Súkkulaði og hnetusmjörs þeytingur

Þessi súkkulaðiþeytingur eftir Þórdísi Ólöfu hjá Grænkerum sameinar sætt bananabragð, súkkulaði og hnetusmjör í mjúkum drykk.

Hráefni:

1 banani
3 dl plöntumjólk, t.d. möndlumjólk
1 skeið súkkulaðiprótein frá Tropic
3-5 döðlur
1 msk. haframjöl
1 msk. hnetusmjör (má skipta út fyrir möndlusmjör)
Handfylli af klökum

Eftir smekk má bæta út í 1-2 tsk. af hörfræjum, chia fræjum og/eða hampfræjum.

Setjið öll hráefnin í blandara og blandið þar til silkimjúkt.

Shopping Cart
0
Scroll to Top