Þessi árangursríka steinefna sólarvörn veitir húðinni nauðsynlega vörn gegn ótímabærri öldrun af völdum sólarinnar.
100% vegan, án ofbeldis, plastlaus & endurvinnanleg!
Hún dregst hratt í húðina og færir henni einnig góðan raka ásamt því að innihalda andoxunarefni frá hindberjafræolíu sem getur dregið úr skaða sindurefna.
Inniheldur A & E vítamín sem getur örvað kollagen framleiðslu líkamanns
Það besta við þessa sólarvörn er að hún lifir í sátt og samlyndi við kóralrifin og hefur ekki skaðleg áhrif á þau eins og svo margar sólarvarnir í dag.
Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru
kr.2.290Original price was: kr.2.290.kr.1.603Current price is: kr.1.603.
Maldives Mood hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Maldives Mood sjampóstykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir mangó og ananas keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd!
Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS.
Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt.
Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
kr.3.990Original price was: kr.3.990.kr.2.793Current price is: kr.2.793.
UNAÐSLEGUR KAFFISKRÚBBUR MEÐ SÍTRUS FYRIR FLESTAR HÚÐTEGUNDIR EN SÉRSTAKLEGA HANNAÐUR FYRIR ÞURRA HÚÐ
Þessi andlitsskrúbbur frá UpCircle inniheldur rosehip-, sætappelsínu og sítrónukjarnaolíur. Sætappelsínuolían hefur sótthreinsandi og bólgueyðandi áhrif sem stuðlar að minni roða og ertingu í húð, á meðan sítrónuolían frískar upp á húðina. Með þessum sótthreinsandi eiginleikum getur skrúbburinn hjálpað við meðhöndlun á bólum og öðrum blettum.
Skrúbburinn fjarlægir dauðar húðfrumur og skilur húðina eftir mýkri, sléttari og endurnærðari. Sheasmjörið í skrúbbnum setur síðan punktinn yfir i-ið með góðum raka. Skrúbburinn er unninn úr úrvals Arabica kaffibaunakorg sem hefði annars farið til spillis frá kaffihúsum víðsvegar um London.
Þessi skrúbbur hefur fengið birtingu í tímaritum á borð við The Times, Forbes, Glamour, The Sunday Times, Refinery 29, The Independent, Good Housekeeping og fleiri tímaritum.
AF HVERJU AÐ NOTA KAFFISKRÚBB?
Kaffiskrúbbar eru fullir af andoxunarefnum og koffíni sem bæði hreinsar og eykur blóðflæði
Hentar sérstaklega vel þeim sem glíma við exem, acne, bólur og slitför
Koffínn hefur náttúrulega bólgueyðandi eiginleika sem hjálpar þeim sem glíma við bólgur og roða
"Using this is my favourite new selfcare ritual, I find it so relaxing!"
Augnrúlla sem hjálpar þér að fríska upp á, endurnæra og róa svæðið undir augunum. Þú einfaldlega nuddar varlega með augnkremi eða serumi.
Með notkun augnrúllu hafa margir upplifað minni andlitsspennu, betri húðáferð og aukið blóðflæði í kringum augun sem hefur haft bjartan ljóma í för með sér!
LÚXUS TRIX: geymdu augnrúlluna í kæli fyrir notkun!
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni, Mosfellsbæ, Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎
DÁSAMLEGT SETT SEM VEITIR RAKA OG NÆRIR HÚÐINA. TILVALIÐ FYRIR ÞÍNA HÚÐRÚTÍNU!
SETTIÐ INNIHELDUR EFTIRFARANDI VÖRUR:
Lífrænt andlitsserum með kaffiolíu frá UpCircle (30 ml.) Serumið inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af því sem og jojoba-, sea buckthorn- og rosehip olíu. Serumið er ríkt af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar. Notaðu serumið á morgnana eða á kvöldin til að örva kollagen framleiðslu og viðhalda þéttleika húðarinnar.
Rakakrem með E-vítamíni og argan skeljum (60 ml.) kremið er ríkt af andoxunarefnum og hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð. Kremið inniheldur kakósmjör, aloe vera og blóðappelsínu sem er þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur!
Næturkrem með hýalúrónsýru og niacinamide (B3 vítamín) (55 ml.) milt og ilmefnalaust sem hentar öllum húðtýpum. Kremið sér um að næra, endurnýja og vernda húðina á meðan við nælum okkur í verðskuladðan svefn.
Þetta sett er fullkomin gjafavara
UPCIRCLE LOFORÐIÐ
100% endurvinnanlegar umbúðir og allar vörur eru framleiddar á siðferðislegan máta án pálmolíu, parabens, phthalates, sílíkon, steinefnaolíu og parfum. Þessar vöru eru náttúrulegar, umhverfisvænar, vegan og án ofbeldis.
ÁFYLLING:
fáanlegar í EkóHúsið Síðumúla 11
SPIRULÍNA ER EIN PRÓTEINRÍKASTA FÆÐA SEM TIL ER EN UM 60-70% ÞESSARA ÞÖRUNGS ER PRÓTEIN
Spirulínan er jafnframt sneisafull af mikilvægum næringarefnum og ein af næringarríkustu ofurfæðum sem finnast í heiminum. Inniheldur meðal anars járn, B1, B2 og B3-vítamín, magnesíum, beta karótín, chlorophyll og omega fitusýrur.
Spirulínan er ræktuð í hreinum ferskvatnslaugum og fær orku frá sólarljósi til vaxtar. Spirulínan er lágsmarksunnin, aðeins náttúrulega þurrkað til að mynda fíngert duft. Passar vel í þeyting, jógúrt, drykkinn, yfirnóttu hafra eða chia graut.
Augnkrem unnið úr kaffiolíu og þykkni úr hlyntrésbörk
Hefur róandi áhrif, endurnærir og dregur úr bólgum í húð
Hentugt fyrir allar húðtýpur og má nota undir andlitsfarða
Hýalúrónsýra hjálpar til við að þétta og slétta húðina
Framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
HRÍM Kringlunni
EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af kreminu fæst þar líka