Snuðin frá Hevea eru ekki bara góð fyrir barnið heldur líka umhverfið en þau eru niðurbrjótanleg. Snuðin eru mjúk og sveigjanleg þannig það kemur ekki snuddufar á barnið. Snuðin eru framleidd í mannúðlegri og umhverfisvænni framleiðslu.
ATH. Mikilvægt er að kaupa snuð sem hæfir aldri barnsins þar sem tútturnar eru misjafnar. Passa þarf að sjóða snuðið áður en það er notað í fyrsta skipti. Í hvert sinn sem á að nota snuð á að toga í túttuna til að vera viss um að hún sé í lagi og ef það eru komin bitför þá á að henda því strax. Það á ekki að nota snuð lengur en í 1-2 mánuði – Neytendastofa
Hægt er að fá snuðin send sem almennt bréf (1-2stk) á aðeins 350kr.