Sendum pantanir yfir 5000 kr. frítt með Dropp eða í næsta póstbox 🤍 Loka

  • VERSLA
    Screenshot 2024-09-18 at 10.48.37

    ALLAR VÖRUR

    Tropic=Vorur-207

    LJÚFMETI

    your-superfoods-superfood-mix-single-mix-power-matcha-8718868809025-171011-organic-super-foods-17835632656

    HEILSUVÖRUR

    Lifestyle-3_EyeRoller+EyeCream_LR

    SNYRTIVÖRUR

  • UPPSKRIFTIR
  • BLOGG
  • GJAFAVARA
  • ÚTSALA
Tropic Tropic
Login / Register
1 item / kr.11.490
Menu
Tropic Tropic
1 item / kr.11.490
“Eau De Parfum Santelle” hefur verið bætt í körfuna. Skoða körfu
Sold out
Click to enlarge
Heim LJÚFMETI SÚKKULAÐI Coconut Bar 50g
Organic Matcha 1000 gr.
Organic Matcha 1000 gr. kr.26.990
Back to products
Eau De Parfum Flaura
Eau De Parfum Flaura kr.11.490

Coconut Bar 50g

kr.490

HANDGERT SÚKKULAÐISTYKKI SEM BRAGÐAST EINS OG BOUNTY NEMA BARA BETRA

Fyllingin er dúnmjúk með kókos og toffee. Fullkomið fyrir kósýkvöldið eða með kaffinu! Allt súkkulaði frá Vegan Delights er án pálmolíu og 100% vegan. Þau nota líka alltaf cocoa sem er framleitt á ábyrgan hátt með sjálfbærni að leiðarljósi

AÐRIR SÖLUSTAÐIR

HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og Akureyri

Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru

Ekki til á lager

Vörunúmer: VDB3 Flokkar: ALLAR VÖRUR, GJAFAVARA, LJÚFMETI, SÚKKULAÐI, VEGAN DELIGHTS
  • Lýsing
Lýsing

INNIHALDSEFNI

Vegan Choc: (sugar, cocoa butter, cocoa paste, rice powder (rice syrup, rice flour), inulin, emulsifier (SOY-LECITHIN), natural cocoa flavor, natural vanilla flavor). Coconut flakes, coconut cream, golden syrup, sugar, glucose, sea salt, vegan caramel flavor.

May contain traces of almond, pistachio, walnut, hazelnut, peanut.

NÆRINGARGILDI PER 100g

Energi/Energy: 2092 kj/500 kcal
Fett/Fat: 19.98 g
– varav mättat fett/of which saturated fat: 10.2 g
Kolhydrat/Carbohydrate: 43.73 g
– varav sockerarter/of which sugar: 35.43 gr
Protein: 2.3 g Salt: 0.9 g
Fiber: 4.56 g

Þyngd:  50g

Aðrar spennandi vörur

Face Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera 60 ml.

kr.5.990

MILT DAGKREM SEM VEITIR FRÁBÆRAN RAKA OG NÆRIR HÚÐINA MEÐ E-VÍTAMÍNI OG ÖÐRUM ANDOXUNAREFNUM SEM GETA HÆGT Á ÖLDRUN

Þetta dagkrem hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð. Við höfum einnig fengið endurgjöf frá konum með mikinn rósroða og virkilega slæma húð eftir barnsburð sem segja að þetta krem hafi algjörlega bjargað sér. Kremið inniheldur fínmalað púður úr endurnýttum argan skeljum sem hefðu annars farið til spillis. Argan skeljarnar eru ríkar af E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem gera húðinni mikið gott. Kakósmjör, aloe vera, og blóðappelsína er einnig að finna í þessu dásemdar kremi en þessi innihaldsefni eru þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. Þegar krukkan þín klárast, þá getur þú verslað áfyllingu í EkóHúsinu að Síðumúla 11. "Þetta unaðslega dagkrem frá UpCircle kom eins og kallað inn í líf mitt 2019 þegar ég var að glíma við ýmis húðvandamál. Húðin mín hefur alla tíð verið ótrúlega þurr. Ef rakakremið gleymdist í ferðalögum þá var ég í vondum málum! Það voru meira að segja byrjaðir að myndast krónískir þurrkublettir framan í mér. Dagkremið frá UpCircle hefur gert kraftaverk fyrir mína húð þar sem ég get núna farið í sturtu án þess að líða eins og sandpappír í framan. Eins hafa bólur ekki gert eins mikið vart við sig eftir að ég byrjaði að nota UpCircle dagkremið (og hreinsimjólkina líka reyndar). Ef þú ert í svipuðum sporum og ég var í, að vera í dauðaleit af hinu fullkomna kremi sem er ekki með afgerandi lykt eða lætur þig klæja eða gefur þér roða í framan, þá er UpCircle dagkremið mjög sennilega fyrir þig!" - einlæg umsögn frá Kristínu Amy, eiganda Tropic. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af rakakreminu fæst þar líka  
Setja í körfu
Quick view

