Ég hef verið að prófa mig áfram með rétti sem dóttur minni finnast góðir. Þessi einfalda graskerssúpa sló í gegn og er orðin einn af uppáhaldsréttunum okkar á köldum dögum.
Graskerið gefur súpunni milda sætu og fallegan lit. Engifer og hvítlaukur bæta við kryddkeim og kókosmjólkin gerir áferðina mjúka.
UPPSKRIFT (FYRIR 2-3)
1000 ml. Grænmetissoð (eða vatn og grænmetiskraft)
500 gr. Grasker (Butternut Squash)
1 Laukur
3 Hvítlauksgeirar
2 Meðalstórar gulrætur
1,5 cm. Ferskt engifer
½ dl. Kókosmjólk í dós
Salt og pipar eftir smekk
½ tsk. Túrmerik (valkvætt)
AÐFERÐ
- Ég byrja á því að stilla ofninn á 180° og leyfi honum að hitna á meðan ég sker graskerið í litla bita
- Næst raða ég graskerinu á bökunarpappír, velti því aðeins upp úr ólífuolíu, salti og pipar og baka það síðan í ofninum í 25-35 mínútur
- Á meðan graskerið er í ofninum, þá fínsker ég laukinn og gulræturnar og ríf síðan engifer og hvítlauksgeira
- Næst hita ég grænmetissoð í potti og steiki fínt skorna laukinn, gulræturnar, engiferið og hvítlaukinn upp úr ólífuolíu í öðrum meðal stórum potti
- Yfirleitt krydda ég aðeins grænmetið þegar ég steiki það og bæti svo meira kryddi eftir smekk seinna í ferlinu þegar ég læt súpuna malla
- Ég sameina grænmeti og grænmetissoð í potti og bæti graskerinu við þegar það er orðið bakað og mjúkt í gegn
- Þessu leyfi ég aðeins að malla í potti áður en ég mauka súpuna með töfrasprota eða set í blender
- Þegar ég er búin að blanda öllu saman, þá bæti ég við kókosmjólkinni og krydda súpuna meira ef mér finnst það eiga við
Ég hef tekið eftir því að sumir steikja graskerið eða það rótargrænmeti sem þeir notast við í súpur, en ég tel það bragðbæta súpuna að baka það í ofni. Ef það er síðan afgangur, þá er fullkomið að skella því í kæli og gæða sér á súpunni í hádegismat næsta dag.
