Tropic Creatine Monohydrate 300g
kr.1.990 Original price was: kr.1.990.kr.1.592Current price is: kr.1.592.
HREINT KREATÍN ÁN BRAGÐEFNA
100% hreint kreatín monohydrate (200 mesh) sem blandast vel við þeyting, graut, jógúrt, safa eða hvað sem er til að fá þetta smávægilega „kick“ sem allir eru að tala um!
Hvort sem þú ert að æfa af krafti, halda fókus í vinnunni eða einfaldlega að mæta í daginn, þá er kreatín með þér í liði.
Eitt innihaldsefni. Engin aukaefni. Gæði út í gegn.
Leyfileg fullyrðing skv. EU = „Creatine increases physical performance in successive bursts of short-term, high intensity exercise. Beneficial effect with 3g per day.“
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng og Akureyri
KRÓNAN • Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni, Fitjum, Akranesi, Grafarholti, Akrabraut, Norðurhella, Vallakór, Reyðarfjörður og Akureyri
NETTÓ • Granda, Mjódd, Krossmói, Glerártorgi og Egilsstöðum
FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirðir
Í boði sem biðpöntun
Aðrar spennandi vörur
Fiji Feelin Conditioner Bar
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði



Face Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera 60 ml.
MILT DAGKREM SEM VEITIR FRÁBÆRAN RAKA OG NÆRIR HÚÐINA MEÐ E-VÍTAMÍNI OG ÖÐRUM ANDOXUNAREFNUM SEM GETA HÆGT Á ÖLDRUN
Þetta dagkrem hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð. Við höfum einnig fengið endurgjöf frá konum með mikinn rósroða og virkilega slæma húð eftir barnsburð sem segja að þetta krem hafi algjörlega bjargað sér. Kremið inniheldur fínmalað púður úr endurnýttum argan skeljum sem hefðu annars farið til spillis. Argan skeljarnar eru ríkar af E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem gera húðinni mikið gott. Kakósmjör, aloe vera, og blóðappelsína er einnig að finna í þessu dásemdar kremi en þessi innihaldsefni eru þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. Þegar krukkan þín klárast, þá getur þú verslað áfyllingu í EkóHúsinu að Síðumúla 11. "Þetta unaðslega dagkrem frá UpCircle kom eins og kallað inn í líf mitt 2019 þegar ég var að glíma við ýmis húðvandamál. Húðin mín hefur alla tíð verið ótrúlega þurr. Ef rakakremið gleymdist í ferðalögum þá var ég í vondum málum! Það voru meira að segja byrjaðir að myndast krónískir þurrkublettir framan í mér. Dagkremið frá UpCircle hefur gert kraftaverk fyrir mína húð þar sem ég get núna farið í sturtu án þess að líða eins og sandpappír í framan. Eins hafa bólur ekki gert eins mikið vart við sig eftir að ég byrjaði að nota UpCircle dagkremið (og hreinsimjólkina líka reyndar). Ef þú ert í svipuðum sporum og ég var í, að vera í dauðaleit af hinu fullkomna kremi sem er ekki með afgerandi lykt eða lætur þig klæja eða gefur þér roða í framan, þá er UpCircle dagkremið mjög sennilega fyrir þig!" - einlæg umsögn frá Kristínu Amy, eiganda Tropic. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af rakakreminu fæst þar líka
Sjampó með Kókos og Greip
Face Oil with Coffee and Rosehip Oil 30 ml.
MARGVERÐLAUNA OG EIN VINSÆLASTA UPCIRCLE VARAN FRÁ UPPHAFI SEM BÝR YFIR FRÁBÆRRI VIRKNI FYRIR FLESTAR HÚÐTÝPUR
Þessi unaðslega andlitsolía (hét áður andlitsserum) inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af kaffi sem og jojoba-, sea buckthorn og rosehip olíum. Þessi andlitsolía var hönnuð til að örva kollagen framleiðslu húðarinnar og viðhalda þéttleika hennar. Fyrir bestan árangur er best að nota olíuna kvölds og morgna. Þú getur sett olíuna á rakakremið sem bindur rakann betur í búðinni og þú þarft aðeins örfáa litla dropa til að fá góðan árangur! Þessi andlitsolía er samþykkt af húðlæknum og rík af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar. Margir hafa einnig notað þessa olíu sem hár eða skeggolíu og hentar því einnig fyrir karlmenn. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af seruminu fæst þar líka
Bath Salts with Epsom, Sea and Himalayan Pink Salt 350 ml.
Organic Pink Pitaya Powder 100g
HREINT LÍFRÆNT VOTTAÐ PITAYA DUFT ÁN ALLRA AUKAEFNA
Pink pitaya eða bleikur drekaávöxtur er suðrænn ávöxtur sem þekktur er fyrir sinn fallega skærbleika lit og einstaka næringargildi. Ávöxturinn er ríkur af trefjum, C-vítamíni, beta-karótíni og betalain, en það er andoxunarefni sem gefur duftinu sinn fallega lit.
Duftið bætir ekki aðeins heilsu heldur gefur það hvers kyns drykkjum og máltíðum litríkt og girnilegt yfirbragð.
Duftið er unnið úr 100% lífrænt vottuðu pitaya sem hefur verið fryst og þurrkað samkvæmt GMP gæðastöðlum. Varan er án allra aukaefna, inniheldur hvorki rotvarnarefni né hefur verið geislað eða gerjað.
✓ Einungis 100% náttúrulegt duft úr bleikum drekaávexti ✓ Hálf til 2 teskeiðar fyrir fallegan lit og aukin næringarefni ✓ Við seljum Pink Pitaya duft einnig í 500 gr. pokum!

Tropic Organic Acaí Powder 1000g
LÍFRÆNT VOTTUÐ FROSTÞURRKUÐ ACAÍ BER FRÁ AMAZON REGNSKÓGINUM
Þessi dökkfjólubláu ber sem eiga rætur sínar að rekja til Amazon regnskógarins hafa náð miklum vinsældum síðustu ár. Berin eru þekkt fyrir háan andoxunarstuðul en acaí ber eru talin búa yfir 3x meira magni af andoxunarefnum en til dæmis bláber. Duftið er fíngert og hentar vel í þeyting, chia graut eða jógúrtina fyrir aukin vítamín og steinefni. Það sem er í uppáhaldi hjá Tropic teyminu eru acaí skálar.UPPSKRIFT AF ACAÍ SKÁL
1 bolli af blönduðum frosnum berjum 30 ml. plöntuprótein (valkvæmt) 1-2 dl. af plöntumjólk 2 tsk. Tropic acaí duft 1 frosinn banani Öllu er blandað vel saman í blender eða matvinnsluvél. Þar sem mikið er frosið og áferðin verður ískennd að þá þarf blenderinn eða matvinnsluvélin að vera svolítið öflug. Stundum þarf að bæta við meiri vökva eða stoppa og hræra og byrja aftur, til að ná að blanda öllu almennilega saman Fullkomið "toppings" → fersk jarðaber, bananabitar, fersk bláber, hnetusmjör eða möndlusmjör, hempfræ, granóla og kakónibburAÐRIR SÖLUSTAÐIR:
FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði Hagkaup: Garðabæ, Akureyri, Skeifunni, Smáralind, Spöng og KringluCleansing Balm with Oat Oil + Vitamin E 55 ml.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
- Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
- Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.
