VIÐ EIGUM ÞVÍ MIÐUR BARA 25 GR. EINS OG ER EN 750 GR. PAKKNINGAR ERU VÆNTANLEGAR.
Virkilega bragðgott mangó prótein sem inniheldur auðmeltanlegan próteingjafa eða baunaprótein. Þú ættir því ekki að upplifa uppþembu eins og gerist stundum með mysu- og sojaprótein. Ef þú vilt fyrst prófa, þá seljum við þetta prótein í 25 gr. pokum sem samsvarar einum skammti
Próteinið inniheldur allar nauðsynlegu amínósýrurnar og er glútenlaust, 100% vegan og án gervisætu.
Í HVERJUM SKAMMTI: Kaloríur: 99 Prótein: 19,3 gr. Kolvetni: 2,3 gr. Fita: 2 gr.
Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.
Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru
8 AF HVERJUM 10 BORÐA EKKI NÆGILEGA MIKIÐ AF GRÆNFÆÐI, ÞESS VEGNA HÖNNUÐU YOUR SUPER ÞESSA MÖGNUÐU VÖRU
INNIHALDSEFNI: Hveitigras*, Bygggras*, Baobab*, Moringa*, Chlorella* og Spirulína* (*lífrænt)
Super Green auðveldar þér að efla inntöku á næringarríku grænfæði en þú setur einfaldlega eina teskeið í vatn, jógúrt, þeytinginn, safa eða hvað svo sem þig girnist fyrir aukin næringarefni og heilsufarslega ávinninga.
Super Green inniheldur fjölbreytt magn vítamína og steinefna
Super Green inniheldur einnig trefjar, prótein & andoxunarefni
Blandan var hönnuð af reyndum næringarfræðingum til að tryggja bestu samsetningu út frá virkni hráefna.
Byrjaðu daginn á einföldum grænum þeyting, eins og þessum hér.AÐRIR SÖLUSTAÐIR:Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind og Kringlu.
Vegan Búðin Faxafeni 14
Miðlungs bamburstarnir frá Tropic eru með bambus skafti og miðlungs stífum hárum búin til úr bambus efni og nylon. Umbúðirnar eru gerðar úr 100% endurunnum pappír. Afhverju ætti maður að skipta yfir í bambus tannbursta? Tannlæknar mæla með því að fólk skipti út tannburstanum sínum á u.þ.b 3 mánaða fresti og því getur skipt sköpum fyrir umhverfið að nota tannbursta sem búinn er til úr náttúrulegu efni sem brotnar niður í náttúrunni frekar en tannbursta sem er búinn til úr plasti og getur tekið allt að þúsund ár að brotna niður og jafnvel eftir þann tíma lifa skaðleg efni úr plastinu áfram í enn lengri tíma í umhverfinu.
Bambus er líka þekkt fyrir þann eiginleika að bakteríur þrífast ekki vel í því: “Another advantage of bamboo is that it is naturally antimicrobial. There’s a reason cutting boards and kitchen utensils are made out of wood and bamboo. Unlike plastic, properties inside the bamboo kill bacteria that penetrate it’s surface, providing long-lasting protection against harmful bacteria.”
Ef þú kýst heldur mjúk hár í tannburstun þá mælum við með Mjúkur Bambus Tannbursti.
ÖRLÍTIÐ BREYTT & BÆTT FORMÚLA, NÝJAR VÖRUMYNDIR Í VINNSLU!
Mumbai Mood sjampóstykkið okkar býr yfir vandaðri samsetningu af náttúrulegum hráefnum sem gerir gæfumun og skilur hárið eftir líflegt og með unaðslegum keim af mangó og ananas.
Hársápustykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben. Hársápustykkin eru einnig handgerð í USA! Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Bleikur drekaávöxtur er suðrænn ávöxtur sem er næringarríkur og inniheldur til dæmis trefja, C-vítamín, beta-karótín og betalain en betalain útskýrir þann fallega lit sem duftið býr yfir. Ekki bara veitir duftið kroppnum heilsufarslega ávinninga heldur gerir máltíðina bleika og girnilega!
✓ Engin aukaefni né neinum óþarfa viðbætt
✓ Einungis 100% náttúrulegt duft úr bleikum drekaávexti
✓ Gefur fallegan bleikan lit sem hægt er að nota í bakstur eða matargerð
✓ Hálf til 2 teskeiðar fyrir fallegan lit og aukin næringarefni
✓ Við seljum Pink Pitaya duft einnig í 500 gr. pokum!
Hvað með að gera einhyrninga latte sjá hér eða þú getur jafnvel gert bleikar bollakökur sem kæmu til með að slá í gegn í næstu veislu eins og sjá má hér.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.
Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Smáralind og Kringlu
INNIHALDSEFNI: Matcha*, Moringa*, Maca*, Hveitigras* & Bygggras* (*lífrænt)
Inniheldur 23 mg. af koffíni í hverjum skammti þökk sé matcha (1 tsk.)
Blandan var hönnuð af reyndum næringarfræðingum til að tryggja bestu samsetningu út frá virkni hráefna.
Blandaðu þér dýrindis matcha bolla með því að leysa upp 1 tsk. af Power Matcha í botnfylli af vatni og toppaðu síðan með flóaðri barista (plöntu)mjólk. Sætugjafi er síðan valkvæmur.
Við kaup á þessari vöru færðu niðurhalanlega e-bók með fróðleik og uppskriftum!AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind og Kringlunni.
Lyfja• Garðabæ, Lágmúla, Smáratorgi, Smáralind, Egilsstöðum, Reykjanesbæ og Árbæ
ACTIVATED CHARCOAL ÚR BAMBUS SEM ER HITAÐUR VIÐ HÁAN HITA OG HLEYPT AÐ SÚREFNI TIL AÐ MYNDA ÞETTA FÍNGERÐA SVARTA DUFT.
Activated Charcoal er þekkt fyrir hreinsunar eiginleika en það getur dregið í sig og bundið niður skaðleg efni í líkamanum.
Lengi verið notað fyrir náttúrulega hreinsun, t.d. eftir drykkju eða óhollan mat.
1 tsk. af Activated Charcoal í vatn með sítrónu- og engifersafa fyrir veglegt "pick me up"
Virkar sem náttúrulegur svartur matarlitur í ofurskálar, bakstur og matargerð
Margir hafa notað activated charcoal í DIY andlitsmaska og tannhvítun
Hvað með að fara út fyrir þetta hefðbundna og gera svartar bollakökur eins og þessar hér.
Það er síðan ákveðin tískubylgja í gangi þar sem fólk er mikið að baka svart brauð! Þú getur séð uppskrift af því til dæmis hér.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:Krónan: Flatahrauni, Bíldshöfða, Skeifunni, Granda, Lindum, Mosfellsbæ, Akureyri og Selfossi
Athugið að ekki ráðlagt að innbyrða lyf nema nokkrum klst. fyrir eða eftir inntöku á Activated Charcoal svo það hafi ekki áhrif á virkni lyfsins. Þessi vara flokkast sem fæðubótarefni og er ráðlagður dagskammtur ein teskeið eða 5 gr. Ekki nota meira en ráðlagt er. Fæðubótarefni getur ekki komið í veg fyrir fjölbreytta fæðu og heilbrigðan lífstíl. Ef þú ert barnshafandi eða með barn á brjósti er best að velja fæðubótarefni í samráði við þinn lækni.