100% Natural Ingredients: Cocos Nucifera Oil (Coconut Oil)*, Zea Mays Starch (Corn Starch), Helianthus Annuus Seed Cera (Sunflower Seed Wax), Myrica Pubescens Fruit Cera (Bayberry Wax), Triethyl Citrate, Olea Europaea Fruit Oil (Olive Oil)*, Cetyl Esters, Coco-Caprylate/Caprate, Glyceryl Caprylate, Opuntia Ficus-Indica Seed Oil (Prickly Pear Oil), Macadamia Seed Oil, Polyglyceryl-6 Esters Behenate, Magnesium Hydroxide, Sodium Caproyl/Lauroyl Lactylate, Zinc Oxide, Citrus Aurantium Bergamia Peel Oil (Bergamont Peel Oil), Limonene, Citrus Aurantifolia Peel Oil (Key Lime Peel Oil), Caprylic/Capric Triglyceride, Tocopherol, Helianthus Annuus Seed Oil (Sunflower Seed Oil)*, Linalool, Polyhydroxystearic Acid, Citral, Geraniol. *Organic Ingredients.
“Rakvélablöð 10 stk.” hefur verið bætt í körfuna. Skoða körfu
Deodorant Refill with Macadamia + Bergamot
kr.2.290 Original price was: kr.2.290.kr.1.374Current price is: kr.1.374.
NÚ ER LOKSINS HÆGT AÐ VERSLA STAKA ÁFYLLINGU AF VINSÆLA SVITALYKTAREYÐINUM FRÁ UPCIRCLE
Svitalyktareyðirinn er auðgaður með makadamíuolíu sem nærir og veitir raka og gerir það að verkum að handakrikinn helst mjúkur yfir daginn. Svitalyktareyðirinn býr yfir frískandi sítrusilm af bergamot og límónu sem og endurunninni kaktusfíkju sem hefur bólgueyðandi eiginleika og róar húðertingu. Þessi svitalyktareyðir hentar öllum húðtýpum en þá er hann tilvalinn fyrir viðkvæma húð.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
Smelltu hér til að sjá myndband af Anna, meðstofnanda UpCircle útskýra hvernig á að setja áfyllinguna í svitalyktareyðirinn og hverni skal nota hann
UPCIRCLE LOFORÐIÐ
100% niðurbrjótanlegar pakkningar – vistvæn og plastlaus lausn.
Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru
Á lager
Vörunúmer:
UC41-R
Flokkar: ALLAR VÖRUR, HÚÐVÖRUR, SNYRTIVÖRUR, UPCIRCLE, ÚTSALA
Lýsing
Aðrar spennandi vörur
HAND + BODY DUO GIFT SET
Conditioner Crème with Rosemary Oil + Vitamin E
HÁRNÆRINGIN FRÁ UPCIRCLE PARAST FULLKOMLEGA VIÐ SJAMPÓIÐ FRÁ ÞEIM OG VEITIR ÞÍNU HÁRI DJÚPA NÆRINGU MEÐ HÁGÆÐA HRÁEFNUM
Þessi hárnæring inniheldur náttúruleg hágæða hráefni á borð við kókosolíu, bambus þykkni og vax úr appelsínuberki sem verndar og varðveitir næringuna í hárinu. Útkoman er silkimjúkt og heilbrigt hár, sem við viljum jú flest! Appelsínubörkurinn sem notaður er í þessa hárnæringu er aukaafurð úr appelsínusafa framleiðslu. Vax úr appelsínuberki inniheldur "botanical lipids" sem virkar eins og hálfgert mýkingarefni og mýkir hárið og veitir því raka. Vaxið er einnig ríkt af C-vítamíni og getur bætt styrkleikann í hárinu sem getur minnkað líkur á að endar slitni. Hárnæringin hentar öllum hártýpum, þar á meðal afro, krulluðu, lituðu, olíukenndu og þurru hári.
Hazelnut Bar 50g
kr.490
HANDGERT SÚKKULAÐISTYKKI MEÐ LJÚFFENGRI HESLIHNETU/NOUGAT FYLLINGU
Fyllingin er dúnmjúk með dýrindis nougat bragði. Fullkomið fyrir kósýkvöldið eða með kaffinu! Allt súkkulaði frá Vegan Delights er án pálmolíu og 100% vegan. Þau nota líka alltaf cocoa sem er framleitt á ábyrgan hátt með sjálfbærni að leiðarljósiAÐRIR SÖLUSTAÐIR
HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og AkureyriFace Toner with Hyaluronic Acid 100 ml.
