Cancún Caress hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Cancún Caress hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og fær mildan keim af kókos og límónu
Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS! Hárnæringarstykkin eru handgerð í USA.
Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru
Náttúrulegt hárnæringarstykki sem nærir og mýkir hárið
Er án allra ilmefna og því fullkomið fyrir viðkvæma
Án SLS, parabena og annara skaðlegra efna
Skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt
Handgert í USA
Passið að hafa hárnæringuna liggjandi þar sem næst að leka af henni svo hún þorni á milli skipa. Í stöðugri bleytu á hún í hættu á að skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska!
8 AF HVERJUM 10 BORÐA EKKI NÆGILEGA MIKIÐ AF GRÆNFÆÐI, ÞESS VEGNA HÖNNUÐU YOUR SUPER ÞESSA MÖGNUÐU VÖRU
INNIHALDSEFNI: Hveitigras*, Bygggras*, Baobab*, Moringa*, Chlorella* og Spirulína* (*lífrænt)
Super Green auðveldar þér að efla inntöku á næringarríku grænfæði en þú setur einfaldlega eina teskeið í vatn, jógúrt, þeytinginn, safa eða hvað svo sem þig girnist fyrir aukin næringarefni og heilsufarslega ávinninga.
Super Green inniheldur fjölbreytt magn vítamína og steinefna
Super Green inniheldur einnig trefjar, prótein & andoxunarefni
Blandan var hönnuð af reyndum næringarfræðingum til að tryggja bestu samsetningu út frá virkni hráefna.
Byrjaðu daginn á einföldum grænum þeyting, eins og þessum hér.AÐRIR SÖLUSTAÐIR:Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind og Kringlu.
Vegan Búðin Faxafeni 14
Bleikur drekaávöxtur er suðrænn ávöxtur sem er næringarríkur og inniheldur til dæmis trefja, C-vítamín, beta-karótín og betalain en betalain útskýrir þann fallega lit sem duftið býr yfir. Ekki bara veitir duftið kroppnum heilsufarslega ávinninga heldur gerir máltíðina bleika og girnilega!
✓ Engin aukaefni né neinum óþarfa viðbætt
✓ Einungis 100% náttúrulegt duft úr bleikum drekaávexti
✓ Gefur fallegan bleikan lit sem hægt er að nota í bakstur eða matargerð
✓ Hálf til 2 teskeiðar fyrir fallegan lit og aukin næringarefni
✓ Við seljum Pink Pitaya duft einnig í 500 gr. pokum!
Hvað með að gera einhyrninga latte sjá hér eða þú getur jafnvel gert bleikar bollakökur sem kæmu til með að slá í gegn í næstu veislu eins og sjá má hér.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni, Hvaleyrarbraut og Akureyri.
Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Spöng, Eiðistorgi, Akureyri, Smáralind og Kringlu.
Fiji Feels sjampó- og hárnæringarstykkið vinna fullkomlega saman við að gera hárið þitt sem líflegast, heilbrigðast og að auki silkimjúkt. Stykkin búa yfir unaðslegum ilm af kryddaðri vanillu og kókos sem fær mann til að hlakka til næsta hárþvottar!
Stykkin eru auðvitað vegan og siðferðisleg (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaus, pálmolíulaus, án SLS og án paraben.Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Maldives Mood hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Maldives Mood sjampóstykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir mangó og ananas keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd!
Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS.
Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt.
Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Náttúrulegt hársápustykki sem nærir og mýkir hárið
Er án allra ilmefna og því fullkomið fyrir viðkvæma
Skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt
Inniheldur einungis 5 hráefni
Án SLS, parabena og aðra skaðlegra efna
Handgert í USA
Passið að hafa hársápuna liggjandi þar sem næst að leka af henni svo hún þorni á milli skipa. Í stöðugri bleytu á hún í hættu á að skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska!
Nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu.
Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð.
Við mælum með þessu hreinsikremi af heilum hug en það er framleitt á sjálfbæran máta í UK með náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.