Sýna 1–12 af 22 niðurstöður

Face Serum with Coffee and Rosehip Oil 30 ml.

kr.2.872
Lífrænt margverðlauna andlitsserum sem nærir húðina og hentar öllum húðtýpum! Serumið inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af því sem og jojoba-, sea buckthorn og rosehip olíum. Notaðu serumið á morgnanna eða á kvöldin til að örva kollagen framleiðslu og viðhalda þéttleika húðarinnar.
  • Samþykkt af húðlæknum
Serumið er ríkt af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar! Margir hafa notað þetta serum sem hár eða skeggolíu. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu. Þú getur sett serumið á rakakrem sem bindur rakann betur í búðinni. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni og Mosfellsbæ. Varan er væntanleg í Bónus Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎 EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af seruminu fæst þar líka

Face Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera 60 ml.

kr.4.890

MILT DAGKREM SEM VEITIR FRÁBÆRAN RAKA OG NÆRIR HÚÐINA MEÐ E-VÍTAMÍNI OG ÖÐRUM ANDOXUNAREFNUM SEM GETA HÆGT Á ÖLDRUN

Þetta dagkrem hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð. Við höfum einnig fengið endurgjöf frá konum með mikinn rósroða og virkilega slæma húð eftir barnsburð sem segja að þetta krem hafi algjörlega bjargað sér. Kremið inniheldur fínmalað púður úr endurnýttum argan skeljum sem hefðu annars farið til spillis. Argan skeljarnar eru ríkar af E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem gera húðinni mikið gott. Kakósmjör, aloe vera, og blóðappelsína er einnig að finna í þessu dásemdar kremi en þessi innihaldsefni eru þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. Þegar krukkan þín klárast, þá getur þú verslað áfyllingu í EkóHúsinu að Síðumúla 11. "Þetta unaðslega dagkrem frá UpCircle kom eins og kallað inn í líf mitt 2019 þegar ég var að glíma við ýmis húðvandamál. Húðin mín hefur alla tíð verið ótrúlega þurr. Ef rakakremið gleymdist í ferðalögum þá var ég í vondum málum! Það voru meira að segja byrjaðir að myndast krónískir þurrkublettir framan í mér. Dagkremið frá UpCircle hefur gert kraftaverk fyrir mína húð þar sem ég get núna farið í sturtu án þess að líða eins og sandpappír í framan. Eins hafa bólur ekki gert eins mikið vart við sig eftir að ég byrjaði að nota UpCircle dagkremið (og hreinsimjólkina líka reyndar). Ef þú ert í svipuðum sporum og ég var í, að vera í dauðaleit af hinu fullkomna kremi sem er ekki með afgerandi lykt eða lætur þig klæja eða gefur þér roða í framan, þá er UpCircle dagkremið mjög sennilega fyrir þig!" - einlæg umsögn frá Kristínu Amy, eiganda Tropic. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni og Mosfellsbæ. Varan er væntanleg í Bónus Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎 EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af rakakreminu fæst þar líka  

Eye Cream with Cucumber, Hyaluronic Acid + Coffee 15 ml.

kr.3.290
Augnkrem unnið úr kaffiolíu og þykkni úr hlyntrésbörk Hefur róandi áhrif, endurnærir og dregur úr bólgum í húð Hentugt fyrir allar húðtýpur og má nota undir andlitsfarða Hýalúrónsýra hjálpar til við að þétta og slétta húðina Framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi AÐRIR SÖLUSTAÐIR: BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni og Mosfellsbæ. Varan er væntanleg í Bónus Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎 EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af kreminu fæst þar líka    

Night Cream with Hyaluronic Acid + Niacinamide 55 ml.

kr.4.890
Milt og ilmefnalaust næturkrem sem er samþykkt af húðlæknum og hentar nær öllum húðtýpum. Þetta árangursríka krem sér um að næra, endurnýja og vernda húðina á meðan við nælum okkur í verðskuldaðan nætursvefn. Formúlan er rík af níasínamíði (B3 vítamín) sem jafnar húðtón, hyaluronic sýru sem bindur raka og viðheldur þéttleika húðarinnar ásamt rosehip-olíu sem hjálpar húðinni að endurnýja sig. Þetta næturkrem inniheldur einnig kaldpressað og afar andoxunarríkt bláberjaþykkn sem er ríkt af A vítamíni og getur varið húðina gegn útfjólubláum geislum. Einnig er bláberjaþykkni uppspretta pro-retínóls sem vinnur gegn öldrun húðarinnar. Nú getur þú aldreilis dekrað við húðina og boðið henni upp á þetta margverðlaunaða, 100% vegan næturkrem sem er engu líkt! AÐRIR SÖLUSTAÐIR: BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni og Mosfellsbæ. Varan er væntanleg í Bónus Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎 EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af kreminu fæst þar líka  

Cleansing Balm with Oat Oil + Vitamin E 55 ml.

kr.4.890
Nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu. Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð. Við mælum með þessu hreinsikremi af heilum hug en það er framleitt á sjálfbæran máta í UK með náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.

