• VERSLA
    Screenshot 2024-09-18 at 10.48.37

    ALLAR VÖRUR

    Screenshot 2025-12-18 at 11.21.27

    LJÚFMETI

    your-superfoods-superfood-mix-single-mix-power-matcha-8718868809025-171011-organic-super-foods-17835632656

    HEILSUVÖRUR

    Tropic=Vorur-158

    SNYRTIVÖRUR

  • UPPSKRIFTIR
  • BLOGG
  • Gjafavara
  • Útsala
Tropic Tropic
Login / Register
0 items / kr.0
Menu
Tropic Tropic
0 items / kr.0
New
Click to enlarge
Heim Vörumerki Super Plants SuperPlants Vanilla Protein 500g
Caramel and Peanut Bliss 445g
Caramel and Peanut Bliss 445g kr.3.290
Back to products
Maldives Mood Shampoo Bar
Maldives Mood Shampoo Bar kr.2.290

SuperPlants Vanilla Protein 500g

kr.8.990

Nærðu líkamann með 20 g af fullkomnu plöntupróteini úr aðeins sex hreinum hráefnum. Þessi vel samsetta próteinblanda er auðmeltanleg og inniheldur allar lífsnauðsynlegar amínósýrur úr baunapróteini, sacha inchi, sólblómafræja- og graskersfræjapróteini.

Próteinið er unnið úr heilnæmum plöntum án gervisætuefna, fylliefna eða óþarfa aukefna.

Fullkomið í:
🥤 smoothie
🥣 morgunmat
🍓 millimál
⚡ eða sem fljótlegan próteindrykk á ferðinni

Styður við uppbyggingu og viðhald vöðvamassa, hjálpar til við endurheimt eftir áreynslu og er frábær leið til að auka próteininntöku á einfaldan og hreinan hátt.

Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru

Á lager

Vörunúmer: ESP-6 Flokkar: Allar vörur, Prótein, Super Plants
  • Lýsing
Lýsing

INNIHALDSEFNI

Organic Pea Protein Powder (USA)
Organic Sacha Inchi Protein Powder (Peru)
Organic Sunflower Seed Protein Powder (USA)
Organic Pumpkin Seed Protein Powder (Austria)
Organic Mesquite Powder (Peru)
Organic Vanilla Powder (Madagascar)

NOTKUNARLEIÐBEININGAR

• 18 skammtar í poka
• Skammtastærð: 30 g (3 msk)
• 20 g prótein í hverjum skammti

Aðrar spennandi vörur

Sold out

Cleanse, Tone + Moisturise Set

kr.13.590

FULLKOMIÐ GJAFASETT SEM INNIHELDUR ÞRJÁR VINSÆLAR HÁGÆÐA HÚÐVÖRUR FRÁ ELSKU UPCIRCLE

RAKAKREM MEÐ ARGAN SKELJUM: Þetta unaðslega og margverðlaunaða andlitskrem er okkar vinsælasta UpCircle vara en kremið veitir húðinni góðan raka og nærir hana einstaklega vel. Kremið hentar öllum húðtýpum en er alveg sérstaklega gott fyrir þurra húð. Rakakremið inniheldur fínmalað púður úr argan skeljum sem er ríkt af E-vítamíni og andoxunarefnum. Kremið inniheldur einnig kakósmjör, aloe vera og blóðappelsínu sem eru þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. HREINSIBALM MEÐ APRÍKÓSU: er virkilega árangursríkt, nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu. Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð. ANDLITSTÓNER MEÐ CHAMOMILE: virkilega ferskur og rakagefandi andlitstóner úr chamomile þykkni sem inniheldur einnig græna mandarínu sem endurvekur og frískar upp á húðina. Tónerinn inniheldur hýalúrónsýru sem viðheldur þéttleika húðarinnar og getur dregið úr fínum línum. Þessi tóner er hentugur fyrir allar húðtýpur og það má nota hann undir andlitsfarða sem og eftir andlitshreinsun. Við mælum klárlega með því að nota hann reglulega yfir daginn til að viðhalda þéttleika og ferskleika húðarinnar! Við mælum með þessm vörum af heilum hug en þær eru framleiddar á sjálfbæran máta í UK með 99-100% náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.
Skoða vöru
Quick view
Sold out

