Face Oil with Coffee and Rosehip Oil 30 ml.
MARGVERÐLAUNA OG EIN VINSÆLASTA UPCIRCLE VARAN FRÁ UPPHAFI SEM BÝR YFIR FRÁBÆRRI VIRKNI FYRIR FLESTAR HÚÐTÝPUR
Þessi unaðslega andlitsolía (hét áður andlitsserum) inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af kaffi sem og jojoba-, sea buckthorn og rosehip olíum. Þessi andlitsolía var hönnuð til að örva kollagen framleiðslu húðarinnar og viðhalda þéttleika hennar. Fyrir bestan árangur er best að nota olíuna kvölds og morgna. Þú getur sett olíuna á rakakremið sem bindur rakann betur í búðinni og þú þarft aðeins örfáa litla dropa til að fá góðan árangur! Þessi andlitsolía er samþykkt af húðlæknum og rík af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar. Margir hafa einnig notað þessa olíu sem hár eða skeggolíu og hentar því einnig fyrir karlmenn. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni og Mosfellsbæ. Varan er væntanleg í Bónus Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎 EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af seruminu fæst þar líkaFace Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera 60 ml.
MILT DAGKREM SEM VEITIR FRÁBÆRAN RAKA OG NÆRIR HÚÐINA MEÐ E-VÍTAMÍNI OG ÖÐRUM ANDOXUNAREFNUM SEM GETA HÆGT Á ÖLDRUN
Þetta dagkrem hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð. Við höfum einnig fengið endurgjöf frá konum með mikinn rósroða og virkilega slæma húð eftir barnsburð sem segja að þetta krem hafi algjörlega bjargað sér. Kremið inniheldur fínmalað púður úr endurnýttum argan skeljum sem hefðu annars farið til spillis. Argan skeljarnar eru ríkar af E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem gera húðinni mikið gott. Kakósmjör, aloe vera, og blóðappelsína er einnig að finna í þessu dásemdar kremi en þessi innihaldsefni eru þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. Þegar krukkan þín klárast, þá getur þú verslað áfyllingu í EkóHúsinu að Síðumúla 11. "Þetta unaðslega dagkrem frá UpCircle kom eins og kallað inn í líf mitt 2019 þegar ég var að glíma við ýmis húðvandamál. Húðin mín hefur alla tíð verið ótrúlega þurr. Ef rakakremið gleymdist í ferðalögum þá var ég í vondum málum! Það voru meira að segja byrjaðir að myndast krónískir þurrkublettir framan í mér. Dagkremið frá UpCircle hefur gert kraftaverk fyrir mína húð þar sem ég get núna farið í sturtu án þess að líða eins og sandpappír í framan. Eins hafa bólur ekki gert eins mikið vart við sig eftir að ég byrjaði að nota UpCircle dagkremið (og hreinsimjólkina líka reyndar). Ef þú ert í svipuðum sporum og ég var í, að vera í dauðaleit af hinu fullkomna kremi sem er ekki með afgerandi lykt eða lætur þig klæja eða gefur þér roða í framan, þá er UpCircle dagkremið mjög sennilega fyrir þig!" - einlæg umsögn frá Kristínu Amy, eiganda Tropic. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni og Mosfellsbæ. Varan er væntanleg í Bónus Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎 EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af rakakreminu fæst þar líkaEye Cream with Cucumber, Hyaluronic Acid + Coffee 15 ml.
Augnkrem unnið úr kaffiolíu og þykkni úr hlyntrésbörk
Hefur róandi áhrif, endurnærir og dregur úr bólgum í húð
Hentugt fyrir allar húðtýpur og má nota undir andlitsfarða
Hýalúrónsýra hjálpar til við að þétta og slétta húðina
Framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni og Mosfellsbæ. Varan er væntanleg í Bónus Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎
EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af kreminu fæst þar líka
Night Cream with Hyaluronic Acid + Niacinamide 55 ml.
Milt og ilmefnalaust næturkrem sem er samþykkt af húðlæknum og hentar nær öllum húðtýpum. Þetta árangursríka krem sér um að næra, endurnýja og vernda húðina á meðan við nælum okkur í verðskuldaðan nætursvefn.
Formúlan er rík af níasínamíði (B3 vítamín) sem jafnar húðtón, hyaluronic sýru sem bindur raka og viðheldur þéttleika húðarinnar ásamt rosehip-olíu sem hjálpar húðinni að endurnýja sig. Þetta næturkrem inniheldur einnig kaldpressað og afar andoxunarríkt bláberjaþykkn sem er ríkt af A vítamíni og getur varið húðina gegn útfjólubláum geislum. Einnig er bláberjaþykkni uppspretta pro-retínóls sem vinnur gegn öldrun húðarinnar.
Nú getur þú aldreilis dekrað við húðina og boðið henni upp á þetta margverðlaunaða, 100% vegan næturkrem sem er engu líkt!
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni og Mosfellsbæ. Varan er væntanleg í Bónus Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎
EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af kreminu fæst þar líka
Cleansing Balm with Oat Oil + Vitamin E 55 ml.
Nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu.
Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð.
Við mælum með þessu hreinsikremi af heilum hug en það er framleitt á sjálfbæran máta í UK með náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
- Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
- Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni og Mosfellsbæ. Varan er væntanleg í Bónus Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎Chai Latte Soy Wax Candle
Face Toner with Hyaluronic Acid 100 ml.
ANDLITSTÓNER MEÐ CHAMOMILE: virkilega ferskur og rakagefandi andlitstóner úr chamomile þykkni sem inniheldur einnig græna mandarínu sem endurvekur og frískar upp á húðina. Tónerinn inniheldur hýalúrónsýru sem viðheldur þéttleika húðarinnar og getur dregið úr fínum línum.
Þessi tóner er hentugur fyrir allar húðtýpur og það má nota hann undir andlitsfarða sem og eftir andlitshreinsun. Við mælum klárlega með því að nota hann reglulega yfir daginn til að viðhalda þéttleika og ferskleika húðarinnar!
Ásamt öllum vörum frá UpCircle, þá er tónerinn framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi og inniheldur einungis 99% náttúruleg hágæða hráefni sem sum hver eru endurnýtt til að sporna gegn sóun.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af tónernum fæst þar líka
Face Mask with Kaolin Clay 60 ml.
Mildur en árangursríkur andlitsmaski sem virkar á flestar húðtýpur
Dregur úr bólum og fílapennslum ásamt því að vinna gegn útbrotum
Maskinn gefur húðinni mýkt og gljáa og skilur hana eftir í jafnvægi
Kaolin leir er þekktur fyrir að draga í sig óþarfa olíur og óhreinindi
Unninn úr endurnýttu fínmöluðu púðri úr ólífusteinum
Framleiddur á Englandi á siðferðislegan og sjálfbæran hátt
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni og Mosfellsbæ. Varan er væntanleg í Bónus Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎
EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af maskanum fæst þar líka
Peppermint Body Scrub with Coffee 200 ml.
SPF 25 Steinefna Sólarvörn
Þessi árangursríka steinefna sólarvörn veitir húðinni nauðsynlega vörn gegn ótímabærri öldrun af völdum sólarinnar.
- 100% vegan, án ofbeldis, plastlaus & endurvinnanleg!
- Inniheldur A & E vítamín sem getur örvað kollagen framleiðslu líkamanns