Fjölnota Rakvélar kr.4.490Original price was: kr.4.490.kr.3.143Current price is: kr.3.143.
Blá Spirulína
kr.1.868 – kr.16.990
✓ Einungis 100% náttúruleg blá spirulína! Engin aukaefni viðbætt. ✓ Duftið er laust við allt vont spirulínu bragð. Sem betur fer!
Blá Spirulína (Phycocyanin) er unnin úr vel þekkta þörungnum spirulínu sem er talin ein næringarríkasta fæða sem völ er á. Blá spirulína inniheldur magn af próteini, vítamínum, steinefnum, karótenóíð og andoxunarefnum sem ættu að gefa þér gott „kick“ inn í daginn.
Það er nóg að setja hálfa til heila teskeið af duftinu í þeyting, jógúrt, ofurskál eða drykk til að fá fallegan bláan lit og aukin næringarefni. Við bendum samt á að liturinn passar misvel við aðra liti en það er mjög gaman að prófa sig áfram
JÓLA OFURSKÁL 🎄
Nokkrir frosnir bananar (ég set stundum frosna kúrbít bita á móti til að minnka sætu)
1-2 tsk. af blárri spirulínu
dass af plöntumjólk (ég elska kókosmjólk)
2 msk. af jógúrti
1/2 tsk. af kanil (má sleppa)
1/2 tsk af engifer (má sleppa)
1/2 tsk. af múskat (má sleppa)
Allt er blandað saman í öflugum blandara eða matvinnsluvél. Athugið að þar sem unnið er með mikið frosið hráefni þá gæti þurft að stoppa inn á milli og hræra með skeið eða jafnvel bæta smá meiri vökva. Toppaðu skálina með því sem þig girnist en við mælum með piparköku crumble eða jafnvel bókhveiti granóla til að lauma enn fleiri næringarefnum að!
Þessi bláa ofurskál slær líka rækilega í gegn hjá flestum aldurshópum: sjá hér en fleiri uppskriftir má síðan finna hér.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri. Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Smáralind, Spöng og Kringlunni
Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru
INNIHALDSEFNI: Phycocyanin frá grænni spirulínu ÞYNGD: 40 gr. /
LITUR: Dökk blár BRAGÐ: Neutral GEYMSLA:Loftþétt ílát og ekki í sólarbirtu en við stofuhita. HILLUTÍMI: 2 ár frá framleiðslu SKAMMTUR: 1 teskeið (o.5 gramm)
Bláa spirulínan kemur í loftþéttum poka þar sem að það eru engin rotvarnarefni né önnur aukaefni sem stuðla að lengri líftíma og því getur duftið þornað upp ef ekki er geymt það rétt. Ef duftið þornar upp þá er það enn nothæft, við mælum þá með því að bleyta aðeins til að leysa það upp og nota svo.
ATHUGIÐ: Þessi vara flokkast sem fæðubótarefni og er ráðlagður dagskammtur 1-2 eða tæplega 5 gr. Ekki nota meira en ráðlagt er. Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu og heilbrigðan lífsstíl. Ef þú ert barnshafandi eða með barn á brjósti er best að velja fæðubótarefni í samráði við þinn lækni.
kr.4.890Original price was: kr.4.890.kr.3.668Current price is: kr.3.668.
Milt og ilmefnalaust næturkrem sem er samþykkt af húðlæknum og hentar nær öllum húðtýpum. Þetta árangursríka krem sér um að næra, endurnýja og vernda húðina á meðan við nælum okkur í verðskuldaðan nætursvefn.
Formúlan er rík af níasínamíði (B3 vítamín) sem jafnar húðtón, hyaluronic sýru sem bindur raka og viðheldur þéttleika húðarinnar ásamt rosehip-olíu sem hjálpar húðinni að endurnýja sig. Þetta næturkrem inniheldur einnig kaldpressað og afar andoxunarríkt bláberjaþykkn sem er ríkt af A vítamíni og getur varið húðina gegn útfjólubláum geislum. Einnig er bláberjaþykkni uppspretta pro-retínóls sem vinnur gegn öldrun húðarinnar.
Nú getur þú aldreilis dekrað við húðina og boðið henni upp á þetta margverðlaunaða, 100% vegan næturkrem sem er engu líkt!