Coconut Bar 50g

kr.490

HANDGERT SÚKKULAÐISTYKKI SEM BRAGÐAST EINS OG BOUNTY NEMA BARA BETRA

Fyllingin er dúnmjúk með kókos og toffee. Fullkomið fyrir kósýkvöldið eða með kaffinu! Allt súkkulaði frá Vegan Delights er án pálmolíu og 100% vegan. Þau nota líka alltaf cocoa sem er framleitt á ábyrgan hátt með sjálfbærni að leiðarljósi

AÐRIR SÖLUSTAÐIR

HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og Akureyri
Skoða vöru
Quick view

White Coconut Bar 50g

kr.490

HANDGERT SÚKKULAÐISTYKKI SEM BRAGÐAST EINS OG BOUNTY NEMA BARA BETRA

Fyllingin er dúnmjúk með kókos og toffee. Fullkomið fyrir kósýkvöldið eða með kaffinu! Allt súkkulaði frá Vegan Delights er án pálmolíu og 100% vegan. Þau nota líka alltaf cocoa sem er framleitt á ábyrgan hátt með sjálfbærni að leiðarljósi

AÐRIR SÖLUSTAÐIR

HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og Akureyri
Setja í körfu
Quick view

Hand Lotion with Hibiscus 75 gr.

kr.3.990
Handáburður sem inniheldur hibiscus blóm, shea smjör og marshmallow rót til að vernda og næra hendurnar. Formúlan er ekki olíukennd heldur fersk og sér til þess að kremið dregst ört í húðina og gerir gæfumun, jafnvel fyrir þurrustu hendur! Endurnýtt hibiscus blóm innihalda 45% alpha-hydroxy sýrur, sem hjálpa til við að fjarlægja mengunarefni varlega úr efri lögum húðarinnar og örva endurnýjun frumna.
Setja í körfu
Quick view

Face Toner with Hyaluronic Acid 100 ml.

kr.4.990
ANDLITSTÓNER MEÐ CHAMOMILE: virkilega ferskur og rakagefandi andlitstóner úr chamomile þykkni sem inniheldur einnig græna mandarínu sem endurvekur og frískar upp á húðina. Tónerinn inniheldur hýalúrónsýru sem viðheldur þéttleika húðarinnar og getur dregið úr fínum línum. Þessi tóner er hentugur fyrir allar húðtýpur og það má nota hann undir andlitsfarða sem og eftir andlitshreinsun. Við mælum klárlega með því að nota hann reglulega yfir daginn til að viðhalda þéttleika og ferskleika húðarinnar! Ásamt öllum vörum frá UpCircle, þá er tónerinn framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi og inniheldur einungis 99% náttúruleg hágæða hráefni sem sum hver eru endurnýtt til að sporna gegn sóun. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af tónernum fæst þar líka
Setja í körfu
Quick view
Sold out

Tropic Organic Acaí Powder 1000g

kr.19.990

LÍFRÆNT VOTTUÐ FROSTÞURRKUÐ ACAÍ BER FRÁ AMAZON REGNSKÓGINUM

Þessi dökkfjólubláu ber sem eiga rætur sínar að rekja til Amazon regnskógarins hafa náð miklum vinsældum síðustu ár. Berin eru þekkt fyrir háan andoxunarstuðul en acaí ber eru talin búa yfir 3x meira magni af andoxunarefnum en til dæmis bláber. Duftið er fíngert og hentar vel í þeyting, chia graut eða jógúrtina fyrir aukin vítamín og steinefni. Það sem er í uppáhaldi hjá Tropic teyminu eru acaí skálar.

UPPSKRIFT AF ACAÍ SKÁL

1 bolli af blönduðum frosnum berjum 30 ml. plöntuprótein (valkvæmt) 1-2 dl. af plöntumjólk 2 tsk. Tropic acaí duft 1 frosinn banani Öllu er blandað vel saman í blender eða matvinnsluvél. Þar sem mikið er frosið og áferðin verður ískennd að þá þarf blenderinn eða matvinnsluvélin að vera svolítið öflug. Stundum þarf að bæta við meiri vökva eða stoppa og hræra og byrja aftur, til að ná að blanda öllu almennilega saman Fullkomið "toppings" → fersk jarðaber, bananabitar, fersk bláber, hnetusmjör eða möndlusmjör, hempfræ, granóla og kakónibbur

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði Hagkaup: Garðabæ, Akureyri, Skeifunni, Smáralind, Spöng og Kringlu
Skoða vöru
Quick view

