Sýna 1–12 af 29 niðurstöður

Pink Pitaya duft

kr.2.490
Bleikur drekaávöxtur er suðrænn ávöxtur sem er næringarríkur og inniheldur til dæmis trefja, C-vítamín, beta-karótín og betalain en betalain útskýrir þann fallega lit sem duftið býr yfir. Ekki bara veitir duftið kroppnum heilsufarslega ávinninga heldur gerir máltíðina bleika og girnilega! ✓ Engin aukaefni né neinum óþarfa viðbætt ✓ Einungis 100% náttúrulegt duft úr bleikum drekaávexti ✓ Gefur fallegan bleikan lit sem hægt er að nota í bakstur eða matargerð ✓ Hálf til 2 teskeiðar fyrir fallegan lit og aukin næringarefni Við seljum Pink Pitaya duft einnig í 500 gr. pokum! Hvað með að gera einhyrninga latte sjá hér eða þú getur jafnvel gert bleikar bollakökur sem kæmu til með að slá í gegn í næstu veislu eins og sjá má hér. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni, Hvaleyrarbraut og Akureyri. Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Spöng, Eiðistorgi, Akureyri, Smáralind og Kringlu.

Gut Feeling Organic 150 gr.

kr.3.563
  • Sellerí*, jarðskokka*, sítróna*, epli*, lemon balm* og engifer* (*lífrænt)
  • Settu 2 tsk. af Gut Feeling í kalt vatn fyrir snögglegan sellerí safa
  • Tvær teskeiðar af Gut Feeling innihalda 4 gr. af trefjum
  • Inniheldur náttúruleg meltingarensím og inúlín trefja
  • Varan er hönnuð af reyndum næringarfræðingum
  • Inniheldur 30 skammta sem gerir 169 kr. per skammtur
  • Til að fá fleiri ráð til að bæta meltinguna mælum við með þessari grein
AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri. Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind, Eiðistorg og Kringlu. Lyfja Garðabæ, Lágmúla, Smáratorgi, Smáralind, Egilsstöðum, Reykjanesbæ og Árbæ Vegan Búðin Faxafeni 14 Certified Organic, No GMO, Gluten Free, 100% Vegan100% Natural, No Additives, Dairy Free, Soy Free

Blá Spirulína

kr.2.490kr.16.990
✓ Einungis 100% náttúruleg blá spirulína! Engin aukaefni viðbætt. ✓ Duftið er laust við allt vont spirulínu bragð. Sem betur fer! Blá Spirulína (Phycocyanin) er unnin úr vel þekkta þörungnum spirulínu sem er talin ein næringarríkasta fæða sem völ er á. Blá spirulína inniheldur magn af próteini, vítamínum, steinefnum, karótenóíð og andoxunarefnum sem ættu að gefa þér gott "kick" inn í daginn. Það er nóg að setja hálfa til heila teskeið af duftinu í þeyting, jógúrt, ofurskál eða drykk til að fá fallegan bláan lit og aukin næringarefni. Við bendum samt á að liturinn passar misvel við aðra liti en það er mjög gaman að prófa sig áfram

JÓLA OFURSKÁL 🎄 

  • Nokkrir frosnir bananar (ég set stundum frosna kúrbít bita á móti til að minnka sætu)
  • 1-2 tsk. af blárri spirulínu
  • dass af plöntumjólk (ég elska kókosmjólk)
  • 2 msk. af jógúrti
  • 1/2 tsk. af kanil (má sleppa)
  • 1/2 tsk af engifer (má sleppa)
  • 1/2 tsk. af múskat (má sleppa)
Allt er blandað saman í öflugum blandara eða matvinnsluvél. Athugið að þar sem unnið er með mikið frosið hráefni þá gæti þurft að stoppa inn á milli og hræra með skeið eða jafnvel bæta smá meiri vökva. Toppaðu skálina með því sem þig girnist en við mælum með piparköku crumble eða jafnvel bókhveiti granóla til að lauma enn fleiri næringarefnum að! Þessi bláa ofurskál slær líka rækilega í gegn hjá flestum aldurshópum: sjá hér en fleiri uppskriftir má síðan finna hér. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri. Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Smáralind, Spöng og Kringlunni

Plant Collagen Organic 120 gr.

kr.3.563
INNIHALDSEFNI: Tocos*, Baunaprótein*, Tremella*, Vanilla*, Lucuma* og Aloe Vera* (*lífrænt) Plant Collagen var hannað af reyndum næringarfræðingum til að tryggja bestu virkni út frá samsetningu hráefna til að styðja við húðheilsu og kollagen framleiðslu líkamans. Virkilega bragðgóð blanda sem einnig er hægt að nýta sem vanillu „creamer“ í drykki.
  • Plant Collagen e-bók er niðurhalanleg eftir kaup með allskonar fróðleik og dýrindis uppskriftum!
AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Krónan  Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri. Hagkaup  Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind og Kringlunni.  

