INNIHALDSEFNI: Túrmerik*, ashwagandha*, engifer*, kanill*, lucuma* og kókosmjólk* (*lífrænt)
Golden Mellow er fullkomið fyrir dýrindis túrmerik bolla sem inniheldur ayurveda jurtir og aðlögunarefni. Þú setur einfaldlega 1. tsk. í heita eða kalda (plöntu)mjólk og síðan er sætugjafi valkvæmur. Þú getur einnig sett Golden Mellow í jógúrt, graut, þeyting eða í vatn.
FRÆÐIN: Ashwagandha
(Withania Somnifera) er talin ein af mikilvægustu jurtunum í Ayurveda (
the traditional system of medicine in India) en hún hlýtur þann titil fyrir að vera kennd við slökun og svefngæði. Somnifera þýðir einmitt á latnesku "sleep-inducing".
Virka efnið í svörtum pipar (piperine) er talið geta aukið upptöku andoxunarefna í líkamanum en þau lífrænu hráefni sem eru í Golden Mellow eru einmitt rík af andoxunarefnum! Við hvetjum þig því til að bæta við smá svörtum pipar út í drykkinn eða það sem þú matreiðir með Golden Mellow.
Við kaup á þessari vöru hefur þú kost á að hlaða niður e-bók með fróðleik og dýrindis uppskriftum til að styðjast við.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.
Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind, Eiðistorg og Kringlu
Lyfja • Garðabæ, Lágmúla, Smáratorgi, Smáralind, Egilsstöðum, Reykjanesbæ og Árbæ
Vegan Búðin Faxafeni 14
- ATH. ef þú ert ófrísk er best að neyta vörunnar í samráði við lækni.
