• VERSLA
    Screenshot 2024-09-18 at 10.48.37

    ALLAR VÖRUR

    Screenshot 2025-12-18 at 11.21.27

    LJÚFMETI

    your-superfoods-superfood-mix-single-mix-power-matcha-8718868809025-171011-organic-super-foods-17835632656

    HEILSUVÖRUR

    Tropic=Vorur-158

    SNYRTIVÖRUR

  • UPPSKRIFTIR
  • BLOGG
  • GJAFAVARA
  • ÚTSALA
Tropic Tropic
Login / Register
1 item / kr.4.792
Menu
Tropic Tropic
1 item / kr.4.792
“Night Cream with Hyaluronic Acid + Niacinamide 55 ml.” hefur verið bætt í körfuna. Skoða körfu
-20%
Click to enlarge
Heim SNYRTIVÖRUR HÁRVÖRUR Maldives Mood Shampoo Bar
Caramel and Peanut Bliss 445g
Caramel and Peanut Bliss 445g kr.3.290
Back to products
Maldives Mood Conditioner Bar
Maldives Mood Conditioner Bar kr.2.290 Original price was: kr.2.290.kr.1.832Current price is: kr.1.832.

Maldives Mood Shampoo Bar

kr.2.290 Original price was: kr.2.290.kr.1.832Current price is: kr.1.832.

Maldives Mood sjampóstykkið okkar býr yfir vandaðri formúlu sem hentar flestum hártýpum og skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt með unaðslegum keim af mangó og ananas.

„Ég var orðin þreytt á því að prófa trekk í trekk ný sjampóstykki sem skildu hárið mitt eftir fitugt og hreinlega sjúskað. Ég vildi fá svipaða upplifun af hárþvotti eins og með hefðbundin sjampó sem maður kaupir á hárgreiðslustofu nema helst án skaðlegra efna. Ég tók því málin í mínar hendur og til varð Maldives Mood!“ – Amy stofnandi Tropic

Maldives Mood er vegan og cruelty-free eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben.

Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

NETTÓ • Glerártorgi, Mjódd, Egilsstöðum og Granda
FJARÐARKAUP •
Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði

 

Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru

Í boði sem biðpöntun

Vörunúmer: TRSH1 Flokkar: ALLAR VÖRUR, HÁRVÖRUR, SNYRTIVÖRUR, TROPIC Vörumerki: Tropic
  • Lýsing
Lýsing

INNIHALDSEFNI:

Sodium coco sulfate, kókosolía, ilmolíu blanda (fragrance án paraben og án phthalate), cocoa smjör, shea smjör, extra virgin ólífuolía, túrmerik.

Sodium coco sulfate er náttúrulegt hreinsiefni úr kókosolíu sem fjarlægir dauðar húðfrumur og óhreina fitu án þess að þurrka upp hársvörðinn. Sodium Coco Sulfate setur jafnvægi á náttúrulegar fitusýrur því þarftu talsvert minna af hárnæringu (ef þú notar hárnæringu yfirleitt).

HVERNIG SKAL NOTA:

Þú nuddar einfaldlega sjampóstykkinu við blautt hárið í sturtunni og það byrjar að freiða mjög vel. Þú þarft mjög lítið til að það byrji að freiða og nuddar vel í allt hárið, einnig hársvörð en þessi sjampóstykki eyða ekki þinni náttúrulegu olíu. Stykkið dugir í allt að 80 hárþvotta en ending fer eftir því hve sítt og þykkt hárið er.

Geymsluþol: geymist á köldum stað eða við stofuhita þar sem hársápan inniheldur náttúrulegar olíur og eiga þær til að bráðna/smita frá sér ef þær eru í 28°C+

Aðrar spennandi vörur

Tropic Vanilla Protein 500g

kr.3.790

TROPIC PLÖNTUPRÓTEIN MEÐ VANILLUBRAGÐI

Í þessu próteini er að finna auðmeltanlega próteingjafa eða bauna- og rísprótein sem líkaminn á auðvelt með að vinna úr. Í hverjum skammti er 22 gr. af próteini og formúlan er auðguð með trefjum og meltingarensímum til þess að stuðla að bættri meltingu. Við notum avókadó þykkni til þess að gera áferðina "rjómakennda" sem verður til þess að próteindrykkirnir verða talsvert grinilegri. Það sem gerir okkar prótein sérstakt er að við notum stevíu sem sætugjafa og sniðgöngum alveg gerviefni á borð við → sucralose og acesulfam-K Þar af leiðandi er próteinið ekki of sætt og ekki með óþarfa eftirbragð. Próteinið er einnig glútenlaust, án GMO og 100% vegan

EINFALDUR VANILLU SMOOTHIE

  • 1 banani
  • 1 bolli af frosnum jarðaberjum
  • 1 bolli af frosnum ananas bitum
  • 30 ml. vanilluprótein (full scoop er 50 ml.)
  • 1 msk. möndlusmjör
  • dass af plöntumjólk
  • 2 tsk. acaí duft
  • hægt að bæta hampfræjum eða chia (valkvætt)
Allt sett saman í blandari þar til mjúk áferð myndast

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði KRÓNAN • Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni, FITJUM og Akureyri. HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og Akureyri NETTÓ • Granda, Mjódd, Krossmóa, Glerártorgi og Egilsstöðum
Setja í körfu
Quick view
-20%

Face Oil with Coffee and Rosehip Oil 30 ml.

kr.4.990 Original price was: kr.4.990.kr.3.992Current price is: kr.3.992.

