Mjólkurflóarinn frá Your Super er búinn til úr bambus en hann er tilvalinn til að flóa mjólkina fyrir kakóið eða latte bollann. Flóarinn er auðveldur í notkun og mjólkin verður létt og freiðandi. Er ekki skemmtilegt að dúllast smá aukalega til að gera bollann sinn himneskan? Það held ég nú ?
-50%
Your Super Mjólkurflóari
kr.2.490 kr.1.245
Flóaðu mjólkina í einum grænum með mjólkurflóaranum frá Your Super!
- Búinn til úr bambus og FDA samþykktu BPA fríu plasti
- Fullkominn fyrir kakó-ið eða latte bollann
- Best að handþvo með heitu vatni
- Gengur fyrir batteríum
Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru
Á lager
Vörunúmer:
YSA6
Flokkar: ALLAR VÖRUR, AUKAHLUTIR, YOUR SUPER
Lýsing
Aðrar spennandi vörur
Magic Mushroom Organic 150 gr.
kr.5.090
INNIHALDSEFNI: Cocoa*, Ashwagandha*, Reishi*, Lucuma* og Kanill* (*lífrænt) -> ATH. það er því miður ekki lengur chaga í vörunni 🤎
Magic Mushroom eða streitubaninn eins og við köllum hann, inniheldur ayurveda jurtir og aðlögunarefni sem geta hjálpað kroppnum að tækla streitu, bætt einbeitingu og stuðlað að jafnvægi. Cocoa inniheldur síðan mikið magn flavonoids sem getur örvað framleiðslu á ákveðnum boðefnum í heilanum og sleppt út gleðihormónum. Þessi athöfn getur haft bætt skap í för með sér og er því cocoa oft kallað "mood booster".
- Ashwagandha þýðir á latnesku "sleep-inducing" og hefur verið kennt við bætt svefngæði.
- ATH. ef þú ert ófrísk er best að neyta vörunnar í samráði við lækni en sumir telja ashwagandha ekki vera öruggt á meðgöngu.
Mjúkir Bamburstar
Cancún Caress Hárnæringarstykki
Cancún Caress hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Cancún Caress hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og fær mildan keim af kókos og límónu
Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS! Hárnæringarstykkin eru handgerð í USA.
Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Skinny Protein Organic 400 gr.
kr.5.990
INNIHALDSEFNI: Hemp Prótein*, Baunaprótein*, Spirulína*, Alfalfa* og Moringa* (*lífrænt)
Skinny Protein er 62% hágæða prótein sem er auðvelt til upptöku í líkamanum og 38% öflugar grænfæður sem innihalda mikilvæg vítamín og steinefni.
- Skinny Protein býr svo vel að innihalda allar nauðsynlegu amínósýrurnar.
Super Green Organic 150 gr.
kr.5.090
8 AF HVERJUM 10 BORÐA EKKI NÆGILEGA MIKIÐ AF GRÆNFÆÐI, ÞESS VEGNA HÖNNUÐU YOUR SUPER ÞESSA MÖGNUÐU VÖRU
INNIHALDSEFNI: Hveitigras*, Bygggras*, Baobab*, Moringa*, Chlorella* og Spirulína* (*lífrænt) Super Green auðveldar þér að efla inntöku á næringarríku grænfæði en þú setur einfaldlega eina teskeið í vatn, jógúrt, þeytinginn, safa eða hvað svo sem þig girnist fyrir aukin næringarefni og heilsufarslega ávinninga.- Super Green inniheldur fjölbreytt magn vítamína og steinefna
- Super Green inniheldur einnig trefjar, prótein & andoxunarefni
Hreinsikrem með Apríkósusteinum 50 ml.
kr.4.890
Nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu.
Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð.
Við mælum með þessu hreinsikremi af heilum hug en það er framleitt á sjálfbæran máta í UK með náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
- Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
- Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.
Andlitsmaski með Kaolin Leir 60 ml.
kr.4.890
Mildur en árangursríkur andlitsmaski sem virkar á flestar húðtýpur
Dregur úr bólum og fílapennslum ásamt því að vinna gegn útbrotum
Maskinn gefur húðinni mýkt og gljáa og skilur hana eftir í jafnvægi
Kaolin leir er þekktur fyrir að draga í sig óþarfa olíur og óhreinindi
Unninn úr endurnýttu fínmöluðu púðri úr ólífusteinum
Framleiddur á Englandi á siðferðislegan og sjálfbæran hátt
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af maskanum fæst þar líka