• VERSLA
    Screenshot 2024-09-18 at 10.48.37

    ALLAR VÖRUR

    Tropic=Vorur-207

    LJÚFMETI

    your-superfoods-superfood-mix-single-mix-power-matcha-8718868809025-171011-organic-super-foods-17835632656

    HEILSUVÖRUR

    Lifestyle-3_EyeRoller+EyeCream_LR

    SNYRTIVÖRUR

  • UPPSKRIFTIR
  • HEILDSALA
  • BLOGG
  • GJAFAVARA
Tropic Tropic
Login / Register
0 items / kr.0
Menu
Tropic Tropic
0 items / kr.0
Click to enlarge
Heim SNYRTIVÖRUR HÁRVÖRUR Fiji Feelin Conditioner Bar
Fiji Feelin Shampoo Bar
Fiji Feelin Shampoo Bar kr.1.990
Back to products
Face Oil with Coffee and Rosehip Oil 30 ml.
Face Oil with Coffee and Rosehip Oil 30 ml. kr.4.990

Fiji Feelin Conditioner Bar

kr.2.290

Fiji Feelin’ hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Fiji Feelin’ hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir kryddaði vanillu keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd.

Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS.

Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt.

Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði


Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru

Á lager (hægt að leggja inn biðpöntun)

Vörunúmer: TRCO2 Flokkar: ALLAR VÖRUR, HÁRVÖRUR, SNYRTIVÖRUR, TROPIC Vörumerki: Tropic
  • Lýsing
Lýsing

Innihaldsefni: cetyl alcohol (náttúrulegt bindiefni og næring), behentrimonium methosulfate (frá rapsolíu), kakósmjör, kókosolía, glycerin, shea smjör, ilmolíu blanda (fragrance án paraben og án phthalate), extra virgin ólífuolía, hveitikímolía, glycerin (vegan), calamine, d-panthenol.

Geymsluþol: geymist á köldum stað eða við stofuhita þar sem hársápan inniheldur náttúrulegar olíur og eiga þær til að bráðna/smita frá sér ef þær eru í 28°C+

Aðrar spennandi vörur

SPF 25 Steinefna Sólarvörn

kr.5.990
Þessi árangursríka steinefna sólarvörn veitir húðinni nauðsynlega vörn gegn ótímabærri öldrun af völdum sólarinnar.
  • 100% vegan, án ofbeldis, plastlaus & endurvinnanleg!
Hún dregst hratt í húðina og færir henni einnig góðan raka ásamt því að innihalda andoxunarefni frá hindberjafræolíu sem getur dregið úr skaða sindurefna.
  • Inniheldur A & E vítamín sem getur örvað kollagen framleiðslu líkamanns
Það besta við þessa sólarvörn er að hún lifir í sátt og samlyndi við kóralrifin og hefur ekki skaðleg áhrif á þau eins og svo margar sólarvarnir í dag.  
Setja í körfu
Quick view

Caffeinated Duo Set

kr.4.990
Nældu þér í vinsælustu vörurnar frá UpCircle á yfir 20% afslætti en við erum auðvitað að tala um andlitsserumið með kaffi- og rosehip olíu sem og augnkremið með hlyntré og kaffi. Kemur saman í pakka og hentar því vel sem gjöf fyrir hana eða hann sem vill auka aðeins lífsgæðin! Serumið er ríkt af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar! Margir hafa einnig notað það sem hár eða skeggolíu. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu. Þvílík fjárfesting! Augnkremið hefur róandi áhrif og getur dregið úr bólgum í húðinni sem og dregið úr pokum. Augnkremið inniheldur hýalúrónsýru sem getur hjálpað til við að þétta og slétta húðina. ÁFYLLING: áfyllingar fyrir þessar vörur eru fáanlegar í EkóHúsið Síðumúla 11  
Setja í körfu
Quick view

Hand + Body Lotion with Bergamot 250 ml.

kr.3.990
  • Afar rakagefandi hand- og líkamskrem
  • Hentar flestum húðtýpum og sérstaklega þurri húð
  • Býr yfir ferskum sítrus ilm af bergamot, greipaldin og sítrónugrasi
  • Veitir húðinni vörn og aðstoðar við uppbyggingu hennar
  • Endurlífgar húðina og skilur hana eftir ögn ilmandi
   
Setja í körfu
Quick view

Gua Sha

kr.2.990
Gua Sha frá UpCircle er hannað til að minnka spennu í andlitsvöðva og draga úr bólgum. "Gua Sha" er aldagömul kínversk hefð sem hefur verið notuð í lækningaskyni þar sem mjúkur steinn er nuddaður með húðinni til að minnka spennu. Einstaka lögun steinsins gerir þér kleift að móta andlitið ásamt því að hjálpa til við sogæðarennsli sem getur dregið úr þrota og örva blóðflæði fyrir heilbrigðan ljóma í andliti. Þú getur svolítið stjórnað ákafanum á nuddinu, allt frá léttum strokum til ögn dýpri þrýstings. Þú getur einnig notað brúnina á steininum til að skafa varlega húðina sem er talið geta hjálpað endurnýjunarferli húðfrumna. Bónus ráð: notaðu andlitsserumið frá UpCircle sem nuddolíu!
“With the cost of living increasing, indulging in self-care is more important than ever for our mental health. One of the best things about using a gua sha stone or eye roller to massage yourself is that you can easily reap the benefits without leaving your own home. It’s a pleasurable and short addition to your established skincare routine. There’s nothing complicated about it and you can do a facial massage yourself, saving lots of money compared with having a facial at a salon". - Anna Brightman, co founder UpCircle Beauty
Setja í körfu
Quick view

