Fjölnota Rakvélar
Þetta er sennilega síðasta rakvélin sem þú þarft að kaupa! Þú sparar töluvert til lengri tíma og jörðin auðvitað líka.
Rakvélin kemur í kraft pappír öskju og henni fylgja með 5 rakvélablöð en eitt blað dugir í 5-8 skipti, jafnvel fleiri.
Áfylling af blöðum er hægt að versla hér og í Vegan Búðinni að Faxafeni 14 en Vegan Búðin selur einnig rakvélarnar okkar.
Ath. að vörumyndin er rose gold en því miður er hún búin á lager. Við eigum bara royal golden sem er aðeins gylltari :)
Rakvélablöð 10 stk.
Hágæða rakvélablöð úr ryðfríu stáli
Fullkomnar í fjölnota rakvélarnar
Koma 10x saman í pakka
Andlitsserum með Kaffiolíu
Lífrænt margverðlauna andlitsserum sem nærir húðina og hentar öllum húðtýpum!
Serumið inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af því sem og jojoba-, sea buckthorn og rosehip olíum.
Notaðu serumið á morgnanna eða á kvöldin til að örva kollagen framleiðslu og viðhalda þéttleika húðarinnar.
- Samþykkt af húðlæknum
Rakakrem með argan skeljum
Þetta unaðslega og margverðlaunaða andlitskrem veitir húðinni góðan raka og nærir hana vel. Kremið hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð.
Rakakremið inniheldur fínmalað púður úr argan skeljum sem er ríkt af e vítamíni og andoxunarefnum. Kremið inniheldur einnig kakósmjör, aloe vera og blóðappelsínu sem er þekkt fyrir húðróandi áhrif.
Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur!
Þessi vara er framleidd á sjálfbæran máta í UK.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af rakakreminu fæst þar líka
Augnkrem með Hlyntré og Kaffi
Augnkrem unnið úr kaffiolíu og þykkni úr hlyntrésbörk
Hefur róandi áhrif, endurnærir og dregur úr bólgum í húð
Hentugt fyrir allar húðtýpur og má nota undir andlitsfarða
Hýalúrónsýra hjálpar til við að þétta og slétta húðina
Framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi
ÁFYLLING:
fáanleg í EkóHúsið Síðumúla 11
Aura Svitalyktareyðir
LANG VINSÆLASTA VARAN FRÁ AWAKE ORGANICS EN ÞESSI MARGVERÐLAUNAÐI SVITALYKTAREYÐIR ER HREINN, NÁTTÚRULEGUR OG VIRKAR!
Svitakremið frá Awake organics er gert úr náttúrulegum efnum og inniheldur ekkert ál, engin paraben, súlföt, þalöt eða efni unnin úr jarðolíu. AURA INNIHELDUR HINSVEGAR CERA ALBA EÐA BÝFLUGNAVAX OG ER ÞVÍ EIN AF ÞEIM FÁU VÖRUM SEM ER EKKI 100% VEGAN HJÁ OKKUR. Engin rotvarnarefni eru í kreminu. Því er mælt með að geyma kremið á dimmum og köldum stað og nota hreinar hendur. Þá á svitakremið að endast í 6-12 mánuði eftir að krukkan er opnuð. Helstu innihaldsefnin eru: Leirefni, matarsódi og “arrowroot” hjálpa til við að halda húðinni undir höndunum þurri. Blanda af fjórum lífrænum ilmkjarnaolíum (sítrónugrasi, lavender, rósmarín og piparmyntu) gefur mildan og þægilegan ilm, hefur róandi áhrif á húðina undir höndunum og minnkar svitalykt. Blanda af kaldpressuðum kókos-, ólífuolíum og býflugnavaxi gerir það að verkum að auðvelt er að bera kremið á og það smýgur fljótt og vel inn í húðina. Inniheldur 50 gr. og er í glerkrukku með loki úr endurvinnanlegu áliNæturkrem með Hyaluronic Sýru og Bláberja Þykkni
Upcircle Prufupakki
Hreinsikrem með Apríkósusteinum 50 ml.
Nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu.
Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð.
Við mælum með þessu hreinsikremi af heilum hug en það er framleitt á sjálfbæran máta í UK með náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
- Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
- Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.