FÁANLEGT Í BIÐPÖNTUN, NÝ SENDING VÆNTANLEG VIKUNA 21.-25. JÚLÍ
ANDLITSTÓNER MEÐ CHAMOMILE: virkilega ferskur og rakagefandi andlitstóner úr chamomile þykkni sem inniheldur einnig græna mandarínu sem endurvekur og frískar upp á húðina. Tónerinn inniheldur hýalúrónsýru sem viðheldur þéttleika húðarinnar og getur dregið úr fínum línum. Þessi tóner er hentugur fyrir allar húðtýpur og það má nota hann undir andlitsfarða sem og eftir andlitshreinsun. Við mælum klárlega með því að nota hann reglulega yfir daginn til að viðhalda þéttleika og ferskleika húðarinnar! Ásamt öllum vörum frá UpCircle, þá er tónerinn framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi og inniheldur einungis 99% náttúruleg hágæða hráefni sem sum hver eru endurnýtt til að sporna gegn sóun. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af tónernum fæst þar líka



Eye Roller
kr.2.290
"Using this is my favourite new selfcare ritual, I find it so relaxing!"
Augnrúlla sem hjálpar þér að fríska upp á, endurnæra og róa svæðið undir augunum. Þú einfaldlega nuddar varlega með augnkremi eða serumi.
Með notkun augnrúllu hafa margir upplifað minni andlitsspennu, betri húðáferð og aukið blóðflæði í kringum augun sem hefur haft bjartan ljóma í för með sér!
LÚXUS TRIX: geymdu augnrúlluna í kæli fyrir notkun!
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni, Mosfellsbæ, Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík
Hand + Body Wash with Kiwi Water 250ml
Þessi unaðslega hand- og líkamssápa er gerð úr bólguminnkandi kiwi vatni sem er aukaafurð úr djúsa iðnaðinum. Í sápunni er einnig að finna sítrónugras og mandarínuolíu. Sápan róar og ver húðina ásamt því að gefa henni mýkt. Sápan hentar því einstaklega vel fyrir þurra húð og skilur líkamann eða hendurnar eftir talsvert ferskari!





Face Oil with Coffee and Rosehip Oil 30 ml.
kr.4.990
MARGVERÐLAUNA OG EIN VINSÆLASTA UPCIRCLE VARAN FRÁ UPPHAFI SEM BÝR YFIR FRÁBÆRRI VIRKNI FYRIR FLESTAR HÚÐTÝPUR
Þessi unaðslega andlitsolía (hét áður andlitsserum) inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af kaffi sem og jojoba-, sea buckthorn og rosehip olíum. Þessi andlitsolía var hönnuð til að örva kollagen framleiðslu húðarinnar og viðhalda þéttleika hennar. Fyrir bestan árangur er best að nota olíuna kvölds og morgna. Þú getur sett olíuna á rakakremið sem bindur rakann betur í búðinni og þú þarft aðeins örfáa litla dropa til að fá góðan árangur! Þessi andlitsolía er samþykkt af húðlæknum og rík af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar. Margir hafa einnig notað þessa olíu sem hár eða skeggolíu og hentar því einnig fyrir karlmenn. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af seruminu fæst þar líka
Face Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera 60 ml.
kr.5.990
MILT DAGKREM SEM VEITIR FRÁBÆRAN RAKA OG NÆRIR HÚÐINA MEÐ E-VÍTAMÍNI OG ÖÐRUM ANDOXUNAREFNUM SEM GETA HÆGT Á ÖLDRUN
Þetta dagkrem hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð. Við höfum einnig fengið endurgjöf frá konum með mikinn rósroða og virkilega slæma húð eftir barnsburð sem segja að þetta krem hafi algjörlega bjargað sér. Kremið inniheldur fínmalað púður úr endurnýttum argan skeljum sem hefðu annars farið til spillis. Argan skeljarnar eru ríkar af E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem gera húðinni mikið gott. Kakósmjör, aloe vera, og blóðappelsína er einnig að finna í þessu dásemdar kremi en þessi innihaldsefni eru þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. Þegar krukkan þín klárast, þá getur þú verslað áfyllingu í EkóHúsinu að Síðumúla 11. "Þetta unaðslega dagkrem frá UpCircle kom eins og kallað inn í líf mitt 2019 þegar ég var að glíma við ýmis húðvandamál. Húðin mín hefur alla tíð verið ótrúlega þurr. Ef rakakremið gleymdist í ferðalögum þá var ég í vondum málum! Það voru meira að segja byrjaðir að myndast krónískir þurrkublettir framan í mér. Dagkremið frá UpCircle hefur gert kraftaverk fyrir mína húð þar sem ég get núna farið í sturtu án þess að líða eins og sandpappír í framan. Eins hafa bólur ekki gert eins mikið vart við sig eftir að ég byrjaði að nota UpCircle dagkremið (og hreinsimjólkina líka reyndar). Ef þú ert í svipuðum sporum og ég var í, að vera í dauðaleit af hinu fullkomna kremi sem er ekki með afgerandi lykt eða lætur þig klæja eða gefur þér roða í framan, þá er UpCircle dagkremið mjög sennilega fyrir þig!" - einlæg umsögn frá Kristínu Amy, eiganda Tropic. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af rakakreminu fæst þar líka