Nánari lýsing á skrúbbnum
Kaffi og blóma andlitsskrúbburinn frá Upcircle er sérstaklega hannaður fyrir viðkvæma húð. Skrúbburinn inniheldur chamomile-, hækkunar-, patchouli og geranium kjarnaolíur.
Chamomile er þekkt fyrir bólguminnkandi eiginleika og getur einnig róað roða og ertingu í húð sem er gott fyrir þá sem glíma við húðvandamál á borð við rósroða, acne og psoriasis. Skrúbburinn inniheldur einnig jojoba olíu sem er rík af E og B vítamínum og afar rakagefandi.
Skrúbburinn hreinsar húðina vel ásamt því að fjarlægja dauðar húðfrumur og skilur húðina eftir mýkri, sléttari og endurnærðri. Sheasmjörið í skrúbbnum gefur húðinni verðskuldaðan raka.
Reused – Repurposed – Revolved: Skrúbburinn er unninn úr úrvals Arabica kaffibaunakorg sem hefði annars farið til spillis hjá virtum kaffihúsum í London, Uk.
Þessi skrúbbur hefur fengið birtingu í tímaritum á borð við The Times, Forbes, Glamour, The Sunday Times, Refinery 29, The Independent, Good Housekeeping og fleiri!
Afhverju að nota kaffiskrúbb?
- Kaffiskrúbbar eru fullir af andoxunarefnum og koffíni sem bæði hreinsar og eykur blóðflæði á því svæði sem borið er á
- Hentar sérstaklega vel þeim sem glíma við exem, acne, bólur og slitför
- Koffínn hefur náttúrulega bólgueyðandi eiginleika sem hjálpar þeim sem glíma við bólgur og roða
Notkunarleiðbeiningar
Hristið túpuna vel fyrir notkun og nuddið síðan skrúbbnum á rakt andlitið. Leyfið skrúbbnum að vera á í nokkrar mínútur og skolið hann síðan af með volgu vatni. Athugið að óhætt er að nota skrúbbinn nokkrum sinnum í viku ef þess er óskað.
Innihaldslýsing frá framleiðanda
Coffea Arabica Seed Powder, Sucrose, Butyrospermum Parkii (Shea) Butter, Cocos Nucifera (Coconut) Fruit Oil, Simmondsia Chinensis (Jojoba) Seed Oil, Prunus Armeniaca (Apricot) Kernel Oil, Rosa Canina (Rosehip) Fruit Oil, Citrus Aurantium Dulcis (Orange) Peel Oil, Pelargonium Graveolens (Geranium) Flower Oil, Rosmarinus Officinalis (Rosemary) Leaf Oil, Citrus Aurantium Bergamia (Bergamot) Fruit Oil, Pogostemom Cablin (Patchouli) Leaf Oil, Citrus Aurantium Amara (Bitter Orange) Leaf Oil, Anthemis Nobilis (Chamomile) Flower Oil, Benzyl Alcohol, Dehydroacetic Acid, Benzoic Acid, Sorbic Acid, *Limonene, *Citronellol, *Geraniol, *Linalool. *Natural constituent of essential oils listed.
Umbúðir
Skrúbburinn kemur í gler krukku með ál loki og er krukkan í pappa umbúðum. Allar umbúðir eru 100% endurvinnanlegar!