99% NÁTTÚRULEG INNIHALDSEFNI: Aqua, Zinc Oxide, Caprylic/Capric Triglyceride, Coco Caprylate/Caprate, Glycerin, Coco Glucoside, Cetearyl Alcohol, Isoamyl Laurate, Coconut Alcohol, Rubus Idaeus (Raspberry) Seed Oil, Aloe Barbadensis Leaf Extract, Tocopherol, Helianthus Annuus Seed Oil, Lavandula Angustifolia (Lavender) Flower Oil, Lecithin, Xanthan Gum, Glucose, Glyceryl Caprylate, Isoamyl Cocoate, Isostearic Acid, Polyhydroxystearic Acid, Polyglyceryl-3 Polyricinoleate, Dehydroacetic Acid, Benzyl Alcohol, Geraniol^, Limonene^, Linalool^. ^Natural constituent of essential oils listed.
SPF 25 Steinefna Sólarvörn
kr.4.490
Þessi árangursríka steinefna sólarvörn veitir húðinni nauðsynlega vörn gegn ótímabærri öldrun af völdum sólarinnar.
- 100% vegan, án ofbeldis, plastlaus & endurvinnanleg!
Hún dregst hratt í húðina og færir henni einnig góðan raka ásamt því að innihalda andoxunarefni frá hindberjafræolíu sem getur dregið úr skaða sindurefna.
- Inniheldur A & E vítamín sem getur örvað kollagen framleiðslu líkamanns
Það besta við þessa sólarvörn er að hún lifir í sátt og samlyndi við kóralrifin og hefur ekki skaðleg áhrif á þau eins og svo margar sólarvarnir í dag.
Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru
Á lager (hægt að leggja inn biðpöntun)
Vörunúmer:
UC29
Flokkar: ALLAR VÖRUR, HÚÐVÖRUR, SNYRTIVÖRUR, UPCIRCLE
Lýsing
Aðrar spennandi vörur
Eye Roller
kr.2.190
"Using this is my favourite new selfcare ritual, I find it so relaxing!"
Augnrúlla sem hjálpar þér að fríska upp á, endurnæra og róa svæðið undir augunum. Þú einfaldlega nuddar varlega með augnkremi eða serumi.
Með notkun augnrúllu hafa margir upplifað minni andlitsspennu, betri húðáferð og aukið blóðflæði í kringum augun sem hefur haft bjartan ljóma í för með sér!
LÚXUS TRIX: geymdu augnrúlluna í kæli fyrir notkun!
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni, Mosfellsbæ, Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎
Rakvélablöð 10 stk.
Hágæða rakvélablöð úr ryðfríu stáli
Fullkomnar í fjölnota rakvélarnar
Koma 10x saman í pakka
Maldives Mood Conditioner Bar
kr.2.290
Maldives Mood hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Maldives Mood sjampóstykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir mangó og ananas keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd!
Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS.
Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt.
Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni og Mosfellsbæ. Varan er væntanleg í Bónus Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎
Face Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera 60 ml.
kr.4.890
MILT DAGKREM SEM VEITIR FRÁBÆRAN RAKA OG NÆRIR HÚÐINA MEÐ E-VÍTAMÍNI OG ÖÐRUM ANDOXUNAREFNUM SEM GETA HÆGT Á ÖLDRUN
Þetta dagkrem hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð. Við höfum einnig fengið endurgjöf frá konum með mikinn rósroða og virkilega slæma húð eftir barnsburð sem segja að þetta krem hafi algjörlega bjargað sér. Kremið inniheldur fínmalað púður úr endurnýttum argan skeljum sem hefðu annars farið til spillis. Argan skeljarnar eru ríkar af E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem gera húðinni mikið gott. Kakósmjör, aloe vera, og blóðappelsína er einnig að finna í þessu dásemdar kremi en þessi innihaldsefni eru þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. Þegar krukkan þín klárast, þá getur þú verslað áfyllingu í EkóHúsinu að Síðumúla 11. "Þetta unaðslega dagkrem frá UpCircle kom eins og kallað inn í líf mitt 2019 þegar ég var að glíma við ýmis húðvandamál. Húðin mín hefur alla tíð verið ótrúlega þurr. Ef rakakremið gleymdist í ferðalögum þá var ég í vondum málum! Það voru meira að segja byrjaðir að myndast krónískir þurrkublettir framan í mér. Dagkremið frá UpCircle hefur gert kraftaverk fyrir mína húð þar sem ég get núna farið í sturtu án þess að líða eins og sandpappír í framan. Eins hafa bólur ekki gert eins mikið vart við sig eftir að ég byrjaði að nota UpCircle dagkremið (og hreinsimjólkina líka reyndar). Ef þú ert í svipuðum sporum og ég var í, að vera í dauðaleit af hinu fullkomna kremi sem er ekki með afgerandi lykt eða lætur þig klæja eða gefur þér roða í framan, þá er UpCircle dagkremið mjög sennilega fyrir þig!" - einlæg umsögn frá Kristínu Amy, eiganda Tropic. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: BÓNUS •Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni, Mosfellsbæ, Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎 EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af rakakreminu fæst þar líkaHand + Body Wash with Kiwi Water 250ml
kr.2.990
Þessi unaðslega hand- og líkamssápa er gerð úr bólguminnkandi kiwi vatni sem er aukaafurð úr djúsa iðnaðinum. Í sápunni er einnig að finna sítrónugras og mandarínuolíu. Sápan róar og ver húðina ásamt því að gefa henni mýkt. Sápan hentar því einstaklega vel fyrir þurra húð og skilur líkamann eða hendurnar eftir talsvert ferskari!
Chai Latte Soy Wax Candle
kr.3.990
Cleansing Balm with Oat Oil + Vitamin E 55 ml.
kr.4.890
Nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu.
Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð.
Við mælum með þessu hreinsikremi af heilum hug en það er framleitt á sjálfbæran máta í UK með náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
- Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
- Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni og Mosfellsbæ. Varan er væntanleg í Bónus Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎Caffeinated Duo Set
Nældu þér í vinsælustu vörurnar frá UpCircle á yfir 20% afslætti en við erum auðvitað að tala um andlitsserumið með kaffi- og rosehip olíu sem og augnkremið með hlyntré og kaffi.
Kemur saman í pakka og hentar því vel sem gjöf fyrir hana eða hann sem vill auka aðeins lífsgæðin!
Serumið er ríkt af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar! Margir hafa einnig notað það sem hár eða skeggolíu. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu. Þvílík fjárfesting!
Augnkremið hefur róandi áhrif og getur dregið úr bólgum í húðinni sem og dregið úr pokum. Augnkremið inniheldur hýalúrónsýru sem getur hjálpað til við að þétta og slétta húðina.
ÁFYLLING:
áfyllingar fyrir þessar vörur eru fáanlegar í EkóHúsið Síðumúla 11