Pink Pitaya duft
500 GR. POKAR Á 50% AFSLÆTTI SÖKUM STIMPILS (15.09.23) EN Í FÍNU LAGI MEÐ HRÁEFNIÐ EFTIR ÞANN TÍMA
Bleikur drekaávöxtur er suðrænn ávöxtur sem er næringarríkur og inniheldur til dæmis trefja, C-vítamín, beta-karótín og betalain en betalain útskýrir þann fallega lit sem duftið býr yfir. Ekki bara veitir duftið kroppnum heilsufarslega ávinninga heldur gerir máltíðina bleika og girnilega! ✓ Engin aukaefni né neinum óþarfa viðbætt ✓ Einungis 100% náttúrulegt duft úr bleikum drekaávexti ✓ Gefur fallegan bleikan lit sem hægt er að nota í bakstur eða matargerð ✓ Hálf til 2 teskeiðar fyrir fallegan lit og aukin næringarefni ✓ Við seljum Pink Pitaya duft einnig í 500 gr. pokum! Hvað með að gera einhyrninga latte sjá hér eða þú getur jafnvel gert bleikar bollakökur sem kæmu til með að slá í gegn í næstu veislu eins og sjá má hér.Blá Spirulína
✓ Einungis 100% náttúruleg blá spirulína! Engin aukaefni viðbætt.
✓ Duftið er laust við allt vont spirulínu bragð. Sem betur fer!
Blá Spirulína (Phycocyanin) er unnin úr vel þekkta þörungnum spirulínu og það er nóg að setja hálfa til 1 tsk. af duftinu í þeyting, jógúrt, drykk, deigið eða hvað sem þig girnist fyrir fallegan lit og aukin næringarefni.
Við mælum til dæmis með því að gera bláa ofurskál sjá hér.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.
Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Smáralind og Kringlunni
Vegan Búðin Faxafeni 14

Matcha duft
Ertu að leita leiða til að fá betri fókus og jafnari orku yfir daginn? Þá ráðleggjum við þér að prófa þetta 100% náttúrulega og hreina matcha duft frá Rawnice
Duftið er fínmalað úr japönskum grænte laufum og inniheldur ríkulegt magn andoxunarefna, vítamína og steinefna til að styðja við almenna heilsu. Matcha er þekkt fyrir að vera ríkt af andoxunarefnum en inniheldur u.þ.b. 3x meira magn af því en grænt te.
Duftið er án allra aukaefna og engum sætugjafa viðbætt. Þú notar einfaldlega 1 tsk. til að útbúa matcha latte eða te. Eins getur þú notað matcha í smoothie, baksturinn eða matargerð en duftið gefur fallegan daufan grænan lit.