Face Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera 60 ml.

kr.5.990

MILT DAGKREM SEM VEITIR FRÁBÆRAN RAKA OG NÆRIR HÚÐINA MEÐ E-VÍTAMÍNI OG ÖÐRUM ANDOXUNAREFNUM SEM GETA HÆGT Á ÖLDRUN

Þetta dagkrem hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð. Við höfum einnig fengið endurgjöf frá konum með mikinn rósroða og virkilega slæma húð eftir barnsburð sem segja að þetta krem hafi algjörlega bjargað sér. Kremið inniheldur fínmalað púður úr endurnýttum argan skeljum sem hefðu annars farið til spillis. Argan skeljarnar eru ríkar af E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem gera húðinni mikið gott. Kakósmjör, aloe vera, og blóðappelsína er einnig að finna í þessu dásemdar kremi en þessi innihaldsefni eru þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. Þegar krukkan þín klárast, þá getur þú verslað áfyllingu í EkóHúsinu að Síðumúla 11. "Þetta unaðslega dagkrem frá UpCircle kom eins og kallað inn í líf mitt 2019 þegar ég var að glíma við ýmis húðvandamál. Húðin mín hefur alla tíð verið ótrúlega þurr. Ef rakakremið gleymdist í ferðalögum þá var ég í vondum málum! Það voru meira að segja byrjaðir að myndast krónískir þurrkublettir framan í mér. Dagkremið frá UpCircle hefur gert kraftaverk fyrir mína húð þar sem ég get núna farið í sturtu án þess að líða eins og sandpappír í framan. Eins hafa bólur ekki gert eins mikið vart við sig eftir að ég byrjaði að nota UpCircle dagkremið (og hreinsimjólkina líka reyndar). Ef þú ert í svipuðum sporum og ég var í, að vera í dauðaleit af hinu fullkomna kremi sem er ekki með afgerandi lykt eða lætur þig klæja eða gefur þér roða í framan, þá er UpCircle dagkremið mjög sennilega fyrir þig!" - einlæg umsögn frá Kristínu Amy, eiganda Tropic. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af rakakreminu fæst þar líka  
Setja í körfu
Quick view

Cleansing Face Milk with Aloe Vera + Oat Powder 120 ml.

kr.4.490
Hversdags andlitshreinsir með aloe vera og fíngerðu dufti úr höfrum sem róar húðina og skilur hana eftir hreina og endurnærða. Hreinsimjólkin er mild og hefur þann eiginleika að geta bætt húðina og endurheimt rakahindrun hennar þökk sé höfrunum en þeir eru aukaafurð úr drykkja- og matvælaframleiðslu. Formúlan er fíngerð og kremkennd og veitir húðinni virkilega góðan raka. Mjólkin hentar öllum húðtýpum og það er nánast öruggt að húðin verður silkimjúk eftir notkun! "This is an immediate fave of mine! It's smooth and silky to apply, it effectively removes makeup and smells lovely. Only one or two pumps is needed so lasts a while. Doesn’t leave skin feeling tight and is suitable for sensitive skin!" Húðfræðingar hafa samþykkt þessa vöru fyrir viðkvæma húð sem og að þessa vöru má nota á börn. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11
Setja í körfu
Quick view

Face Oil with Coffee and Rosehip Oil 30 ml.

kr.4.990

MARGVERÐLAUNA OG EIN VINSÆLASTA UPCIRCLE VARAN FRÁ UPPHAFI SEM BÝR YFIR FRÁBÆRRI VIRKNI FYRIR FLESTAR HÚÐTÝPUR

Þessi unaðslega andlitsolía (hét áður andlitsserum) inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af kaffi sem og jojoba-, sea buckthorn og rosehip olíum. Þessi andlitsolía var hönnuð til að örva kollagen framleiðslu húðarinnar og viðhalda þéttleika hennar. Fyrir bestan árangur er best að nota olíuna kvölds og morgna. Þú getur sett olíuna á rakakremið sem bindur rakann betur í búðinni og þú þarft aðeins örfáa litla dropa til að fá góðan árangur! Þessi andlitsolía er samþykkt af húðlæknum og rík af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar. Margir hafa einnig notað þessa olíu sem hár eða skeggolíu og hentar því einnig fyrir karlmenn. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af seruminu fæst þar líka
Setja í körfu
Quick view

Maldives Mood Conditioner Bar

kr.2.290
Maldives Mood hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Maldives Mood sjampóstykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir mangó og ananas keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd! Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS. Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt. Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði
Setja í körfu
Quick view

Tag your photos with #fijifeels on Instagram.

Instagram image
Instagram image
Instagram image
Instagram image
Instagram image
Instagram image
Instagram image
Instagram image
2022 TROPIC. ALLUR RÉTTUR ÁSKILINN.
Skilmálar - payments
  • Menu
  • Categories
  • HEILSUVÖRUR
  • GJAFAVARA
  • HÚÐVÖRUR
  • HÁRVÖRUR
  • PRÓTEIN
  • OFURFÆÐI
  • SÚKKULAÐI
  • ILMVÖTN
  • VÖRUMERKI
  • VERSLA
  • UPPSKRIFTIR
  • HEILDSALA
  • BLOGG
  • GJAFAVARA
  • Login / Register
Facebook Instagram
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Lestu um hvernig við notum vafrakökur.
More info Accept
Start typing to see products you are looking for.

Sendum allar pantanir yfir 5000 kr. frítt með Dropp eða í næsta póstbox 🤍 Loka

Shop
0 items Cart
My account