Sýna 61–72 af 117 niðurstöður

Andlitsmaski með Kaolin Leir 60 ml.

kr.3.912
Mildur en árangursríkur andlitsmaski sem virkar á flestar húðtýpur Dregur úr bólum og fílapennslum ásamt því að vinna gegn útbrotum Maskinn gefur húðinni mýkt og gljáa og skilur hana eftir í jafnvægi Kaolin leir er þekktur fyrir að draga í sig óþarfa olíur og óhreinindi Unninn úr endurnýttu fínmöluðu púðri úr ólífusteinum Framleiddur á Englandi á siðferðislegan og sjálfbæran hátt AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af maskanum fæst þar líka

Mumbai Mood Hárnæringarstykki

kr.1.393
Mumbai Mood hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Mumbai Mood hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir mangó og ananas keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd! Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS! Hárnæringarstykkin eru handgerð í USA. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

Energy Cookie Organic with Cacao and White Choc 50 g.

kr.502
Þessi orkugefandi hrákaka er fullkomið "guilt-free" snarl til að leyfa sér í amstri dagsins. Kakan er mjúk og virkilega bragðgóð!
  • 100% plöntumiðað
  • Lífrænt vottað
  • Handgert í Tékklandi
  • Hráfæði (unnið undir 42° C)
  • Án pálmolíu og án hertar fitu
  • Inniheldur engann unninn sykur
Allar hnetur og möndlur hjá My Raw Joy eru virkjaðar sem þýðir að þær eru látnar liggja í vatni í 15 klst. Þannig eykst næringargildið þeirra og þær verða auðmeltanlegri. 

Moon Goo Svitalyktareyðir

kr.2.152

ÁHRIFARÍKUR OG NÁTTÚRULEGUR SVITALYKTAREYÐIR SEM HENTAR FLESTUM 😊

Hressandi og upplífgandi mildur ilmur af lavander og sítrónugrasið frá ilmkjarnaolíum og hefur svitalyktareyðirinn rjómakennda áferð sem auðvelt er að dreifa. Hann er líka án allra óæskilegra efna á borð við ál, parabena, alkóhóls og jarðolíu. MOON GOO INNIHELDUR HINSVEGAR CERA ALBA EÐA BÝFLUGNAVAX OG ER ÞVÍ EIN AF ÞEIM FÁU VÖRUM SEM ER EKKI 100% VEGAN HJÁ OKKUR.     

Butterfly Pea duft

kr.2.093
Butterfly Pea eða fiðrildablómate býr yfir fallegum bláum lit sem er skemmtilegt að nota í ýmsa matargerð en í snertingu við sítrus verður duftið fjólublátt. Þessi heillandi eiginleiki hefur gert duftið vinsælt á meðal barþjóna, bakara og matreiðslumanna víðs vegar í heiminum. Butterfly Pea er ríkt af andoxunarefnum en andoxunarefni eru talin geta styrkt ónæmiskerfið. Butterfly Pea hefur líka verið tengt við bætta hár- og húðheilsu sem og betra jafnvægi í blóðsykri og þyngdarstjórnun. Butterfly Pea er hægt að bæta auðveldlega í mataræðið með því að blanda því í ofurskálar, smoothie, jógúrt, límonaði eða sem te eins og er algengast! AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri. Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Smáralind, Spöng og Kringlunni Fyrirtæki geta verslað 500 gr. poka í heildsölu og sendist fyrirspurn á [email protected]   

OrangeFit Mangó Prótein – 25 gr.

kr.245
VIÐ EIGUM ÞVÍ MIÐUR BARA 25 GR. EINS OG ER EN 750 GR. PAKKNINGAR ERU VÆNTANLEGAR. Virkilega bragðgott mangó prótein sem inniheldur auðmeltanlegan próteingjafa eða baunaprótein. Þú ættir því ekki að upplifa uppþembu eins og gerist stundum með mysu- og sojaprótein. Ef þú vilt fyrst prófa, þá seljum við þetta prótein í 25 gr. pokum sem samsvarar einum skammti Próteinið inniheldur allar nauðsynlegu amínósýrurnar og er glútenlaust, 100% vegan og án gervisætu. Í HVERJUM SKAMMTI: Kaloríur: 99 Prótein: 19,3 gr. Kolvetni: 2,3 gr. Fita: 2 gr.

Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Hazelnut Choco Marbles Organic 50 g.

kr.690
Hollar og góðar súkkulaðihúðaðar virkjaðar heslihnetur sem frábært "guilt-free" snarl yfir daginn!
  • 100% plöntumiðað
  • Lífrænt vottað
  • Handgert í Tékklandi
  • Hráfæði (unnið undir 42° C)
  • Án pálmolíu og án hertar fitu
  • Inniheldur engann unninn sykur
Allar hnetur og möndlur hjá My Raw Joy eru virkjaðar sem þýðir að þær eru látnar liggja í vatni í 15 klst. Þannig eykst næringargildið þeirra og þær verða auðmeltanlegri. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Skeifunni og Garðabæ

Rauðrófuduft – 50 gr.

kr.1.992

FÁÐU HEILSUFARSLEGU ÁVINNINGA RAUÐRÓFUNNAR MEÐ ÞESSU NÁTTÚRULEGA RAUÐRÓFUDUFTI

Rauðrófa er afar næringarrík og inniheldur mikilvæg næringarefni á borð við trefjar, fólat (B9 vítamín), mangan, járn, C-vítamín og kalíum. Rauðrófan er einnig þekkt fyrir að innihelda lítið af hitaeiningum. Mikið af íþróttafólki innbyrðir rauðrófu fyrir aukinn árangur en talið er að rauðrófan geti aukið úthald og súrefnisupptöku í blóði. ✓ Í duftinu eru engin aukaefni né sætugjafar ✓ Einungis 100% náttúrulegt duft úr rauðrófu ✓ Gefur fallegan rauðan lit án þess að allt eldhúsið verði rautt ✓ Fullkomið í jógúrt, smoothie, bakstur og bara nefndu það!   

Space Cat Svitalyktareyðir

kr.2.152
  • Byltingarkenndur og náttúrulegur svitalyktareyðir með góðgerlum
  • Styðja við góðar bakteríur og stjórna þeim sem lykta illa
  • Hentar frábærlega fyrir alla (viðkvæma líka)
  • Hentar fullorðnum sem og unglingum
  • Ilmar af ferskri vanillu og myntu
  • Án: Bicorbonate of soda (sóda), áls, alkohóls, petrolium vara, parabena og dýraafurða þannig 100% VEGAN.
     

Gua Sha

kr.2.392
Gua Sha frá UpCircle er hannað til að minnka spennu í andlitsvöðva og draga úr bólgum. "Gua Sha" er aldagömul kínversk hefð sem hefur verið notuð í lækningaskyni þar sem mjúkur steinn er nuddaður með húðinni til að minnka spennu. Einstaka lögun steinsins gerir þér kleift að móta andlitið ásamt því að hjálpa til við sogæðarennsli sem getur dregið úr þrota og örva blóðflæði fyrir heilbrigðan ljóma í andliti. Þú getur svolítið stjórnað ákafanum á nuddinu, allt frá léttum strokum til ögn dýpri þrýstings. Þú getur einnig notað brúnina á steininum til að skafa varlega húðina sem er talið geta hjálpað endurnýjunarferli húðfrumna. Bónus ráð: notaðu andlitsserumið frá UpCircle sem nuddolíu!
“With the cost of living increasing, indulging in self-care is more important than ever for our mental health. One of the best things about using a gua sha stone or eye roller to massage yourself is that you can easily reap the benefits without leaving your own home. It’s a pleasurable and short addition to your established skincare routine. There’s nothing complicated about it and you can do a facial massage yourself, saving lots of money compared with having a facial at a salon". - Anna Brightman, co founder UpCircle Beauty

OrangeFit Súkkulaðiprótein

kr.245kr.4.392
Virkilega bragðgott súkkulaði prótein sem inniheldur auðmeltanlegan próteingjafa eða baunaprótein. Þú ættir því ekki að upplifa uppþembu eins og gerist stundum með mysu- og sojaprótein. Ef þú vilt fyrst prófa, þá seljum við þetta prótein í 25 gr. pokum sem samsvarar einum skammti Próteinið inniheldur allar nauðsynlegu amínósýrurnar og er glútenlaust, 100% vegan og án gervisætu. Í HVERJUM SKAMMTI: Kaloríur: 99 Prótein: 19,5 gr. Kolvetni: 0,8 gr. Fita: 2,2 gr. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup  Skeifunni, Garðabæ, Smáralind og Kringlunni. Vegan Búðin Faxafeni 14
-- Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Augnrúlla

kr.1.592
"Using this is my favourite new selfcare ritual, I find it so relaxing!" Augnrúlla sem hjálpar þér að fríska upp á, endurnæra og róa svæðið undir augunum. Þú einfaldlega nuddar varlega með augnkremi eða serumi. Með notkun augnrúllu hafa margir upplifað minni andlitsspennu, betri húðáferð og aukið blóðflæði í kringum augun sem hefur haft bjartan ljóma í för með sér! Bónus: geymdu augnrúlluna í kæli fyrir notkun!