Í tilefni af bleikum október útbjó Kristín Amy, eigandi Tropic, þennan skærbleika ávaxtadrykk með rauðrófu.
Rauðrófan gefur drykknum fallegan lit og jarðarkenndan keim. Banani, jarðarber og ananas bæta við sætu og ávaxtabragði.
UPPSKRIFT
- 1 banani
- 1/3 lítil rauðrófa
- 1 dl. frosin jarðaber
- 2 dl. frosinn ananas
- 1 dl. möndlumjólk
- 1 msk. hempfræ
- 1 dl. kókosvatn
AÐFERÐ
- Öllum hráefnum er blandað saman í blandara eða matvinnsluvél þar til mjúk áferð myndast.
Einnig má bæta Tropic vanillupróteini í drykkinn eftir smekk.
Myndir eru eftir ©Arnór Trausta Kristínarson