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni og Mosfellsbæ. Varan er væntanleg í Bónus Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎
EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af kreminu fæst þar líka
kr.4.890Original price was: kr.4.890.kr.3.423Current price is: kr.3.423.
Nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu.
Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð.
Við mælum með þessu hreinsikremi af heilum hug en það er framleitt á sjálfbæran máta í UK með náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni og Mosfellsbæ. Varan er væntanleg í Bónus Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎
kr.2.290Original price was: kr.2.290.kr.1.718Current price is: kr.1.718.
Fiji Feelin' sjampóstykkið okkar býr yfir vandaðri formúlu sem hentar flestum hártýpum og skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt með unaðslegum keim af kryddaðri vanillu og kókos.
"Ég var orðin þreytt á því að prófa trekk í trekk ný sjampóstykki sem skildu hárið mitt eftir fitugt og hreinlega sjúskað. Ég vildi fá svipaða upplifun af hárþvotti eins og með hefðbundin sjampó sem maður kaupir á hárgreiðslustofu nema helst án skaðlegra efna. Ég tók því málin í mínar hendur og til varð Fiji Feelin'!" - Amy stofnandi Tropic
Fiji Feelin er vegan og cruelty-free eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben.Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni og Mosfellsbæ. Varan er væntanleg í Bónus Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎
kr.1.990Original price was: kr.1.990.kr.995Current price is: kr.995.
Cancún Caress hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Cancún Caress hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og fær mildan keim af kókos og límónu
Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS! Hárnæringarstykkin eru handgerð í USA.Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
kr.4.890Original price was: kr.4.890.kr.3.668Current price is: kr.3.668.
MILT DAGKREM SEM VEITIR FRÁBÆRAN RAKA OG NÆRIR HÚÐINA MEÐ E-VÍTAMÍNI OG ÖÐRUM ANDOXUNAREFNUM SEM GETA HÆGT Á ÖLDRUN
Þetta dagkrem hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð. Við höfum einnig fengið endurgjöf frá konum með mikinn rósroða og virkilega slæma húð eftir barnsburð sem segja að þetta krem hafi algjörlega bjargað sér.
Kremið inniheldur fínmalað púður úr endurnýttum argan skeljum sem hefðu annars farið til spillis. Argan skeljarnar eru ríkar af E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem gera húðinni mikið gott. Kakósmjör, aloe vera, og blóðappelsína er einnig að finna í þessu dásemdar kremi en þessi innihaldsefni eru þekkt fyrir húðróandi áhrif.
Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. Þegar krukkan þín klárast, þá getur þú verslað áfyllingu í EkóHúsinu að Síðumúla 11.
"Þetta unaðslega dagkrem frá UpCircle kom eins og kallað inn í líf mitt 2019 þegar ég var að glíma við ýmis húðvandamál. Húðin mín hefur alla tíð verið ótrúlega þurr. Ef rakakremið gleymdist í ferðalögum þá var ég í vondum málum! Það voru meira að segja byrjaðir að myndast krónískir þurrkublettir framan í mér. Dagkremið frá UpCircle hefur gert kraftaverk fyrir mína húð þar sem ég get núna farið í sturtu án þess að líða eins og sandpappír í framan. Eins hafa bólur ekki gert eins mikið vart við sig eftir að ég byrjaði að nota UpCircle dagkremið (og hreinsimjólkina líka reyndar). Ef þú ert í svipuðum sporum og ég var í, að vera í dauðaleit af hinu fullkomna kremi sem er ekki með afgerandi lykt eða lætur þig klæja eða gefur þér roða í framan, þá er UpCircle dagkremið mjög sennilega fyrir þig!" - einlæg umsögn frá Kristínu Amy, eiganda Tropic.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni og Mosfellsbæ. Varan er væntanleg í Bónus Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎
EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af rakakreminu fæst þar líka
kr.4.490Original price was: kr.4.490.kr.3.143Current price is: kr.3.143.
Þetta er sennilega síðasta rakvélin sem þú þarft að kaupa! Þú sparar töluvert til lengri tíma og jörðin auðvitað líka.
Rakvélin kemur í kraft pappír öskju og henni fylgja með 5 rakvélablöð en eitt blað dugir í 5-8 skipti, jafnvel fleiri.
Áfylling af blöðum er hægt að versla hér.
Ath. að vörumyndin er rose gold en því miður er hún búin á lager. Við eigum bara royal golden sem er aðeins gylltari :)