Þessi bragðgóði vanillu „creamer“ styður náttúrulega kollagenmyndun líkamans með hjálp öflugra plantna.
Varan er unnin úr:
Tremella-svepp oft kallaður „hýalúrónsýra náttúrunnar“
Tocos hrísgrjónaklíð ríkt af E-vítamíni
Bambus náttúruleg uppspretta kísils, sem tekur þátt í kollagenmyndun
Aloe vera þekkt fyrir að styðja við raka og mýkt húðar
Ólíkt hefðbundnum kollagenblöndum, sem oft eru unnar úr beinum nautgripa eða fiska og innihalda sætuefni, bragðefni og önnur aukaefni, er Collagen Support 100% lífræn og plöntumiðuð vara, án dýraafurða og án óþarfa aukefna.
Fullkomið út í kaffi, te eða annan heitan drykk. Einföld og náttúruleg leið til að styðja líkamann innan frá.
Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru
Nældu þér í vinsælustu vörurnar frá UpCircle á yfir 20% afslætti en við erum auðvitað að tala um andlitsserumið með kaffi- og rosehip olíu sem og augnkremið með hlyntré og kaffi.
Kemur saman í pakka og hentar því vel sem gjöf fyrir hana eða hann sem vill auka aðeins lífsgæðin!
Serumið er ríkt af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar! Margir hafa einnig notað það sem hár eða skeggolíu. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu. Þvílík fjárfesting!
Augnkremið hefur róandi áhrif og getur dregið úr bólgum í húðinni sem og dregið úr pokum. Augnkremið inniheldur hýalúrónsýru sem getur hjálpað til við að þétta og slétta húðina.
ÁFYLLING:
áfyllingar fyrir þessar vörur eru fáanlegar í EkóHúsið Síðumúla 11
Handáburður sem inniheldur hibiscus blóm, shea smjör og marshmallow rót til að vernda og næra hendurnar. Formúlan er ekki olíukennd heldur fersk og sér til þess að kremið dregst ört í húðina og gerir gæfumun, jafnvel fyrir þurrustu hendur!
Endurnýtt hibiscus blóm innihalda 45% alpha-hydroxy sýrur, sem hjálpa til við að fjarlægja mengunarefni varlega úr efri lögum húðarinnar og örva endurnýjun frumna.
HÁRNÆRINGIN FRÁ UPCIRCLE PARAST FULLKOMLEGA VIÐ SJAMPÓIÐ FRÁ ÞEIM OG VEITIR ÞÍNU HÁRI DJÚPA NÆRINGU MEÐ HÁGÆÐA HRÁEFNUM
Þessi hárnæring inniheldur náttúruleg hágæða hráefni á borð við kókosolíu, bambus þykkni og vax úr appelsínuberki sem verndar og varðveitir næringuna í hárinu. Útkoman er silkimjúkt og heilbrigt hár, sem við viljum jú flest!
Appelsínubörkurinn sem notaður er í þessa hárnæringu er aukaafurð úr appelsínusafa framleiðslu. Vax úr appelsínuberki inniheldur "botanical lipids" sem virkar eins og hálfgert mýkingarefni og mýkir hárið og veitir því raka. Vaxið er einnig ríkt af C-vítamíni og getur bætt styrkleikann í hárinu sem getur minnkað líkur á að endar slitni.
Hárnæringin hentar öllum hártýpum, þar á meðal afro, krulluðu, lituðu, olíukenndu og þurru hári.
MEST SELDA SNYRTIVARAN OKKAR OG EKKI AÐ ÁSTÆÐULAUSU
Augnkrem unnið úr kaffiolíu og þykkni úr hlyntrésbörk
Hefur róandi áhrif, endurnærir og dregur úr bólgum í húð
Hentugt fyrir allar húðtýpur og má nota undir andlitsfarða
Hýalúrónsýra hjálpar til við að þétta og slétta húðina
Framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
HRÍM Kringlunni
EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af kreminu fæst þar líka
MARGVERÐLAUNA OG EIN VINSÆLASTA UPCIRCLE VARAN FRÁ UPPHAFI SEM BÝR YFIR FRÁBÆRRI VIRKNI FYRIR FLESTAR HÚÐTÝPUR
Þessi unaðslega andlitsolía (hét áður andlitsserum) inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af kaffi sem og jojoba-, sea buckthorn og rosehip olíum. Þessi andlitsolía var hönnuð til að örva kollagen framleiðslu húðarinnar og viðhalda þéttleika hennar. Fyrir bestan árangur er best að nota olíuna kvölds og morgna. Þú getur sett olíuna á rakakremið sem bindur rakann betur í búðinni og þú þarft aðeins örfáa litla dropa til að fá góðan árangur!
Þessi andlitsolía er samþykkt af húðlæknum og rík af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar. Margir hafa einnig notað þessa olíu sem hár eða skeggolíu og hentar því einnig fyrir karlmenn. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af seruminu fæst þar líka
LÍFRÆNT VOTTUÐ FROSTÞURRKUÐ ACAÍ BER FRÁ AMAZON REGNSKÓGINUM
Þessi dökkfjólubláu ber sem eiga rætur sínar að rekja til Amazon regnskógarins hafa náð miklum vinsældum síðustu ár. Berin eru þekkt fyrir háan andoxunarstuðul en acaí ber eru talin búa yfir 3x meira magni af andoxunarefnum en til dæmis bláber.
Duftið er fíngert og hentar vel í þeyting, chia graut eða jógúrtina fyrir aukin vítamín og steinefni. Það sem er í uppáhaldi hjá Tropic teyminu eru acaí skálar.
UPPSKRIFT AF ACAÍ SKÁL
1 bolli af blönduðum frosnum berjum
30 ml. plöntuprótein (valkvæmt)
1-2 dl. af plöntumjólk
2 tsk. Tropic acaí duft
1 frosinn banani
Öllu er blandað vel saman í blender eða matvinnsluvél. Þar sem mikið er frosið og áferðin verður ískennd að þá þarf blenderinn eða matvinnsluvélin að vera svolítið öflug. Stundum þarf að bæta við meiri vökva eða stoppa og hræra og byrja aftur, til að ná að blanda öllu almennilega saman
Fullkomið "toppings" → fersk jarðaber, bananabitar, fersk bláber, hnetusmjör eða möndlusmjör, hempfræ, granóla og kakónibbur