ALLAR VÖRUR

Filter
  • Sale! Face Oil with Coffee and Rosehip Oil 30 ml.Quick View
    ALLAR VÖRUR

    Face Oil with Coffee and Rosehip Oil 30 ml.

    Original price was: kr. 4.990.Current price is: kr. 3.992. Setja í körfu

    MARGVERÐLAUNA OG EIN VINSÆLASTA UPCIRCLE VARAN FRÁ UPPHAFI SEM BÝR YFIR FRÁBÆRRI VIRKNI FYRIR FLESTAR HÚÐTÝPUR

    Þessi unaðslega andlitsolía (hét áður andlitsserum) inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af kaffi sem og jojoba-, sea buckthorn og rosehip olíum. Þessi andlitsolía var hönnuð til að örva kollagen framleiðslu húðarinnar og viðhalda þéttleika hennar. Fyrir bestan árangur er best að nota olíuna kvölds og morgna. Þú getur sett olíuna á rakakremið sem bindur rakann betur í búðinni og þú þarft aðeins örfáa litla dropa til að fá góðan árangur!

    Þessi andlitsolía er samþykkt af húðlæknum og rík af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar. Margir hafa einnig notað þessa olíu sem hár eða skeggolíu og hentar því einnig fyrir karlmenn. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu.

    AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
    EkóHúsið 
    Síðumúla 37 & áfylling af seruminu fæst þar líka

  • ALLAR VÖRUR

    Fiji Feelin Conditioner Bar

    Original price was: kr. 2.290.Current price is: kr. 1.832. Skoða vöru

    Fiji Feelin’ hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Fiji Feelin’ hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir kryddaði vanillu keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd.

    Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS.

    Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt.

    Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

    AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

    NETTÓ • Glerártorgi, Mjódd, Egilsstöðum og Granda
    FJARÐARKAUP
    Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði


  • Sale! Fiji Feelin Shampoo BarQuick View
    ALLAR VÖRUR

    Fiji Feelin Shampoo Bar

    Original price was: kr. 2.290.Current price is: kr. 1.832. Setja í körfu

    Fiji Feelin’ sjampóstykkið okkar býr yfir vandaðri formúlu sem hentar flestum hártýpum og skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt með unaðslegum keim af kryddaðri vanillu og kókos.

    “Ég var orðin þreytt á því að prófa trekk í trekk ný sjampóstykki sem skildu hárið mitt eftir fitugt og hreinlega sjúskað. Ég vildi fá svipaða upplifun af hárþvotti eins og með hefðbundin sjampó sem maður kaupir á hárgreiðslustofu nema helst án skaðlegra efna. Ég tók því málin í mínar hendur og til varð Fiji Feelin’!” – Amy stofnandi Tropic

    Fiji Feelin er vegan og cruelty-free eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben.

    Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

    AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

    NETTÓ • Glerártorgi, Mjódd, Egilsstöðum og Granda
    FJARÐARKAUP
    Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði

  • Sale! Face Mask with Kaolin Clay 60 ml.Quick View
    ALLAR VÖRUR

    Face Mask with Kaolin Clay 60 ml.

    Original price was: kr. 5.990.Current price is: kr. 4.792. Setja í körfu

    Mildur en árangursríkur andlitsmaski sem virkar á flestar húðtýpur
    Dregur úr bólum og fílapennslum ásamt því að vinna gegn útbrotum
    Maskinn gefur húðinni mýkt og gljáa og skilur hana eftir í jafnvægi
    Kaolin leir er þekktur fyrir að draga í sig óþarfa olíur og óhreinindi
    Unninn úr endurnýttu fínmöluðu púðri úr ólífusteinum
    Framleiddur á Englandi á siðferðislegan og sjálfbæran hátt

    AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

    EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af maskanum fæst þar líka

  • Sale! Cleansing Balm with Oat Oil and Vitamin E 55 ml.Quick View
    ALLAR VÖRUR

    Cleansing Balm with Oat Oil and Vitamin E 55 ml.

    Original price was: kr. 5.990.Current price is: kr. 4.792. Setja í körfu

    Nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu.

    Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð.

    Við mælum með þessu hreinsikremi af heilum hug en það er framleitt á sjálfbæran máta í UK með náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.

    NOTKUNARLEIÐBEININGAR

    • Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
    • Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.

    AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

    EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af hreinsinum fæst þar líka

  • Sale! Maldives Mood Conditioner BarQuick View
    ALLAR VÖRUR

    Maldives Mood Conditioner Bar

    Original price was: kr. 2.290.Current price is: kr. 1.832. Setja í körfu

    Maldives Mood hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Maldives Mood sjampóstykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir mangó og ananas keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd!

    Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS.

    Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt.

    Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

    AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

    NETTÓ • Glerártorgi, Mjódd, Egilsstöðum og Granda
    FJARÐARKAUP
    Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði

  • Sale! Maldives Mood Shampoo BarQuick View
    ALLAR VÖRUR

    Maldives Mood Shampoo Bar

    Original price was: kr. 2.290.Current price is: kr. 1.832. Setja í körfu

    Maldives Mood sjampóstykkið okkar býr yfir vandaðri formúlu sem hentar flestum hártýpum og skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt með unaðslegum keim af mangó og ananas.

    “Ég var orðin þreytt á því að prófa trekk í trekk ný sjampóstykki sem skildu hárið mitt eftir fitugt og hreinlega sjúskað. Ég vildi fá svipaða upplifun af hárþvotti eins og með hefðbundin sjampó sem maður kaupir á hárgreiðslustofu nema helst án skaðlegra efna. Ég tók því málin í mínar hendur og til varð Maldives Mood!” – Amy stofnandi Tropic

    Maldives Mood er vegan og cruelty-free eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben.

    Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

    AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

    NETTÓ • Glerártorgi, Mjódd, Egilsstöðum og Granda
    FJARÐARKAUP
    Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði

     

Shopping Cart
Scroll to Top