Matcha hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og er sérstök tegund af grænu tei sem á rætur að rekja til Japans. Við ræktun matcha eru teblöðin varin fyrir beinu sólarljósi síðustu vikurnar fyrir uppskeru, sem hefur áhrif á lit, bragð og samsetningu laufanna. Eftir uppskeru eru blöðin þurrkuð og möluð í fíngert grænt duft.
Hvað gerir matcha sérstakt?
Ólíkt hefðbundnu tei er allt teblaðið neytt þegar matcha er drukkið, þar sem duftið er blandað beint út í vatn eða aðra drykki. Matcha inniheldur náttúrulega bæði koffín og amínósýruna L-theanine, auk ýmissa plöntuefna sem finnast í grænu tei.
Bragðið af matcha er einstakt og skiptar skoðanir eru um það. Sumir elska það strax á meðan aðrir þurfa smá tíma til að venjast því. Fyrir mig hefur verið skemmtilegt að finna nýjar leiðir til að njóta matcha og þess vegna varð þessi uppskrift til.
Ég ákvað að blanda matcha saman við ananas, banana og kókosmjólk til að fá mjúkt og ferskt bragð. Ég bætti einnig spínati út í drykkinn, sem fellur vel að hinum hráefnunum án þess að yfirgnæfa bragðið.
UPPSKRIFT
1 banani
1 bolli af frosnum anans bitum
1 dl. kókosmjólk í dós (þykki hlutinn)
25 ml. af vanillupróteini (valkvæmt)
1 tsk. lífrænt matcha
Ríkuleg lúka af spínati
Dass af köldu vatni
Þessi ljúffengi drykkur er fullkominn til að byrja daginn eða sem orkuaukandi millimál. Matcha þykir mér hjálpa við að halda góðum fókus yfir daginn á meðan spínat fyllir á vítamínabirgðirnar og eykur trefjainnihald. Saman gefa þessar ofurhetjur manni ljúffengan og hollan drykk sem bæði kætir líkama og sál.
