Yfirnóttu hafrar eru þægilegur morgunverður sem má útbúa kvöldið áður. Ég hlakka alltaf til þegar þeir bíða mín í ísskápnum á morgnana!
Þessir hafrar eru einstaklega rjómakenndir. Ég nota yfirleitt kókosmjólk úr dós fyrir þykka áferð en það má auðvitað nota aðra plöntumjólk.
UPPSKRIFT
1 dl. tröllahafrar
1 dl. kókosmjólk
½ dl. grísk sojajógúrt
2 tsk. chia fræ
1 msk hlynsýróp (valkvætt)
dass af salti
Þú getur síðan valið þitt uppáhalds “toppings” en ég notaði hampfræ, kakónibbur, mangó bita, bláber, banana og jarðaber. Ég viðurkenni fúslega að stundum fer auka skvetta af hlynsírópi yfir ávextina.
AÐFERÐ
- Blandaðu öllum hráefnum saman í skál
- Settu síðan blönduna í krukku eða glas
- Settu toppings að eigin vali ofan á
- Geymdu í ísskápnum yfir nóttu
- Njóttu í rólegheitunum
Þess má geta að litla daman mín sem er að verða eins og hálfs árs er yfir sig ánægð með þessa útfærslu af hafragraut!
