Mjúkir Bamburstar
Miðlungs Bamburstar
Miðlungs bamburstarnir frá Tropic eru með bambus skafti og miðlungs stífum hárum búin til úr bambus efni og nylon. Umbúðirnar eru gerðar úr 100% endurunnum pappír. Afhverju ætti maður að skipta yfir í bambus tannbursta? Tannlæknar mæla með því að fólk skipti út tannburstanum sínum á u.þ.b 3 mánaða fresti og því getur skipt sköpum fyrir umhverfið að nota tannbursta sem búinn er til úr náttúrulegu efni sem brotnar niður í náttúrunni frekar en tannbursta sem er búinn til úr plasti og getur tekið allt að þúsund ár að brotna niður og jafnvel eftir þann tíma lifa skaðleg efni úr plastinu áfram í enn lengri tíma í umhverfinu.
Bambus er líka þekkt fyrir þann eiginleika að bakteríur þrífast ekki vel í því: “Another advantage of bamboo is that it is naturally antimicrobial. There’s a reason cutting boards and kitchen utensils are made out of wood and bamboo. Unlike plastic, properties inside the bamboo kill bacteria that penetrate it’s surface, providing long-lasting protection against harmful bacteria.”
Ef þú kýst heldur mjúk hár í tannburstun þá mælum við með Mjúkur Bambus Tannbursti.
Gut Restore Organic 150 gr.
ATH. ÞAÐ ER 70% AFSLÁTTUR SÖKUM STIMPILS (29.03.24) EN Í GÓÐU LAGI MEÐ HRÁEFNIÐ EFTIR ÞANN TÍMA!
Gut Restore er hágæða meltingavara sem inniheldur 5 milljarða góðgerla frá plönturíkinu og nauðsynleg meltingarensím en þú setur aðeins tvær teskeiðar í kalt vatn fyrir fljótlegan og suðrænan drykk fyrir þína fyrstu máltíð dagsins! Gut Restore var hannað til þess að efla starfsemi þarmaflórunnar en þarmaflóran en talið er að um 70% ónæmiskerfisins sé hýst í þörmunum. Því er afar mikilvægt að hlúa vel að þessum góðu bakteríum & Gut Restore getur hjálpað með það- Innihladsefni: mangó*, gulrætur*, gerjað engifer*, ananas*, Lactobacillus acidophilus, Bifidobacerium lactis, Lactobacillus plantarum. (*lífrænt)
- Góðgerlarnir hafa náttúrulega húðun þannig þeir byrja ekki að vinna fyrr en þeir eru komnir í þarmaflóruna til að skila árangri á réttum stað.
- Athugið að það má taka vöruna hvenær sem er yfir daginn en á morgnana getur skilað bestum árangri.
- Þyngd 150 gr. | Skammtastærð: 2 tsk. (30 skammtar í 150 gr.)
Blá Spirulína
✓ Einungis 100% náttúruleg blá spirulína! Engin aukaefni viðbætt.
✓ Duftið er laust við allt vont spirulínu bragð. Sem betur fer!
Blá Spirulína (Phycocyanin) er unnin úr vel þekkta þörungnum spirulínu sem er talin ein næringarríkasta fæða sem völ er á. Blá spirulína inniheldur magn af próteini, vítamínum, steinefnum, karótenóíð og andoxunarefnum sem ættu að gefa þér gott "kick" inn í daginn.
Það er nóg að setja hálfa til heila teskeið af duftinu í þeyting, jógúrt, ofurskál eða drykk til að fá fallegan bláan lit og aukin næringarefni. Við bendum samt á að liturinn passar misvel við aðra liti en það er mjög gaman að prófa sig áfram
JÓLA OFURSKÁL 🎄
- Nokkrir frosnir bananar (ég set stundum frosna kúrbít bita á móti til að minnka sætu)
- 1-2 tsk. af blárri spirulínu
- dass af plöntumjólk (ég elska kókosmjólk)
- 2 msk. af jógúrti
- 1/2 tsk. af kanil (má sleppa)
- 1/2 tsk af engifer (má sleppa)
- 1/2 tsk. af múskat (má sleppa)
Activated Charcoal duft
ACTIVATED CHARCOAL ÚR BAMBUS SEM ER HITAÐUR VIÐ HÁAN HITA OG HLEYPT AÐ SÚREFNI TIL AÐ MYNDA ÞETTA FÍNGERÐA SVARTA DUFT.
Activated Charcoal er þekkt fyrir hreinsunar eiginleika og lengi verið notað fyrir náttúrulega hreinsun, t.d. eftir drykkju eða óhollan mat.