MATCHA HEFUR VERIÐ TENGT VIÐ:
• AUKIÐ ORKUSTIG • BETRI FÓKUS & AFKÖST • ÞYNGDARSTJÓRNUN • STERKARA ÓNÆMISKERFI • HRAÐARI BRENNSLA • MINNI STREITA Á NÝRNAHETTUR AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Krónan • Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.Curcumin 50 gr.
100% HREINT KÚRKÚMÍN DUFT SEM ER VIRKA EFNIÐ Í TÚRMERIK
Þetta svokallaða krydd eða ofurjurt eins og við köllum hana, hefur verið notuð í ayurveda og aðrar náttúrulækningar í þúsundir ára. Kúrkúmín hefur sterka andoxunareiginleika sem getur haft jákvæð áhrif á ónæmiskerfið. Kryddið er þekkt fyrir að geta dregið úr krónískum bólgum í líkamanum sem er mikilvægt til að vinna gegn krónískum sjúkdómum. Eins hefur kúrkúmín hjálpað mörgum sem eru að glíma við liðagigt með því að draga úr verkjum og stífleika í liðunum. Heilsufarslegur ávinningur kúrkúmín er talinn tengja við heilaheilsu, sjónheilsu og nýrnaheilsu. Athugið að eitt og sér getur líkaminn átt erfitt með upptöku á kúrkúmín en ef þú setur smá svartan pipar á móti, þá eykur það upptökuna og ávinning sömuleiðis 💛ÞÚ SETUR EINFALDLEGA 1 TSK. Í FLÓAÐA MJÓLK, VATN, ÞEYTING, BAKSTURINN, GRAUTINN, JÓGÚRTIÐ EÐA HVAÐ SEM ER.
DUFTIÐ GEFUR FALLEGAN GULAN LIT OG GETUR VIRKAÐ SEM NÁTTÚRULEGUR MATARLITUR.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Krónan: SkeifunniActivated Charcoal duft
- Lengi verið notað fyrir náttúrulega hreinsun, t.d. eftir drykkju eða óhollan mat.
- 1 tsk. af Activated Charcoal í vatn með sítrónu- og engifersafa fyrir veglegt "pick me up"
- Virkar sem náttúrulegur svartur matarlitur í ofurskálar, bakstur og matargerð
- Margir hafa notað activated charcoal í DIY andlitsmaska og tannhvítun
- Hvað með að fara út fyrir þetta hefðbundna og gera svartar bollakökur eins og þessar hér.
- Það er síðan ákveðin tískubylgja í gangi þar sem fólk er mikið að baka svart brauð! Þú getur séð uppskrift af því til dæmis hér.
Vanillu Prótein 1 kg.
BRAGÐGOTT VEGAN PRÓTEIN ÁN GERVISÆTU MEÐ DÁSAMLEGU VANILLU BRAGÐI OG HINT AF KARAMELLU
Þetta prótein er ekki einungis 100% vegan og bragðgott, heldur einnig ketóvænt, án GMO, glútenlaust og án soja. Próteinið er framleitt í Svíþjóð og inniheldur meðal annars: Rís- og baunaprótein: sem er öflugur og auðmeltanlegur próteingjafi. Inulin trefja: til að næra góðu bakteríurnar í þarmaflórunni Meltingarensín: til að auka upptöku næringarefna í líkamanum CocoMineral®, avókadó olíu og hörfræ olíu.Acaí duft 60 gr.
HREINT ACAÍ DUFT FRÁ AMAZON REGNSKÓGINUM
Settu hálfa til eina teskeið í þeytinginn, jógúrtið, ofurskálina eða hvað sem þig girnist fyrir fallegan fjólubláan lit þökk sé anthocyanins. Anthocyanins vinna sem andoxunarefni í líkamanum en acaí ber eru vel auðug af andoxunarefnum.
Nafnið á þessum berjum er jafnvel erfiðara að bera fram en GiF. (Er það JIFF eða G.I.F??!!)
Hér er smá kennsla þess nefnis:
PS. Ýttu hér til að hlusta!
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.
Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind og Kringlu.
Butterfly Pea duft
Butterfly Pea eða fiðrildablómate býr yfir fallegum bláum lit sem er skemmtilegt að nota í ýmsa matargerð en í snertingu við sítrus verður duftið fjólublátt. Þessi heillandi eiginleiki hefur gert duftið vinsælt á meðal barþjóna, bakara og matreiðslumanna víðs vegar í heiminum.
Butterfly Pea er ríkt af andoxunarefnum en andoxunarefni eru talin geta styrkt ónæmiskerfið. Butterfly Pea hefur líka verið tengt við bætta hár- og húðheilsu sem og betra jafnvægi í blóðsykri og þyngdarstjórnun.
Butterfly Pea er hægt að bæta auðveldlega í mataræðið með því að blanda því í ofurskálar, smoothie, jógúrt, límonaði eða sem te eins og er algengast!
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.
Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Smáralind, Spöng og Kringlunni
Fyrirtæki geta verslað 500 gr. poka í heildsölu og sendist fyrirspurn á [email protected] 💙

Rauðrófuduft – 50 gr.
FÁÐU HEILSUFARSLEGU ÁVINNINGA RAUÐRÓFUNNAR MEÐ ÞESSU NÁTTÚRULEGA RAUÐRÓFUDUFTI
Rauðrófa er afar næringarrík og inniheldur mikilvæg næringarefni á borð við trefjar, fólat (B9 vítamín), mangan, járn, C-vítamín og kalíum. Rauðrófan er einnig þekkt fyrir að innihelda lítið af hitaeiningum. Mikið af íþróttafólki innbyrðir rauðrófu fyrir aukinn árangur en talið er að rauðrófan geti aukið úthald og súrefnisupptöku í blóði. ✓ Í duftinu eru engin aukaefni né sætugjafar ✓ Einungis 100% náttúrulegt duft úr rauðrófu ✓ Gefur fallegan rauðan lit án þess að allt eldhúsið verði rautt ✓ Fullkomið í jógúrt, smoothie, bakstur og bara nefndu það!Rósgyllt Skeið
Falleg rósagyllt skeið sem tekur ofurskála upplifunina á næsta plan!
SMÁATRIÐIN
Efni: Brass
Lend: 20 cm / 7.8"
Þyngd: 65g / 2.3 Oz
MEÐHöNDLUN:
Best er að vaska upp skeiðina og pólera í kjölfarið til að forðast vatnsbletti og mælum ekki með því að láta hana liggja í bleyti yfir nóttu til að eyðileggja ekki áferð.
Græn Spirulína 500 gr.
Græn spirulína er ein næringarríkasta fæða sem völ er á en um 60-70% þessara þörungs er prótein og inniheldur allar nauðsynlegu amínósýrurnar!
Græn spirulína er sneisafull af öðrum mikilvægum næringarefnum á borð við járn, B1, B2 og B3-vítamín, magnesíum, beta karótín, chlorophyll og omega fitusýrum.
Við mælum heilshugar með því að bæta 1 tsk. af grænu spirulínu dufti í þeytinginn, chai grautinn, jógúrtið eða safann fyrir aukna næringu og fullt af heilsufarslegum ávinningum!