Super Green Organic 150 gr.

kr.3.563

8 AF HVERJUM 10 BORÐA EKKI NÆGILEGA MIKIÐ AF GRÆNFÆÐI, ÞESS VEGNA HÖNNUÐU YOUR SUPER ÞESSA MÖGNUÐU VÖRU

INNIHALDSEFNI: Hveitigras*, Bygggras*, Baobab*, Moringa*, Chlorella* og Spirulína* (*lífrænt) Super Green auðveldar þér að efla inntöku á næringarríku grænfæði en þú setur einfaldlega eina teskeið í vatn, jógúrt, þeytinginn, safa eða hvað svo sem þig girnist fyrir aukin næringarefni og heilsufarslega ávinninga.
  • Super Green inniheldur fjölbreytt magn vítamína og steinefna
  • Super Green inniheldur einnig trefjar, prótein & andoxunarefni
Blandan var hönnuð af reyndum næringarfræðingum til að tryggja bestu samsetningu út frá virkni hráefna. Byrjaðu daginn á einföldum grænum þeyting, eins og þessum hér. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind og Kringlu. Vegan Búðin Faxafeni 14

Energy Bomb Organic 200 gr.

kr.3.563
INNIHALDSEFNI: Acaí*, Guarana*, Lucuma*, Maca* og Banani* (*lífrænt) Vertu óstöðvandi með þessum náttúrulega orkugjafa sem inniheldur 39 mg. af koffíni í hverjum skammti (5 gr.). Orkan sem þú færð er langvarandi í allt að 8 klst. og án koffínfalls!
  • Energy Bomb er ríkt af andoxunarefnum (ORAC 16500 μmol TE)
Ásamt því að geta aukið orku er þessi ofurblanda einnig rík af ýmsum vítamínum og steinefnum sem geta hjálpað kroppnum að líða sem best og ná árangri. Fullkomið í vatn, safa, jógúrt, grautinn eða þeytinginn! Einstaklega hentugt fyrir þá sem vilja fækka kaffibollum og orkudrykkjum yfir daginn. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind, Eiðistorg og Kringlu

Matcha duft

kr.2.490
Ertu að leita leiða til að fá betri fókus og jafnari orku yfir daginn? Þá ráðleggjum við þér að prófa þetta 100% náttúrulega og hreina matcha duft frá Rawnice. Duftið er fínmalað úr japönskum grænte laufum og inniheldur ríkulegt magn andoxunarefna, vítamína og steinefna til að styðja við almenna heilsu. Matcha er þekkt fyrir að vera ríkt af andoxunarefnum en inniheldur u.þ.b. 3x meira magn af því en grænt te. Duftið er án allra aukaefna og engum sætugjafa viðbætt. Þú notar einfaldlega 1 tsk. til að útbúa matcha latte eða te. Eins getur þú notað matcha í  smoothie, baksturinn eða matargerð en duftið gefur fallegan daufan grænan lit.

MATCHA HEFUR VERIÐ TENGT VIÐ:

• AUKIÐ ORKUSTIG • BETRI FÓKUS & AFKÖST • ÞYNGDARSTJÓRNUN • STERKARA ÓNÆMISKERFI • HRAÐARI BRENNSLA • MINNI STREITA Á NÝRNAHETTUR AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Krónan  Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri.  