MARGVERÐLAUNA OG EIN VINSÆLASTA UPCIRCLE VARAN FRÁ UPPHAFI SEM BÝR YFIR FRÁBÆRRI VIRKNI FYRIR FLESTAR HÚÐTÝPUR

Þessi unaðslega andlitsolía (hét áður andlitsserum) inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af kaffi sem og jojoba-, sea buckthorn og rosehip olíum. Þessi andlitsolía var hönnuð til að örva kollagen framleiðslu húðarinnar og viðhalda þéttleika hennar. Fyrir bestan árangur er best að nota olíuna kvölds og morgna. Þú getur sett olíuna á rakakremið sem bindur rakann betur í búðinni og þú þarft aðeins örfáa litla dropa til að fá góðan árangur! Þessi andlitsolía er samþykkt af húðlæknum og rík af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar. Margir hafa einnig notað þessa olíu sem hár eða skeggolíu og hentar því einnig fyrir karlmenn. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af seruminu fæst þar líka
Setja í körfu
Quick view
-20%

Face Mask with Kaolin Clay 60 ml.

kr.5.990 Original price was: kr.5.990.kr.4.792Current price is: kr.4.792.
Mildur en árangursríkur andlitsmaski sem virkar á flestar húðtýpur Dregur úr bólum og fílapennslum ásamt því að vinna gegn útbrotum Maskinn gefur húðinni mýkt og gljáa og skilur hana eftir í jafnvægi Kaolin leir er þekktur fyrir að draga í sig óþarfa olíur og óhreinindi Unninn úr endurnýttu fínmöluðu púðri úr ólífusteinum Framleiddur á Englandi á siðferðislegan og sjálfbæran hátt

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af maskanum fæst þar líka
Setja í körfu
Quick view
-20%Sold out

Fiji Feelin Conditioner Bar

kr.2.290 Original price was: kr.2.290.kr.1.832Current price is: kr.1.832.
Fiji Feelin' hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Fiji Feelin' hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir kryddaði vanillu keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd. Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS. Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt. Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

NETTÓ • Glerártorgi, Mjódd, Egilsstöðum og Granda FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði
Skoða vöru
Quick view
-20%

Cleansing Balm with Oat Oil + Vitamin E 55 ml.

kr.4.990 Original price was: kr.4.990.kr.3.992Current price is: kr.3.992.
Nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu. Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð. Við mælum með þessu hreinsikremi af heilum hug en það er framleitt á sjálfbæran máta í UK með náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.

NOTKUNARLEIÐBEININGAR

  • Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
  • Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af hreinsinum fæst þar líka
Setja í körfu
Quick view
-20%

Night Cream with Hyaluronic Acid + Niacinamide 55 ml.

kr.5.990 Original price was: kr.5.990.kr.4.792Current price is: kr.4.792.
Milt og ilmefnalaust næturkrem sem er samþykkt af húðlæknum og hentar nær öllum húðtýpum. Þetta árangursríka krem sér um að næra, endurnýja og vernda húðina á meðan við nælum okkur í verðskuldaðan nætursvefn. Formúlan er rík af níasínamíði (B3 vítamín) sem jafnar húðtón, hyaluronic sýru sem bindur raka og viðheldur þéttleika húðarinnar ásamt rosehip-olíu sem hjálpar húðinni að endurnýja sig. Þetta næturkrem inniheldur einnig kaldpressað og afar andoxunarríkt bláberjaþykkn sem er ríkt af A vítamíni og getur varið húðina gegn útfjólubláum geislum. Einnig er bláberjaþykkni uppspretta pro-retínóls sem vinnur gegn öldrun húðarinnar. Nú getur þú aldreilis dekrað við húðina og boðið henni upp á þetta margverðlaunaða, 100% vegan næturkrem sem er engu líkt! AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af kreminu fæst þar líka  
Setja í körfu
Quick view
-20%

Maldives Mood Conditioner Bar

kr.2.290 Original price was: kr.2.290.kr.1.832Current price is: kr.1.832.
Maldives Mood hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Maldives Mood sjampóstykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir mangó og ananas keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd! Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS. Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt. Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

NETTÓ • Glerártorgi, Mjódd, Egilsstöðum og Granda FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði
Setja í körfu
Quick view
-20%

Fiji Feelin Shampoo Bar

kr.2.290 Original price was: kr.2.290.kr.1.832Current price is: kr.1.832.
Fiji Feelin' sjampóstykkið okkar býr yfir vandaðri formúlu sem hentar flestum hártýpum og skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt með unaðslegum keim af kryddaðri vanillu og kókos. "Ég var orðin þreytt á því að prófa trekk í trekk ný sjampóstykki sem skildu hárið mitt eftir fitugt og hreinlega sjúskað. Ég vildi fá svipaða upplifun af hárþvotti eins og með hefðbundin sjampó sem maður kaupir á hárgreiðslustofu nema helst án skaðlegra efna. Ég tók því málin í mínar hendur og til varð Fiji Feelin'!" - Amy stofnandi Tropic Fiji Feelin er vegan og cruelty-free eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

NETTÓ • Glerártorgi, Mjódd, Egilsstöðum og Granda FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði
Setja í körfu
Quick view
2025 TROPIC. ALLUR RÉTTUR ÁSKILINN.
Skilmálar - payments
  • Menu
  • Categories
  • HEILSUVÖRUR
  • GJAFAVARA
  • HÚÐVÖRUR
  • HÁRVÖRUR
  • PRÓTEIN
  • OFURFÆÐI
  • SÚKKULAÐI
  • ILMVÖTN
  • VÖRUMERKI
  • VERSLA
  • UPPSKRIFTIR
  • BLOGG
  • GJAFAVARA
  • ÚTSALA
  • Login / Register
Facebook Instagram
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Lestu um hvernig við notum vafrakökur.
More info Accept
Start typing to see products you are looking for.
Shop
1 item Cart
My account