarstuðul en acaí ber eru talin búa yfir 3x meira magni af andoxunarefnum en til dæmis bláber.
Duftið er fíngert og hentar vel í þeyting, chia graut eða jógúrtina fyrir aukin vítamín og steinefni. Það sem er í uppáhaldi hjá Tropic teyminu eru acaí skálar.
UPPSKRIFT AF ACAÍ SKÁL
1 bolli af blönduðum frosnum berjum
30 ml. plöntuprótein (valkvæmt)
1-2 dl. af plöntumjólk
2 tsk. Tropic acaí duft
1 frosinn banani
Öllu er blandað vel saman í blender eða matvinnsluvél. Þar sem mikið er frosið og áferðin verður ískennd að þá þarf blenderinn eða matvinnsluvélin að vera svolítið öflug. Stundum þarf að bæta við meiri vökva eða stoppa og hræra og byrja aftur, til að ná að blanda öllu almennilega saman 🥣
Fullkomið „toppings“ → fersk jarðaber, bananabitar, fersk bláber, hnetusmjör eða möndlusmjör, hempfræ, granóla og kakónibbur 😋
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Hagkaup: Garðabæ, Akureyri, Skeifunni, Smáralind, Spöng og Kringlu
Væntanlegt í Krónuna: Lindum, Bíldshöfða, Granda, Mosfellsbæ, Selfossi, Flatahrauni og Akureyri
Aðrar spennandi vörur
Fiji Feelin Conditioner Bar
Maldives Mood Conditioner Bar
Maldives Mood Shampoo Bar
Organic Green Spirulina 500g
Organic Matcha Powder 35g
ATH. ÞETTA ER 35g AF MATCHA EN EKKI 70g ÞÓ ÞAÐ STANDI Á PAKKNINGUNNI 🍵
Ertu að leita leiða til að fá betri fókus og jafnari orku yfir daginn? Þá ráðleggjum við þér að prófa þetta 100% náttúrulega og lífrænt vottaða matcha grænte duft. Duftið er fínmalað úr japönskum grænte laufum og inniheldur ríkulegt magn andoxunarefna, vítamína og steinefna til að styðja við almenna heilsu. Matcha er þekkt fyrir að vera ríkt af andoxunarefnum en inniheldur u.þ.b. 3x meira magn af því en grænt te. Duftið er án allra aukaefna og engum sætugjafa viðbætt. Þú notar einfaldlega 1 tsk. til að útbúa matcha latte eða te. Eins getur þú notað matcha í smoothie, baksturinn eða matargerð en duftið gefur fallegan daufan grænan lit.Fjölnota Rakvélar
Eye Roller
Cleansing Balm with Oat Oil + Vitamin E 55 ml.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
- Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
- Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.