Sýna 46–54 af 65 niðurstöður

D3 vítamín 90 hylki

kr.2.632
D3 vítamín hylkin frá OrangeFit eru 100% náttúruleg og vegan en þau eru framleidd úr mosa.
  • Í hverju hylki eru 25 μg (1000IU) af D3 vítamíni en ráðlagður dagskammtur er 10-20 μg (400-800IU) á dag. Þar af leiðandi færðu ráðlagðan dagskammt úr einu hylki.
D3 er líkamanum afar mikilvægt en það styður við ónæmiskerfið og heilbrigði beina, tanna og vöðva. Líkaminn getur framleitt D3 vítamín sjálfur með hjálp sólargeisla en við á Íslandi búum ekki svo vel að fá mikla sól marga mánuði af árinu. Þar af leiðandi getur verið gott að grípa í þessa hentugu lausn til að kroppurinn haldist kátur allan ársins hring!  Við hvetjum þig til að taka hylki samhliða mat sem inniheldur holla fitu, eins og til dæmis avókadó eða valhnetur. Það getur stuðlað að betri upptöku í líkamanum. --- ATHUGIÐ: Þessi vara flokkast sem fæðubótarefni og er ráðlagður dagskammtur 1 hylki. Ekki nota meira en ráðlagt er. Fæðubótarefni getur ekki komið í veg fyrir fjölbreytta fæðu og heilbrigðan lífstíl. Ef þú ert barnshafandi eða með barn á brjósti er best að velja fæðubótarefni í samráði við þinn lækni.

Greens 300 gr.

kr.3.592
Byrjaðu daginn á grænum safa með því að setja eina skeið af Greens frá OrangeFit í vatn til að fá 24 tegundir af mismunandi ávöxtum og grænmeti. Þá uppfyllir þú strax 30% af þínum ráðlagða vítamín dagskammti en Greens er einungis sneisafullt af trefjum og andoxunarefnum. Ef þér finnst Greens ekki gott eitt og sér í vatnsglas, þá er ekkert mál að skella einni skeið í jógúrtið eða þeytinginn.
ATHUGIÐ: Þessi vara flokkast sem fæðubótarefni og er ráðlagður dagskammtur 1-2 skeiðar. Ekki nota meira en ráðlagt er. Fæðubótarefni getur ekki komið í veg fyrir fjölbreytta fæðu og heilbrigðan lífstíl. Ef þú ert barnshafandi eða með barn á brjósti er best að velja fæðubótarefni í samráði við þinn lækni.

OrangeFit Vanilluprótein

kr.245kr.4.392
Virkilega bragðgott vanilluprótein sem inniheldur auðmeltanlegan próteingjafa eða baunaprótein. Þú ættir því ekki að upplifa uppþembu eins og gerist stundum með mysu- og sojaprótein. Ef þú vilt fyrst prófa, þá seljum við þetta prótein í 25 gr. pokum sem samsvarar einum skammti Próteinið inniheldur allar nauðsynlegu amínósýrurnar og er glútenlaust, 100% vegan og án gervisætu. Í HVERJUM SKAMMTI: Kaloríur: 99 Prótein: 20 gr. Kolvetni: 1,4 gr. Fita: 2 gr. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup  Skeifunni, Garðabæ, Smáralind og Kringlunni. Vegan Búðin Faxafeni 14
-- Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Apple and Cinnamon Spread Organic 200 g.

kr.1.690

HEIÐARLEGT, VIRKJAÐ & 100% LÍFRÆNT HNETUSMJÖR MEÐ EPLUM OG KANIL

Þetta bragðgóða hnetusmjör býr yfir dúnmjúkri áferð og er fullkomið álegg á kex eða sem topping á jógúrt, ofurskálar og hafragrautinn.
  • 100% plöntumiðað
  • Rjómakennd áferð
  • Handgert í Tékklandi
  • Hráfæði (unnið undir 42° C)
  • Án pálmolíu og án hertar fitu
  • Inniheldur engann unninn sykur
Allar hnetur og möndlur hjá My Raw Joy eru virkjaðar sem þýðir að þær eru látnar liggja í vatni í 15 klst. Þannig eykst næringargildið þeirra og þær verða auðmeltanlegri. 