Activated Charcoal duft

kr.2.490kr.9.990
ACTIVATED CHARCOAL ÚR BAMBUS SEM ER HITAÐUR VIÐ HÁAN HITA OG HLEYPT AÐ SÚREFNI TIL AÐ MYNDA ÞETTA FÍNGERÐA SVARTA DUFT. Activated Charcoal er þekkt fyrir hreinsunar eiginleika og lengi verið notað fyrir náttúrulega hreinsun, t.d. eftir drykkju eða óhollan mat.
  • 1 tsk. af Activated Charcoal í vatn með sítrónu- og engifersafa fyrir veglegt "pick me up"
  • Virkar sem náttúrulegur svartur matarlitur í ofurskálar, bakstur og matargerð
  • Margir hafa notað activated charcoal í DIY andlitsmaska og tannhvítun
  • Hvað með að fara út fyrir þetta hefðbundna og gera svartar bollakökur eins og þessar   hér.
  • Það er síðan ákveðin tískubylgja í gangi þar sem fólk er mikið að baka svart brauð! Þú getur séð uppskrift af því til dæmis   hér.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Kringlu, Smáralind, Skeifu, Garðabæ, Spöng, Akureyri og Eiðistorg Athugið að ekki ráðlagt að innbyrða lyf nema nokkrum klst. fyrir eða eftir inntöku á Activated Charcoal svo það hafi ekki áhrif á virkni lyfsins. Þessi vara flokkast sem fæðubótarefni og er ráðlagður dagskammtur ein teskeið eða 5 gr. Ekki nota meira en ráðlagt er. Fæðubótarefni getur ekki komið í veg fyrir fjölbreytta fæðu og heilbrigðan lífstíl. Ef þú ert barnshafandi eða með barn á brjósti er best að velja fæðubótarefni í samráði við þinn lækni.

OrangeFit Jarðaberjaprótein 25 gr.

kr.245
Virkilega bragðgott jarðaberjaprótein sem inniheldur auðmeltanlegan próteingjafa eða baunaprótein. Þú ættir því ekki að upplifa uppþembu eins og gerist stundum með mysu- og sojaprótein. Ef þú vilt fyrst prófa, þá seljum við þetta prótein í 25 gr. pokum sem samsvarar einum skammti Próteinið inniheldur allar nauðsynlegu amínósýrurnar og er glútenlaust, 100% vegan og án gervisætu. Í HVERJUM SKAMMTI: Kaloríur: 99 Prótein: 19,4 gr. Kolvetni: 0,8 gr. Fita: 2,2 gr.

Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Acaí duft 60 gr.

kr.2.190

HREINT ACAÍ DUFT FRÁ AMAZON REGNSKÓGINUM

Settu hálfa til eina teskeið í þeytinginn, jógúrtið, ofurskálina eða hvað sem þig girnist fyrir fallegan fjólubláan lit þökk sé anthocyanins. Anthocyanins vinna sem andoxunarefni í líkamanum en acaí ber eru vel auðug af andoxunarefnum.
Nafnið á þessum berjum er jafnvel erfiðara að bera fram en GiF. (Er það JIFF eða G.I.F??!!) Hér er smá kennsla þess nefnis:
PS. Ýttu hér til að hlusta! AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Krónan: Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni og Akureyri. Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind og Kringlu.

Góðgerlar 60 hylki

kr.2.632
Þessir vegan góðgerlar (já, hylkin eru líka vegan!), innihalda 13 tegundir góðgerla og DigeZyme® meltingarensím! Við mælum með því að þú takir 1 til 2 hylki á dag. Ráðlagt er að taka hylkin á tóman maga. Til dæmis þegar þú vaknar og rétt áður en þú ferð að sofa! Það er hlutverk góðra baktería í þörmunum að sjá til þess að meltingin haldist í lagi. Þarmaflóran getur stýrt fæðuinntökunni þinni og um 70% af ónæmiskerfinu er hýst í þörmunum. Þetta undirstrikar mikilvægi þess að hlúa að þessari starfstöð líkamanns til að viðhalda góðri líkamlegri og andlegri heilsu. Til þess að hlúa enn betur að þörmunum og meltingarstarfseminni skiptir miklu máli að sofa vel, borða hreina og holla fæðu, slaka á, stunda líkamsrækt og innbyrða ráðlagðan dagskammt af góðgerlum. Góðgerla finnur þú til dæmis í (soja) jógúrti, súrkáli, súrum gúrkum, miso og tempeh. -- Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Rauðrófuduft – 50 gr.

kr.1.743

FÁÐU HEILSUFARSLEGU ÁVINNINGA RAUÐRÓFUNNAR MEÐ ÞESSU NÁTTÚRULEGA RAUÐRÓFUDUFTI

Rauðrófa er afar næringarrík og inniheldur mikilvæg næringarefni á borð við trefjar, fólat (B9 vítamín), mangan, járn, C-vítamín og kalíum. Rauðrófan er einnig þekkt fyrir að innihelda lítið af hitaeiningum. Mikið af íþróttafólki innbyrðir rauðrófu fyrir aukinn árangur en talið er að rauðrófan geti aukið úthald og súrefnisupptöku í blóði. ✓ Í duftinu eru engin aukaefni né sætugjafar ✓ Einungis 100% náttúrulegt duft úr rauðrófu ✓ Gefur fallegan rauðan lit án þess að allt eldhúsið verði rautt ✓ Fullkomið í jógúrt, smoothie, bakstur og bara nefndu það!