Aðal sportið hjá mér þessa dagana er að reyna finna rétti sem 13 mánaða dóttir mín elskar. Ég sló rækilega í gegn þegar ég skellti í þessa einföldu graskerssúpu en í frostmiklum janúar mánuði og þegar flensutímabilið er í hámarki, þykja mér súpur eiga vel við. Sér í lagi þar sem þær eru oft sneisafullar af næringarefnum og ekki skemmir að dóttir mín bendir á súpuskálina og segir “mamma meijja” sem er ungbarnamálið fyrir: “mamma, ég vil fá meira”.
Það er gaman að segja frá því að grasker (eða butternut squash) er ekki grænmeti eins og ég upprunalega hélt, heldur ávöxtur. Þessi ávöxtur er afar næringarríkur en hann inniheldur meðal annars A, C og E vítamín sem og ríkulegt magn trefja. Þessi súpa dekrar því aldeilis við ónæmiskerfið – og meltinguna!
Það sem þarf í þessa uppskrift (fyrir 2) er eftirfarandi:
- 1000 ml. Grænmetissoð (eða vatn og grænmetiskraft)
- 500 gr. Grasker (Butternut Squash)
- 1 Laukur
- 3 Hvítlauksgeirar
- 2 Meðalstórar gulrætur
- 1,5 cm. Ferskt engifer
- ½ dl. Kókosmjólk í dós
- Salt og pipar eftir smekk
- ½ tsk. Túrmerik (valkvætt)
Aðferðin er svohljóðandi:
- Ég byrja á því að stilla ofninn á 180° og leyfi honum að hitna á meðan ég sker graskerið í litla bita
- Næst raða ég graskerinu á bökunarpappír, velti því aðeins upp úr ólífuolíu, salti og pipar og baka það síðan í ofninum í 25-35 mínútur
- Á meðan graskerið er í ofninum, þá fínsker ég laukinn og gulræturnar og ríf síðan engifer og hvítlauksgeira
- Næst hita ég grænmetissoð í potti og steiki fínt skorna laukinn, gulræturnar, engiferið og hvítlaukinn upp úr ólífuolíu í öðrum meðal stórum potti
- Yfirleitt krydda ég aðeins grænmetið þegar ég steiki það og bæti svo meira kryddi eftir smekk seinna í ferlinu þegar ég læt súpuna malla
- Ég sameina grænmeti og grænmetissoð í potti og bæti graskerinu við þegar það er orðið bakað og mjúkt í gegn
- Þessu leyfi ég aðeins að malla í potti áður en ég mauka súpuna með töfrasprota eða set í blender
- Þegar ég er búin að blanda öllu saman, þá bæti ég við kókosmjólkinni og krydda súpuna meira ef mér finnst það eiga við
Ég hef tekið eftir því að sumir steikja graskerið eða það rótargrænmeti sem þeir notast við í súpur, en ég tel það bragðbæta súpuna að baka það í ofni. Ef það er síðan afgangur, þá er fullkomið að skella því í kæli og gæða sér á súpunni í hádegismat næsta dag.