HAND + BODY DUO GIFT SET

kr.6.390
  • Fullkomið DUO í gjafapakkann!
  • Hand + líkamssápa og Hand + líkamskrem
  • Náttúrulegar og mildar vörur með frábæra virkni
  • Hentar öllum húðtýpum og sérstaklega gott fyrir þurra húð
    
Setja í körfu
Quick view
-50%

Rakvélablöð 10 stk.

kr.890 Original price was: kr.890.kr.445Current price is: kr.445.

Hágæða rakvélablöð úr ryðfríu stáli
Fullkomnar í fjölnota rakvélarnar 
Koma 10x saman í pakka

Setja í körfu
Quick view
Sold out

Face Toner with Hyaluronic Acid 100 ml.

kr.4.990

FÁANLEGT Í BIÐPÖNTUN, NÝ SENDING VÆNTANLEG VIKUNA 21.-25. JÚLÍ

ANDLITSTÓNER MEÐ CHAMOMILE: virkilega ferskur og rakagefandi andlitstóner úr chamomile þykkni sem inniheldur einnig græna mandarínu sem endurvekur og frískar upp á húðina. Tónerinn inniheldur hýalúrónsýru sem viðheldur þéttleika húðarinnar og getur dregið úr fínum línum. Þessi tóner er hentugur fyrir allar húðtýpur og það má nota hann undir andlitsfarða sem og eftir andlitshreinsun. Við mælum klárlega með því að nota hann reglulega yfir daginn til að viðhalda þéttleika og ferskleika húðarinnar! Ásamt öllum vörum frá UpCircle, þá er tónerinn framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi og inniheldur einungis 99% náttúruleg hágæða hráefni sem sum hver eru endurnýtt til að sporna gegn sóun. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af tónernum fæst þar líka
Skoða vöru
Quick view

Tropic Vanilla Protein 500g

kr.3.790

TROPIC PLÖNTUPRÓTEIN MEÐ VANILLUBRAGÐI

Í þessu próteini er að finna auðmeltanlega próteingjafa eða bauna- og rísprótein sem líkaminn á auðvelt með að vinna úr. Í hverjum skammti er 22 gr. af próteini og formúlan er auðguð með trefjum og meltingarensímum til þess að stuðla að bættri meltingu. Við notum avókadó þykkni til þess að gera áferðina "rjómakennda" sem verður til þess að próteindrykkirnir verða talsvert grinilegri. Það sem gerir okkar prótein sérstakt er að við notum stevíu sem sætugjafa og sniðgöngum alveg gerviefni á borð við → sucralose og acesulfam-K Þar af leiðandi er próteinið ekki of sætt og ekki með óþarfa eftirbragð. Próteinið er einnig glútenlaust, án GMO og 100% vegan

EINFALDUR VANILLU SMOOTHIE

  • 1 banani
  • 1 bolli af frosnum jarðaberjum
  • 1 bolli af frosnum ananas bitum
  • 30 ml. vanilluprótein (full scoop er 50 ml.)
  • 1 msk. möndlusmjör
  • dass af plöntumjólk
  • 2 tsk. acaí duft
  • hægt að bæta hampfræjum eða chia (valkvætt)
Allt sett saman í blandari þar til mjúk áferð myndast

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði KRÓNAN • Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni, FITJUM og Akureyri. HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og Akureyri
Setja í körfu
Quick view
Sold outNew

Organic Pink Pitaya Powder 100g

kr.4.990

HREINT LÍFRÆNT VOTTAÐ PITAYA DUFT ÁN ALLRA AUKAEFNA

Pink pitaya eða bleikur drekaávöxtur er suðrænn ávöxtur sem þekktur er fyrir sinn fallega skærbleika lit og einstaka næringargildi. Ávöxturinn er ríkur af trefjum, C-vítamíni, beta-karótíni og betalain, en það er andoxunarefni sem gefur duftinu sinn fallega lit.

