Sýna 13–21 af 21 niðurstaða

Buckwheat Granola Organic 100 gr.

kr.587

BÓKHVEITI GRANÓLA ER FULLKOMIÐ MEÐ MORGUNMATNUM EN EINNIG HENTUGT SNARL YFIR DAGINN 😋

Inniheldur næringarrík fræ á borð við graskersfræ, hörfræ, sesamfræ og sólblómafræ sem gott er að bæta við fjölbreytt matarræði fyrir ýmis næringarefni. Þetta granóla inniheldur ríkulegt magn af trefjum sem styður við heilbrigða meltingu og bókhveitið er spírað þannig það er ríkt af andoxunarefnum og magnesíum. Einnig er að finna ýmis B-vítamín og steinefni. Þessi vara er að sjálfsögðu sykuralaus, eini sætugjafinn eru rúsinur og döðlur. ✓ glútenlaust ✓ lífrænt vottað ✓ orkugefandi ✓ fljótlegt 

Hazelnut Choco Marbles Organic 50 g.

kr.690
Hollar og góðar súkkulaðihúðaðar virkjaðar heslihnetur sem frábært "guilt-free" snarl yfir daginn!
  • 100% plöntumiðað
  • Lífrænt vottað
  • Handgert í Tékklandi
  • Hráfæði (unnið undir 42° C)
  • Án pálmolíu og án hertar fitu
  • Inniheldur engann unninn sykur
Allar hnetur og möndlur hjá My Raw Joy eru virkjaðar sem þýðir að þær eru látnar liggja í vatni í 15 klst. Þannig eykst næringargildið þeirra og þær verða auðmeltanlegri. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Skeifunni og Garðabæ

Cacao Lover Organic 200 g.

kr.1.947
Hrátt kakó frá Perú er þekkt fyrir mikið magn andoxunarefna og að geta bætt skapið. Í þessari dýrindis kakó blöndu frá My Raw Joy getur þú öðlast þann ávinning ásamt því að innbyrða mikið magn næringarefna!
  • Hráfæði, vegan & lífrænt
  • Mjög ríkt af trefjum!
  • 0% aukaefni

Apple and Cinnamon Spread Organic 200 g.

kr.1.690

HEIÐARLEGT, VIRKJAÐ & 100% LÍFRÆNT HNETUSMJÖR MEÐ EPLUM OG KANIL

Þetta bragðgóða hnetusmjör býr yfir dúnmjúkri áferð og er fullkomið álegg á kex eða sem topping á jógúrt, ofurskálar og hafragrautinn.
  • 100% plöntumiðað
  • Rjómakennd áferð
  • Handgert í Tékklandi
  • Hráfæði (unnið undir 42° C)
  • Án pálmolíu og án hertar fitu
  • Inniheldur engann unninn sykur
Allar hnetur og möndlur hjá My Raw Joy eru virkjaðar sem þýðir að þær eru látnar liggja í vatni í 15 klst. Þannig eykst næringargildið þeirra og þær verða auðmeltanlegri. 

Activated Almonds Organic 150 gr.

kr.1.290

VIRKJAÐAR MÖNDLUR FRÁ MY RAW JOY ERU SANNKALLAÐ OFURFÆÐI OG BÚA YFIR HÆRRA NÆRINGARGILDI EN HEFÐBUNDNAR MÖNDLUR. FRÁBÆRT SNARL INN Í DAGINN.

Hvernig eru möndlur virkjaðar? Þær eru lagðar í bleyti í 15 klst. og hægþurrkaðar síðan í hita sem er ávallt undir 42Cº svo þær flokkast sem hráfæði. Þetta forna virkjunarferli gerir möndlurnar næringarríkari og eykur próteinmagn sem og magn annarra mikilvægra vítamína og næringarefna. Virkjunarferlið hefur líka í för með sér að möndlurnar verða auðmeltanlegri en hefðbundnar möndlur.
  • Lífrænt vottað
  • 0% aukaefni
AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Skeifunni og Garðabæ

Activated Cashews Organic 150 gr.

kr.1.290

VIRKJAÐAR KASJÚHNETUR FRÁ MY RAW JOY ERU SANNKALLAÐ OFURFÆÐI OG BÚA YFIR HÆRRA NÆRINGARGILDI EN HEFÐBUNDNAR KASJÚHNETUR. FRÁBÆRT SNARL INN Í DAGINN.

Þetta forna virkjunarferli gerir hneturnar næringarríkari og eykur próteinmagn sem og magn annarra mikilvægra vítamína og næringarefna. Virkjunarferlið hefur líka í för með sér að hneturnar verða auðmeltanlegri en hefðbundnar möndlur.
  • Lífrænt vottað
  • 0% aukaefni
AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Skeifunni og Garðabæ

Raw Organic Cacao Powder 500 g.

kr.1.592

100% HREINT OG LÍFRÆNT CACAO DUFT

Cocoa er hægt að nota í dýrindis kakódrykki en einnig í ýmsan bakstur eða eftirréttagerð. Óristað cocoa er ríkt af vítamínum, steinefnum og andoxunarefnum sem getur haft jákvæð áhrif á almenna heilsu. Cocoa er talið hafa jákvæð áhrif á taugakerfið þar sem það inniheldur amínósýrurnar tryptophan og phenylalanine. Einnig er talið að cocoa geti örvað gleðihormón líkamanns og bætt skap! Hér er hægt að lesa nánar um undramátt cocoa baunarinnar ❤️

Hazelnut Truffles Organic 45 g.

kr.842

DÝRINDIS HESLIHNETU TRUFFLUR SEM INNIHALDA ÓRISTAÐ COCOA FRÁ PERÚ OG DASS AF KANIL TIL AÐ SVALA SÆTUÞÖRF.

Handgert ljúfmeti með cocoa frá Perú, agave sýrópi og kasjúhnetum sem allt flokkast undir hráfæði. My Raw Joy passa að áferð og bragð sé á pari við hefðbundið súkkulaði án þess að nota unnin sykur eða annan óþarfa. Þessi dásemdar vara er 100% vegan & lífrænt vottuð! Fullkomið "crunchy" snarl eða jafnvel gjafaviðbót

Creamy Delight Organic Gjafabox

kr.5.592

FULLKOMIN JÓLAGJÖF FYRIR ÞÍNA ÁSTVINI EÐA JAFNVEL VINNUSTAÐINN 🎁

Handgerð súkkulaðistykki með "creamy" fyllingu frá Tékklandi úr lífrænu hágæða hráefni sem hafa komið flestum okkar viðskiptavinum vel á óvart. Stykkin koma í virkilega fallegri gjafaöskju og því einstaklega fögur gjöf sem hittir beint í mark, sérstaklega á meðal súkkulaði unnenda. Það getur verið ævintýri fyrir bragðlaukana að prófa þessi stykki þar sem þau innihalda allt frá hindberjabragði til nougat og meira að segja ofurfæðið guarana. My Raw Joy framleiðir einungis heilsusamlegt hágæða súkkulaði sem er samt á pari við þessi sem þú ert vön eða vanur að versla út í búð. Fyrir okkar leiti eru þessi þó margafalt betri, ekki bara á bragðið heldur líka þar sem þau innihalda ekki unnin sykur og flokkast undir hráfæði til að varðveita næringarefni. Hreina kakóið frá Perú sem þau nota í stykkin er til dæmis sannkölluð ofurfæða og inniheldur mikið magn af andoxunarefnum.