Sýna 28–36 af 67 niðurstöður

Cashew Spread Organic 200 g.

kr.1.352
DÝRINDIS KASJÚHNETUSMJÖR SEM ER 100% LÍFRÆNT & INNIHELDUR AÐEINS VIRKJAÐAR HNETUR Þetta kasjúhnetusmjör býr yfir dúnmjúkri áferð og er virkilega bragðgott eitt og sér en einnig afar hentugt í allskonar uppskriftir sem og í þeyting og sem topping. Allar hnetur og möndlur hjá My Raw Joy eru virkjaðar sem þýðir að þær eru látnar liggja í vatni í 15 klst. sem eykur næringargildið þeirra og þær verða auðmeltanlegri. Þessi vara er handgerð af yndislegu fjölskyldufyrirtæki í Tékklandi og flokkast varan sem hráfæði þar sem hún er unnin undir 42° C. Allar vörur frá My Raw Joy eru ávallt án pálmolíu og án hertar fitu. Ásamt því innihalda vörur frá My Raw Joy aldrei unninn sykur. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Smáralind og Kringlu

Raw Plain Chocolate Organic 90 g.

kr.587
Dýrindis hrátt 67% súkkulaði sem býr þó yfir rjómakenndri áferð og er 100% lífrænt og vegan Þetta súkkulaði er handgert af ást hjá fjölskyldufyrirtæki í Tékklandi þar sem aðeins eru notuð hágæða hráefni á borð við hrátt perúskt cacao dauft og lífrænan kókospálmasykur. Það sem einkennir hrátt súkkulaði er að það er matreitt undir 42°C til þess að varðveita næringarefnin sem eru til staðar. Þú finnur engin óþarfa aukaefni í súkkulaðinu frá My Raw Joy þar sem þau leggja áherslu á heiðarleika og gæði

Your Super Hristibrúsi

kr.1.990
Taktu ofurfæðurnar með þér á æfingu í þessum Your Super brúsa! Ath. til í takmörkuðu upplagi.
  • 500 ml. brúsi með 2 hólfum til að geyma prótein & ofurfæði
  • Inniheldur hristi bolta til að gera sjeik á staðnum
  • Auðvelt að þrífa en það má setja hann í uppþvottavél
  • Fullkomið fyrir/eftir æfingu eða þegar þú ert á ferðinni!
  • Brúsinn er úr BPA fríu plasti

OrangeFit Jarðaberjaprótein – 25 gr.

kr.245kr.4.392
Virkilega bragðgott jarðaberjaprótein sem inniheldur auðmeltanlegan próteingjafa eða baunaprótein. Þú ættir því ekki að upplifa uppþembu eins og gerist stundum með mysu- og sojaprótein. Ef þú vilt fyrst prófa, þá seljum við þetta prótein í 25 gr. pokum sem samsvarar einum skammti Próteinið inniheldur allar nauðsynlegu amínósýrurnar og er glútenlaust, 100% vegan og án gervisætu. Í HVERJUM SKAMMTI: Kaloríur: 99 Prótein: 19,4 gr. Kolvetni: 0,8 gr. Fita: 2,2 gr.

Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Choco Bar Organic with Banana 30 g.

kr.345
Þetta 100% vegan og lífræna súkkulaðistykki inniheldur bananafyllingu sem enginn súkkulaði unnandi má láta framhjá sér fara! Súkkulaðið er handgert af ást hjá fjölskyldufyrirtæki í Tékklandi þar sem aðeins eru notuð hágæða hráefni á borð við hrátt perúskt cacao dauft og lífrænan kókospálmasykur. Það sem einkennir hrátt súkkulaði er að það er matreitt undir 42°C til þess að varðveita næringarefnin sem eru til staðar. Þú finnur engin óþarfa aukaefni í súkkulaðinu frá My Raw Joy þar sem þau leggja áherslu á heiðarleika og gæði

Acaí duft 60 gr.

kr.1.752

HREINT ACAÍ DUFT FRÁ AMAZON REGNSKÓGINUM

Settu hálfa til eina teskeið í þeytinginn, jógúrtið, ofurskálina eða hvað sem þig girnist fyrir fallegan fjólubláan lit þökk sé anthocyanins. Anthocyanins vinna sem andoxunarefni í líkamanum en acaí ber eru vel auðug af andoxunarefnum.
Nafnið á þessum berjum er jafnvel erfiðara að bera fram en GiF. (Er það JIFF eða G.I.F??!!) Hér er smá kennsla þess nefnis:
PS. Ýttu hér til að hlusta! AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri. Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind og Kringlu.

Omega3 60 hylki

kr.2.232
Omega-3 fitusýrur (DHA og EPA) eru mikilvægar fyrir  almenna líkamsstarfsemi en allra helst fyrir hjartað, æðakerfi, sjón og heilastarfsemi. OrangeFit omega-3 hylkin eru 100% plöntumiðuð og náttúruleg en þau eru framleidd úr olíu frá þörungum. Olían er vandlega hreinsuð í framleiðsluferli og því án allrar sjómengunar sem og þungmálma. OrangeFit notar örþörunginn Schizochytrium í Omega-3 olíuna sína en þessi þörungur er sneisafullur af Omega-3 fitusýrum, bæði DHA og EPA í hlutföllunum 2:1. Tvö OrangeFit omega-3 hylki innihalda 300 mg DHA og 150 mg EPA sem er ráðlagður dagskammtur.
ATH. allar vörur frá OrangeFit eru alltaf með hollenskum umbúðum og þar af leiðandi fáum við enska límmiða yfir þær vörur sem þeir senda til Íslands. Á síðustu sendingu var óvart ekki uppfært BEST BEFORE dagsetninguna en undir límmiðanum sést rétt dagsetning sem er 01. október 2025.

Almond Choco Marbles Organic 50 g.

kr.552
Hollar og góðar súkkulaðihúðaðar virkjaðar möndlur sem frábært "guilt-free" snarl yfir daginn!
  • 100% plöntumiðað
  • Lífrænt vottað
  • Handgert í Tékklandi
  • Hráfæði (unnið undir 42° C)
  • Án pálmolíu og án hertar fitu
  • Inniheldur engann unninn sykur
Allar hnetur og möndlur hjá My Raw Joy eru virkjaðar sem þýðir að þær eru látnar liggja í vatni í 15 klst. Þannig eykst næringargildið þeirra og þær verða auðmeltanlegri.  AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Skeifunni og Garðabæ

Góðgerlar 60 hylki

kr.2.632
Þessir vegan góðgerlar (já, hylkin eru líka vegan!), innihalda 13 tegundir góðgerla og DigeZyme® meltingarensím! Við mælum með því að þú takir 1 til 2 hylki á dag. Ráðlagt er að taka hylkin á tóman maga. Til dæmis þegar þú vaknar og rétt áður en þú ferð að sofa! Það er hlutverk góðra baktería í þörmunum að sjá til þess að meltingin haldist í lagi. Þarmaflóran getur stýrt fæðuinntökunni þinni og um 70% af ónæmiskerfinu er hýst í þörmunum. Þetta undirstrikar mikilvægi þess að hlúa að þessari starfstöð líkamanns til að viðhalda góðri líkamlegri og andlegri heilsu. Til þess að hlúa enn betur að þörmunum og meltingarstarfseminni skiptir miklu máli að sofa vel, borða hreina og holla fæðu, slaka á, stunda líkamsrækt og innbyrða ráðlagðan dagskammt af góðgerlum. Góðgerla finnur þú til dæmis í (soja) jógúrti, súrkáli, súrum gúrkum, miso og tempeh. -- Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.