Rakvél | Charcoal, Rose Gold |
---|---|
Bambursti | Mjúkur // Blár, Miðlungs // Hvítur |
Combo | Fiji Feels, Hyams Heaven |
Earn 100 Reward Points for Product Review
Þessi vara veitir vildarpunkta. Þú sérð heildarfjölda punkta þegar þú bætir vöru í körfuna.
-20%
Previous product
Back to products
Barbados Skeið
kr.990 – kr.3.168
Next product
Miðlungs Bamburstar
kr.590 kr.413
Veglegi Pakkinn
kr.12.990 – kr.16.240
Veglegi pakkinn inniheldur eftirfarandi:
✔ Kókoshnetuskál
✔ Bambus sápudiskur
✔ Ferðahylki fyrir bambursta
✔ Tannþráður úr virkjuðum kolum
✔ Bambursti,hægt að velja um mjúkan eða miðlungs
✔ Pakka af stálrörum, koma í rósagull nema annað sé beðið um í athugasemd
✔ Sjampóstykki, hægt að velja um Fiji Feels eða Hyams Heaven
✔ Hárnæringarstykki, hægt að velja um Fiji Feels eða Hyams Heaven
✔ Fjölnota rakvél (+5 rakvélablöð), hægt að velja um Charcoal eða Rósagull
Ef óskað er eftir öðruvísi lit á rakvél eða öðruvísi hársápu combo þá getum við með mestum líkindum græjað það. Skrifið endilega bara athugasemd við pöntunina!
Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru
Nánari upplýsingar
Umsagnir (0)
Ritaðu fyrstu umsögnina um “Veglegi Pakkinn” Hætta við svar
Aðrar spennandi vörur
Barbados Skeið
kr.990 – kr.3.168
Dökk viðarskeið sem passar fullkomlega vel við kókoshnetuskálina og gefur þér gott efni í Instagram mynd!
Gaffall
✔ Kókoshnetugaffall búinn til úr kókospálma
✔ Pússaður, hreinsaður og síðan kláraður með lífrænni kókosolíu
✔ Hver og einn með sinn eigin sjarma
✔ Passar fullkomlega við kókoshnetuskálina
✔ Ekki skal setja gaffalinn í uppþvottavél





Heimagerðar Bómullarskífur 5 stk.
kr.1.200
Það er alveg tilvalið að nota fjölnota bómullarskífur í staðin fyrir einnota þega maður er til dæmis að þrífa á sér andlitið eða annað sem margir gera á hverjum degi. Bómullarskífurnar frá Tropic mega fara í vél á 60°C og ef það festist eins og maskari eða annað í skífunum þá er hægt að nudda þær vel með mildri sápu. Skífurnar eru einstaklega fallegar og heimagerðar hér á Íslandi en garnið er frá Sandnes Garn í Noregi.
Mjúkir bamburstar x4
Mjúkir Tropic tannburstar eru framleiddir með það í huga að maður nái góðri burstun án þess að meiða viðkvæmt tannhold. Tannburstarnir eru með bambus skafti og mjúkum hárum úr bambus efni og sáralitlu nylon.
