Sýna 13–24 af 45 niðurstöður

Upcircle Prufupakki

kr.1.990
  • Prufupakki sem inniheldur vinsælustu Upcircle vörurnar
  • Tilvalið til að geta fundið hvaða vörur henta manni best
  • Fullkomin gjafavara fyrir þann sem á dekur skilið

Cleansing Balm with Oat Oil + Vitamin E 55 ml.

kr.3.912
Nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu. Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð. Við mælum með þessu hreinsikremi af heilum hug en það er framleitt á sjálfbæran máta í UK með náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.

NOTKUNARLEIÐBEININGAR

  • Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
  • Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.

Tunguskafa

kr.1.490
Tunguskafan er afar mikilvæg þegar kemur að almennri munnhirðu.

+ Improves oral hygiene: a research demonstrated that using a tongue scraper reduce the overall incidence of bad bacterias (Mutans streptococci and Lactobacilli) in the mouth. These bacteria are known to cause dental decay.

+ Reduce bad breath: researchers found that scraping was more effective than brushing at removing odor-causing bacteria.

+ Heightens sense of taste: using a tongue scraper twice daily helps to improve your sense of taste.

+ Improve the appearance of your tongue: by removing the excess debris that cause your tongue to take on a white, coated appearance.

Tip:

Scrape first thing in the morning, before you eat or drink, to remove the bacteria that has accumulated on your tongue overnight.

Soap Travel Tin

kr.1.890
Ferðabox til að taka sápustykkin með í ferðalagið, ræktina eða sund. Það er því miður ekki hægt að setja bæði sjampó- og hárnæringarstykkin frá Tropic saman ofan í eitt box en hægt er að kaupa tvö box ef maður vill og geyma í sitthvoru. Athugið að sum sjampóstykki hjá okkur eru aðeins of stór fyrir boxið en eftir nokkra hárþvotta ætti það að komast! Passið að láta sápustykkin ekki liggja of lengi í bleyti, gott er að taka millistykkið úr boxinu og láta renna af sápunum 😊

Face Toner with Hyaluronic Acid 100 ml.

kr.3.592
ANDLITSTÓNER MEÐ CHAMOMILE: virkilega ferskur og rakagefandi andlitstóner úr chamomile þykkni sem inniheldur einnig græna mandarínu sem endurvekur og frískar upp á húðina. Tónerinn inniheldur hýalúrónsýru sem viðheldur þéttleika húðarinnar og getur dregið úr fínum línum. Þessi tóner er hentugur fyrir allar húðtýpur og það má nota hann undir andlitsfarða sem og eftir andlitshreinsun. Við mælum klárlega með því að nota hann reglulega yfir daginn til að viðhalda þéttleika og ferskleika húðarinnar! Ásamt öllum vörum frá UpCircle, þá er tónerinn framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi og inniheldur einungis 99% náttúruleg hágæða hráefni sem sum hver eru endurnýtt til að sporna gegn sóun. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af tónernum fæst þar líka

Face Mask with Kaolin Clay 60 ml.

kr.3.912
Mildur en árangursríkur andlitsmaski sem virkar á flestar húðtýpur Dregur úr bólum og fílapennslum ásamt því að vinna gegn útbrotum Maskinn gefur húðinni mýkt og gljáa og skilur hana eftir í jafnvægi Kaolin leir er þekktur fyrir að draga í sig óþarfa olíur og óhreinindi Unninn úr endurnýttu fínmöluðu púðri úr ólífusteinum Framleiddur á Englandi á siðferðislegan og sjálfbæran hátt AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af maskanum fæst þar líka

Maldives Mood Conditioner Bar

kr.1.393
Mumbai Mood hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Mumbai Mood hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir mangó og ananas keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd! Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS! Hárnæringarstykkin eru handgerð í USA. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

Gua Sha

kr.2.392
Gua Sha frá UpCircle er hannað til að minnka spennu í andlitsvöðva og draga úr bólgum. "Gua Sha" er aldagömul kínversk hefð sem hefur verið notuð í lækningaskyni þar sem mjúkur steinn er nuddaður með húðinni til að minnka spennu. Einstaka lögun steinsins gerir þér kleift að móta andlitið ásamt því að hjálpa til við sogæðarennsli sem getur dregið úr þrota og örva blóðflæði fyrir heilbrigðan ljóma í andliti. Þú getur svolítið stjórnað ákafanum á nuddinu, allt frá léttum strokum til ögn dýpri þrýstings. Þú getur einnig notað brúnina á steininum til að skafa varlega húðina sem er talið geta hjálpað endurnýjunarferli húðfrumna. Bónus ráð: notaðu andlitsserumið frá UpCircle sem nuddolíu!
“With the cost of living increasing, indulging in self-care is more important than ever for our mental health. One of the best things about using a gua sha stone or eye roller to massage yourself is that you can easily reap the benefits without leaving your own home. It’s a pleasurable and short addition to your established skincare routine. There’s nothing complicated about it and you can do a facial massage yourself, saving lots of money compared with having a facial at a salon". - Anna Brightman, co founder UpCircle Beauty

Eye Roller

kr.1.592
"Using this is my favourite new selfcare ritual, I find it so relaxing!" Augnrúlla sem hjálpar þér að fríska upp á, endurnæra og róa svæðið undir augunum. Þú einfaldlega nuddar varlega með augnkremi eða serumi. Með notkun augnrúllu hafa margir upplifað minni andlitsspennu, betri húðáferð og aukið blóðflæði í kringum augun sem hefur haft bjartan ljóma í för með sér! Bónus: geymdu augnrúlluna í kæli fyrir notkun!

SPF 25 Steinefna Sólarvörn

kr.3.592
Þessi árangursríka steinefna sólarvörn veitir húðinni nauðsynlega vörn gegn ótímabærri öldrun af völdum sólarinnar.
  • 100% vegan, án ofbeldis, plastlaus & endurvinnanleg!
Hún dregst hratt í húðina og færir henni einnig góðan raka ásamt því að innihalda andoxunarefni frá hindberjafræolíu sem getur dregið úr skaða sindurefna.
  • Inniheldur A & E vítamín sem getur örvað kollagen framleiðslu líkamanns
Það besta við þessa sólarvörn er að hún lifir í sátt og samlyndi við kóralrifin og hefur ekki skaðleg áhrif á þau eins og svo margar sólarvarnir í dag.  

Hyams Heaven Sjampóstykki

kr.1.592
  • Náttúrulegt hársápustykki sem nærir og mýkir hárið
  • Er án allra ilmefna og því fullkomið fyrir viðkvæma
  • Skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt
  • Inniheldur einungis 5 hráefni
  • Án SLS, parabena og aðra skaðlegra efna
  • Handgert í USA

Passið að hafa hársápuna liggjandi þar sem næst að leka af henni svo hún þorni á milli skipa. Í stöðugri bleytu á hún í hættu á að skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska!


Cancún Caress Hárnæringarstykki

kr.1.493
Cancún Caress hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Cancún Caress hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og fær mildan keim af kókos og límónu Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS! Hárnæringarstykkin eru handgerð í USA. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.