- 1 tsk. af Activated Charcoal í vatn með sítrónu- og engifersafa fyrir veglegt "pick me up"
- Virkar sem náttúrulegur svartur matarlitur í ofurskálar, bakstur og matargerð
- Margir hafa notað activated charcoal í DIY andlitsmaska og tannhvítun
- Hvað með að fara út fyrir þetta hefðbundna og gera svartar bollakökur eins og þessar hér.
- Það er síðan ákveðin tískubylgja í gangi þar sem fólk er mikið að baka svart brauð! Þú getur séð uppskrift af því til dæmis hér.
Pink Latte Pakkinn
Moon Balance inniheldur meðal annars ayurveda jurtir og aðlögunarefni sem eru talin gera kroppnum gott, sérstaklega fyrir okkur konurnar! Plant Collagen inniheldur síðan hráefni á borð við aloe vera sem hafa verið kennd við húðheilsu.
Plant Collagen er bragðbesta varan frá Your Super að okkar mati en hún inniheldur vanillu frá Madagascar og er því fullkomið sem vanillu „creamer“ í hvaða drykk sem er.
INNIFALIÐ Í PAKKANUM ER:
- Moon Balance 200 gr. (hibiscus*, maca*, rauðrófu*, shatavari*, amla* & baobab*)
- Plant Collagen 120 gr. (tocos*, baunaprótein*, tremella*, lucuma*, vanilla* & aloe vera*)
- Niðurhalanleg e-bók með fróðleik og uppskriftir fyrir Plant Collagen og Moon Balance
UPPSKRIFT AF MOON MILK
- 1 tsk. Moon Balance
- 1 tsk. Plant Collagen
- 1 bolli plöntumjólk
- 1 tsk. hlynsýróp (valkvætt)
Fiji Feels Combo
Fiji Feels sjampó- og hárnæringarstykkið vinna fullkomlega saman við að gera hárið þitt sem líflegast, heilbrigðast og að auki silkimjúkt. Stykkin búa yfir unaðslegum ilm af kryddaðri vanillu og kókos sem fær mann til að hlakka til næsta hárþvottar!
Stykkin eru auðvitað vegan og siðferðisleg (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaus, pálmolíulaus, án SLS og án paraben. Stykkin eru einnig handgerð í USA.
Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Fiji Feelin Shampoo Bar
- Náttúrulegt hársápustykki sem mýkir hárið og nærir
- Ilmar af kryddaðri vanillu og sætum kókos
- Skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt
- Án SLS og án parabena
- Handgert í USA
OrangeFit Jarðaberjaprótein – 25 gr.
Virkilega bragðgott jarðaberjaprótein sem inniheldur auðmeltanlegan próteingjafa eða baunaprótein. Þú ættir því ekki að upplifa uppþembu eins og gerist stundum með mysu- og sojaprótein. Ef þú vilt fyrst prófa, þá seljum við þetta prótein í 25 gr. pokum sem samsvarar einum skammti
Próteinið inniheldur allar nauðsynlegu amínósýrurnar og er glútenlaust, 100% vegan og án gervisætu.
Í HVERJUM SKAMMTI:
Kaloríur: 99
Prótein: 19,4 gr.
Kolvetni: 0,8 gr.
Fita: 2,2 gr.
Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.
Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.
Choco Bar Organic with Banana 30 g.
Þetta 100% vegan og lífræna súkkulaðistykki inniheldur bananafyllingu sem enginn súkkulaði unnandi má láta framhjá sér fara!
Súkkulaðið er handgert af ást hjá fjölskyldufyrirtæki í Tékklandi þar sem aðeins eru notuð hágæða hráefni á borð við hrátt perúskt cacao dauft og lífrænan kókospálmasykur.
Það sem einkennir hrátt súkkulaði er að það er matreitt undir 42°C til þess að varðveita næringarefnin sem eru til staðar.
Þú finnur engin óþarfa aukaefni í súkkulaðinu frá My Raw Joy þar sem þau leggja áherslu á heiðarleika og gæði
Acaí duft 60 gr.
HREINT ACAÍ DUFT FRÁ AMAZON REGNSKÓGINUM
Settu hálfa til eina teskeið í þeytinginn, jógúrtið, ofurskálina eða hvað sem þig girnist fyrir fallegan fjólubláan lit þökk sé anthocyanins. Anthocyanins vinna sem andoxunarefni í líkamanum en acaí ber eru vel auðug af andoxunarefnum.
Nafnið á þessum berjum er jafnvel erfiðara að bera fram en GiF. (Er það JIFF eða G.I.F??!!)
Hér er smá kennsla þess nefnis:
PS. Ýttu hér til að hlusta!
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.
Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind og Kringlu.