Collagen Booster

kr.3.592
Collagen Booster frá OrangeFit inniheldur sérstaka samsetningu af hýalúrón, amínósýrum, B vítamíni, C vítamíni og sink. Varan er 100% plöntumiðuð og náttúruleg, hentar því þeim sem fylgja plöntumiðuðu mataræði og gera strangar gæðakröfur. Þú setur einfaldlega eina skeið í vatn, safa, þeyting eða hvað sem hugurinn girnist.
Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Activated Almonds Organic 150 gr.

kr.1.290

VIRKJAÐAR MÖNDLUR FRÁ MY RAW JOY ERU SANNKALLAÐ OFURFÆÐI OG BÚA YFIR HÆRRA NÆRINGARGILDI EN HEFÐBUNDNAR MÖNDLUR. FRÁBÆRT SNARL INN Í DAGINN.

Hvernig eru möndlur virkjaðar? Þær eru lagðar í bleyti í 15 klst. og hægþurrkaðar síðan í hita sem er ávallt undir 42Cº svo þær flokkast sem hráfæði. Þetta forna virkjunarferli gerir möndlurnar næringarríkari og eykur próteinmagn sem og magn annarra mikilvægra vítamína og næringarefna. Virkjunarferlið hefur líka í för með sér að möndlurnar verða auðmeltanlegri en hefðbundnar möndlur.
  • Lífrænt vottað
  • 0% aukaefni
AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Skeifunni og Garðabæ

Your Super bæklingur

kr.0

ÚTPRENTAÐUR YOUR SUPER BÆKLINGUR MEÐ FRÓÐLEIK & NÆRINGARRÍKUM UPPSKRIFTUM

Þessi bæklingur er frábær kynning á vörunum frá Your Super sem hafa verið að bæta lífsgæði á heimsvísu með sínum dásamlegu lífrænu ofurblöndum 🌿 Þú finnur meðal annars smoothie uppskriftir og heita drykki sem geta aukið orkustig, bætt svefngæði og dregið úr sykurlöngun svo eitthvað sé nefnt! Við mælum einnig með því að þú grípir 5 daga detox prógramið útprentað og kynnir þér það nánar.

Chai Prótein 500 gr.

kr.4.392

PLÖNTUPRÓTEIN MEÐ CHAI BRAGÐI, MÖGULEGA ÞAÐ FYRSTA Á LANDINU?

"HOLY MOSES ÞETTA ER GOTT!" Var það fyrsta sem Helene, stofnandi Rawnice, sagði þegar hún smakkaði lokaútgáfuna af nýja Chai próteininu þeirra eftir 20+ prófraunir! Hver skammtur inniheldur 22 gr. af próteini en einnig magn af trefjum og meltingarensímum til að stuðla að heilbrigðri meltingu. Próteinið er bragðbætt með stevíu, kanil, kardamommu og engifer extract. Þetta prótein býr yfir ákveðinni "hlýju" og getur sett góðan svip á daginn eins og bolli af chai latte iðulega gerir. Þú bara verður hreinlega að prófa

Activated Cashews Organic 150 gr.

kr.1.290

VIRKJAÐAR KASJÚHNETUR FRÁ MY RAW JOY ERU SANNKALLAÐ OFURFÆÐI OG BÚA YFIR HÆRRA NÆRINGARGILDI EN HEFÐBUNDNAR KASJÚHNETUR. FRÁBÆRT SNARL INN Í DAGINN.

Þetta forna virkjunarferli gerir hneturnar næringarríkari og eykur próteinmagn sem og magn annarra mikilvægra vítamína og næringarefna. Virkjunarferlið hefur líka í för með sér að hneturnar verða auðmeltanlegri en hefðbundnar möndlur.
  • Lífrænt vottað
  • 0% aukaefni
AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Skeifunni og Garðabæ