Afhverju ætti maður að skipta yfir í bambus tannbursta? Tannlæknar mæla með því að fólk skipti út tannburstanum sínum á u.þ.b 3 mánaða fresti og er því betra fyrir umhverfið að nota tannbursta sem búinn er til úr niðurbrjótanlegu efni frekar en plasti sem tekur hátt upp í 1000 ár að brotna niður. Eftir öll þessi ár sem það tekur plastið að brotna niður, þá hverfur plastið aldrei heldur verður að microplastic einingum sem lifa áfram í náttúrunni og menga sjóinn okkar og umhverfi. Bambus er líka þekkt fyrir að vera náttúrulega antimicrobial. Hvað geri ég við tannburstann eftir hans lífitíma? Skaftið setur þú í lífrænu tunnuna og mun bambusinn brotna þar niður á næstu 6 mánuðum. Við mælum með því að þú takir hárin úr og hendir þeim í almennt sorp því þetta örlitla nylon sem er í hárunum brotnar ekki niður í lífrænu tunnunni. Enn höfum við ekki fundið neitt sem getur komið í stað nylon í hárunum sem getur þrifið tennurnar eins vel og maður vill. Þess vegna notum við enn nylon en vonandi finnum við nýja lausn von bráðar!Umbúðirnar eru gerðar úr einungis 100% endurunnum pappír og engar áhyggjur, þú færð tannburstana ekki pakkaða inn í neitt plast :)
Miðlungs Bamburstar
Miðlungs bamburstarnir frá Tropic eru með bambus skafti og miðlungs stífum hárum búin til úr bambus efni og nylon. Umbúðirnar eru gerðar úr 100% endurunnum pappír. Afhverju ætti maður að skipta yfir í bambus tannbursta? Tannlæknar mæla með því að fólk skipti út tannburstanum sínum á u.þ.b 3 mánaða fresti og því getur skipt sköpum fyrir umhverfið að nota tannbursta sem búinn er til úr náttúrulegu efni sem brotnar niður í náttúrunni frekar en tannbursta sem er búinn til úr plasti og getur tekið allt að þúsund ár að brotna niður og jafnvel eftir þann tíma lifa skaðleg efni úr plastinu áfram í enn lengri tíma í umhverfinu.
Bambus er líka þekkt fyrir þann eiginleika að bakteríur þrífast ekki vel í því: “Another advantage of bamboo is that it is naturally antimicrobial. There’s a reason cutting boards and kitchen utensils are made out of wood and bamboo. Unlike plastic, properties inside the bamboo kill bacteria that penetrate it’s surface, providing long-lasting protection against harmful bacteria.”
Ef þú kýst heldur mjúk hár í tannburstun þá mælum við með Mjúkur Bambus Tannbursti.
Fjölnota Ferðamál úr Rice Husk
Ekki vera ein eða einn af þeim sem nota enn einnota kaffimál ?♀️ hafðu eitt fjölnota mál meðferðis í veskinu eða útí bíl sem þú getur alltaf gripið í þegar kaffi, kakó eða te þorstinn vaknar.
Það er alltaf gaman að gera sínar daglegu venjur umhverfisvænni og ekki síður nauðsynlegt.
Þessi ferðamál eru gerð úr rice husk (the hard protecting coverings of grains of rice) en það er niðurbrjótanlegt og umhverfisvænt efni. Málið er tvöfalt og getur því haldið drykknum þínum heitum í allt að 90 mínútur.
Non toxic - BPA free - Dishwasher safe - Leak Proof Lid
Saint Lucia Skál
kr.2.290 – kr.7.328
Kókoshnetuskálin er framleidd af náttúrunni og handverkuð úr ekta kókoshnetuskel sem er pússuð vel og borin með kókosolíu. Þessar skálar eru 100% framleiddar af náttúrunni og því hver og ein skál með sína eigin lögun og lit og fallegar á sinn hátt. Skálarnar eru auðveldar að þrífa en ekki skal setja þær í örbylgjuofn né uppþvottavél.
Á ári hverju uppskerum við billjónir af kókoshnetum fyrir safann, olíuna og kókosinn sem hnetan hefur að geyma. Eftir að búið er að tæma hneturnar eru skeljunum í 99% tilvika fargað eða þær brendar sem sleppur skaðlegum gróðurhúsalofttegunum út í andrúmsloftið. Með þessum skálum erum við að endurnýta skeljarnar á virkilega fallegan og skemmtilegan máta!
Saint Lucia skálin er ögn stærri en okkar venjulega kókoshnetuskál.
Kókoshnetuskálin er tilvalin fyrir salatið, smoothiebowl, guacamole, pastað, nammið, konfektið eða hvað svo sem manni dettur í hug. Einstaklega falleg gjöf líka!
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.