Tropic Vanilla Protein 500g

kr.3.790

TROPIC PLÖNTUPRÓTEIN MEÐ VANILLUBRAGÐI

Í þessu próteini er að finna auðmeltanlega próteingjafa eða bauna- og rísprótein sem líkaminn á auðvelt með að vinna úr. Í hverjum skammti er 22 gr. af próteini og formúlan er auðguð með trefjum og meltingarensímum til þess að stuðla að bættri meltingu. Við notum avókadó þykkni til þess að gera áferðina "rjómakennda" sem verður til þess að próteindrykkirnir verða talsvert grinilegri. Það sem gerir okkar prótein sérstakt er að við notum stevíu sem sætugjafa og sniðgöngum alveg gerviefni á borð við → sucralose og acesulfam-K Þar af leiðandi er próteinið ekki of sætt og ekki með óþarfa eftirbragð. Próteinið er einnig glútenlaust, án GMO og 100% vegan

EINFALDUR VANILLU SMOOTHIE

  • 1 banani
  • 1 bolli af frosnum jarðaberjum
  • 1 bolli af frosnum ananas bitum
  • 30 ml. vanilluprótein (full scoop er 50 ml.)
  • 1 msk. möndlusmjör
  • dass af plöntumjólk
  • 2 tsk. acaí duft
  • hægt að bæta hampfræjum eða chia (valkvætt)
Allt sett saman í blandari þar til mjúk áferð myndast

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði KRÓNAN • Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni, FITJUM og Akureyri. HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og Akureyri NETTÓ • Granda, Mjódd, Krossmóa, Glerártorgi og Egilsstöðum
Setja í körfu
Quick view

Face Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera 60 ml.

kr.5.990

MILT DAGKREM SEM VEITIR FRÁBÆRAN RAKA OG NÆRIR HÚÐINA MEÐ E-VÍTAMÍNI OG ÖÐRUM ANDOXUNAREFNUM SEM GETA HÆGT Á ÖLDRUN

Þetta dagkrem hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð. Við höfum einnig fengið endurgjöf frá konum með mikinn rósroða og virkilega slæma húð eftir barnsburð sem segja að þetta krem hafi algjörlega bjargað sér. Kremið inniheldur fínmalað púður úr endurnýttum argan skeljum sem hefðu annars farið til spillis. Argan skeljarnar eru ríkar af E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem gera húðinni mikið gott. Kakósmjör, aloe vera, og blóðappelsína er einnig að finna í þessu dásemdar kremi en þessi innihaldsefni eru þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. Þegar krukkan þín klárast, þá getur þú verslað áfyllingu í EkóHúsinu að Síðumúla 11. "Þetta unaðslega dagkrem frá UpCircle kom eins og kallað inn í líf mitt 2019 þegar ég var að glíma við ýmis húðvandamál. Húðin mín hefur alla tíð verið ótrúlega þurr. Ef rakakremið gleymdist í ferðalögum þá var ég í vondum málum! Það voru meira að segja byrjaðir að myndast krónískir þurrkublettir framan í mér. Dagkremið frá UpCircle hefur gert kraftaverk fyrir mína húð þar sem ég get núna farið í sturtu án þess að líða eins og sandpappír í framan. Eins hafa bólur ekki gert eins mikið vart við sig eftir að ég byrjaði að nota UpCircle dagkremið (og hreinsimjólkina líka reyndar). Ef þú ert í svipuðum sporum og ég var í, að vera í dauðaleit af hinu fullkomna kremi sem er ekki með afgerandi lykt eða lætur þig klæja eða gefur þér roða í framan, þá er UpCircle dagkremið mjög sennilega fyrir þig!" - einlæg umsögn frá Kristínu Amy, eiganda Tropic.

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af rakakreminu fæst þar líka  
Setja í körfu
Quick view
2025 TROPIC. ALLUR RÉTTUR ÁSKILINN.
Skilmálar - payments
  • Menu
  • Categories
  • Heilsuvörur
  • Gjafavara
  • Húðvörur
  • Hárvörur
  • Prótein
  • Ofurfæði
  • Súkkulaði
  • Ilmvötn
  • Vörumerki
  • VERSLA
  • UPPSKRIFTIR
  • BLOGG
  • Gjafavara
  • Útsala
  • Login / Register
Facebook Instagram
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Lestu um hvernig við notum vafrakökur.
More info Accept
Start typing to see products you are looking for.
Shop
0 items Cart
My account