NOTKUNARLEIÐBEININGAR

  • Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
  • Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni og Mosfellsbæ. Varan er væntanleg í Bónus Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎

Face Toner with Hyaluronic Acid 100 ml.

kr.4.490
ANDLITSTÓNER MEÐ CHAMOMILE: virkilega ferskur og rakagefandi andlitstóner úr chamomile þykkni sem inniheldur einnig græna mandarínu sem endurvekur og frískar upp á húðina. Tónerinn inniheldur hýalúrónsýru sem viðheldur þéttleika húðarinnar og getur dregið úr fínum línum. Þessi tóner er hentugur fyrir allar húðtýpur og það má nota hann undir andlitsfarða sem og eftir andlitshreinsun. Við mælum klárlega með því að nota hann reglulega yfir daginn til að viðhalda þéttleika og ferskleika húðarinnar! Ásamt öllum vörum frá UpCircle, þá er tónerinn framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi og inniheldur einungis 99% náttúruleg hágæða hráefni sem sum hver eru endurnýtt til að sporna gegn sóun. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af tónernum fæst þar líka

Chai Latte Soy Wax Candle

kr.3.990
100% vegan ilmkerti úr soja Handgerð í Yorkshire á Englandi Ilmar eins og jólin eða unaðslegt chai latte Brennslutími er 35 klst. (180 ml.) Inniheldur endurnýtt chai-te krydd Fullkomin umhverfisvæn gjafavara  

Face Mask with Kaolin Clay 60 ml.

kr.4.890
Mildur en árangursríkur andlitsmaski sem virkar á flestar húðtýpur Dregur úr bólum og fílapennslum ásamt því að vinna gegn útbrotum Maskinn gefur húðinni mýkt og gljáa og skilur hana eftir í jafnvægi Kaolin leir er þekktur fyrir að draga í sig óþarfa olíur og óhreinindi Unninn úr endurnýttu fínmöluðu púðri úr ólífusteinum Framleiddur á Englandi á siðferðislegan og sjálfbæran hátt AÐRIR SÖLUSTAÐIR: BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni og Mosfellsbæ. Varan er væntanleg í Bónus Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎 EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af maskanum fæst þar líka

SPF 25 Steinefna Sólarvörn

kr.4.490
Þessi árangursríka steinefna sólarvörn veitir húðinni nauðsynlega vörn gegn ótímabærri öldrun af völdum sólarinnar.
  • 100% vegan, án ofbeldis, plastlaus & endurvinnanleg!
Hún dregst hratt í húðina og færir henni einnig góðan raka ásamt því að innihalda andoxunarefni frá hindberjafræolíu sem getur dregið úr skaða sindurefna.
  • Inniheldur A & E vítamín sem getur örvað kollagen framleiðslu líkamanns
Það besta við þessa sólarvörn er að hún lifir í sátt og samlyndi við kóralrifin og hefur ekki skaðleg áhrif á þau eins og svo margar sólarvarnir í dag.  

Mini Face Serum with Coffee + Rosehip Oil

kr.1.990
Lífrænt og margverðlauna andlitsserum sem nærir húðina og hentar öllum húðtýpum! Serumið inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af kaffi sem og jojoba-, sea buckthorn og rosehip olíum. Notaðu serumið á morgnanna eða á kvöldin til að örva kollagen framleiðslu og viðhalda þéttleika húðarinnar.
  • Samþykkt af húðlæknum
Serumið er ríkt af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar! Margir hafa notað þetta serum sem hár eða skeggolíu. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu. Þú getur sett serumið á rakakrem sem bindur rakann betur í búðinni.

Mini Face Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera

kr.3.090

MILT DAGKREM SEM VEITIR FRÁBÆRAN RAKA OG NÆRIR HÚÐINA MEÐ E-VÍTAMÍNI OG ÖÐRUM ANDOXUNAREFNUM SEM GETA HÆGT Á ÖLDRUN

"Þetta unaðslega dagkrem frá UpCircle kom eins og kallað inn í líf mitt 2019 þegar ég var að glíma við ýmis húðvandamál. Húðin mín hefur alla tíð verið ótrúlega þurr. Ef rakakremið gleymdist í ferðalögum þá var ég í vondum málum! Það voru meira að segja byrjaðir að myndast krónískir þurrkublettir framan í mér. Dagkremið frá UpCircle hefur gert kraftaverk fyrir mína húð þar sem ég get núna farið í sturtu án þess að líða eins og sandpappír í framan. Eins hafa bólur ekki gert eins mikið vart við sig eftir að ég byrjaði að nota UpCircle dagkremið (og hreinsimjólkina líka reyndar). Ef þú ert í svipuðum sporum og ég var í, að vera í dauðaleit af hinu fullkomna kremi sem er ekki með afgerandi lykt eða lætur þig klæja eða gefur þér roða í framan, þá er UpCircle dagkremið mjög sennilega fyrir þig!" - einlæg umsögn frá Kristínu Amy, eiganda Tropic. Þetta dagkrem hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð eins og hefur komið fram. Við höfum einnig fengið endurgjöf frá konum með mikinn rósroða og virkilega slæma húð eftir barnsburð sem segja að þetta krem hafi algjörlega bjargað sér. Kremið inniheldur fínmalað púður úr endurnýttum argan skeljum sem hefðu annars farið til spillis. Argan skeljarnar eru ríkar af E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem gera húðinni mikið gott. Kakósmjör, aloe vera, og blóðappelsína er einnig að finna í þessu dásemdar kremi en þessi innihaldsefni eru þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. Þegar krukkan þín klárast, þá getur þú verslað áfyllingu í EkóHúsinu að Síðumúla 11. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11      

Hand + Body Lotion with Bergamot 250 ml.

kr.3.290
  • Afar rakagefandi hand- og líkamskrem
  • Hentar flestum húðtýpum og sérstaklega þurri húð
  • Býr yfir ferskum sítrus ilm af bergamot, greipaldin og sítrónugrasi
  • Veitir húðinni vörn og aðstoðar við uppbyggingu hennar
  • Endurlífgar húðina og skilur hana eftir ögn ilmandi