Duftið bætir ekki aðeins heilsu heldur gefur það hvers kyns drykkjum og máltíðum litríkt og girnilegt yfirbragð.

Duftið er unnið úr 100% lífrænt vottuðu pitaya sem hefur verið fryst og þurrkað samkvæmt GMP gæðastöðlum. Varan er án allra aukaefna, inniheldur hvorki rotvarnarefni né hefur verið geislað eða gerjað.

✓ Einungis 100% náttúrulegt duft úr bleikum drekaávexti ✓ Hálf til 2 teskeiðar fyrir fallegan lit og aukin næringarefni ✓ Við seljum Pink Pitaya duft einnig í 500 gr. pokum!
Skoða vöru
Quick view

Organic Green Spirulina 500g

kr.6.490
SPIRULÍNA ER EIN PRÓTEINRÍKASTA FÆÐA SEM TIL ER EN UM 60-70% ÞESSARA ÞÖRUNGS ER PRÓTEIN Spirulínan er jafnframt sneisafull af mikilvægum næringarefnum og ein af næringarríkustu ofurfæðum sem finnast í heiminum. Inniheldur meðal anars járn, B1, B2 og B3-vítamín, magnesíum, beta karótín, chlorophyll og omega fitusýrur. Spirulínan er ræktuð í hreinum ferskvatnslaugum og fær orku frá sólarljósi til vaxtar. Spirulínan er lágsmarksunnin, aðeins náttúrulega þurrkað til að mynda fíngert duft. Passar vel í þeyting, jógúrt, drykkinn, yfirnóttu hafra eða chia graut.
Setja í körfu
Quick view
Sold out

Cleanse, Tone + Moisturise Set

kr.13.590

FULLKOMIÐ GJAFASETT SEM INNIHELDUR ÞRJÁR VINSÆLAR HÁGÆÐA HÚÐVÖRUR FRÁ ELSKU UPCIRCLE

RAKAKREM MEÐ ARGAN SKELJUM: Þetta unaðslega og margverðlaunaða andlitskrem er okkar vinsælasta UpCircle vara en kremið veitir húðinni góðan raka og nærir hana einstaklega vel. Kremið hentar öllum húðtýpum en er alveg sérstaklega gott fyrir þurra húð. Rakakremið inniheldur fínmalað púður úr argan skeljum sem er ríkt af E-vítamíni og andoxunarefnum. Kremið inniheldur einnig kakósmjör, aloe vera og blóðappelsínu sem eru þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. HREINSIBALM MEÐ APRÍKÓSU: er virkilega árangursríkt, nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu. Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð. ANDLITSTÓNER MEÐ CHAMOMILE: virkilega ferskur og rakagefandi andlitstóner úr chamomile þykkni sem inniheldur einnig græna mandarínu sem endurvekur og frískar upp á húðina. Tónerinn inniheldur hýalúrónsýru sem viðheldur þéttleika húðarinnar og getur dregið úr fínum línum. Þessi tóner er hentugur fyrir allar húðtýpur og það má nota hann undir andlitsfarða sem og eftir andlitshreinsun. Við mælum klárlega með því að nota hann reglulega yfir daginn til að viðhalda þéttleika og ferskleika húðarinnar! Við mælum með þessm vörum af heilum hug en þær eru framleiddar á sjálfbæran máta í UK með 99-100% náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.
Skoða vöru
Quick view
2025 TROPIC. ALLUR RÉTTUR ÁSKILINN.
Skilmálar - payments
  • Menu
  • Categories
  • HEILSUVÖRUR
  • GJAFAVARA
  • HÚÐVÖRUR
  • HÁRVÖRUR
  • PRÓTEIN
  • OFURFÆÐI
  • SÚKKULAÐI
  • ILMVÖTN
  • VÖRUMERKI
  • VERSLA
  • UPPSKRIFTIR
  • BLOGG
  • GJAFAVARA
  • ÚTSALA
  • Login / Register
Facebook Instagram
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Lestu um hvernig við notum vafrakökur.
More info Accept
Start typing to see products you are looking for.
Shop
1 item Cart
My account