HÚÐVÖRUR
Sýna 1–12 af 17 niðurstöðurSorted by price: high to low
Filter-
ALLAR VÖRUR
Caffeinated Duo Set
kr. 8.490Original price was: kr. 8.490.kr. 6.792Current price is: kr. 6.792. Setja í körfuNældu þér í vinsælustu vörurnar frá UpCircle á yfir 20% afslætti en við erum auðvitað að tala um andlitsserumið með kaffi- og rosehip olíu sem og augnkremið með hlyntré og kaffi.
Kemur saman í pakka og hentar því vel sem gjöf fyrir hana eða hann sem vill auka aðeins lífsgæðin!
Serumið er ríkt af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar! Margir hafa einnig notað það sem hár eða skeggolíu. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu. Þvílík fjárfesting!
Augnkremið hefur róandi áhrif og getur dregið úr bólgum í húðinni sem og dregið úr pokum. Augnkremið inniheldur hýalúrónsýru sem getur hjálpað til við að þétta og slétta húðina.
ÁFYLLING:
áfyllingar fyrir þessar vörur eru fáanlegar í EkóHúsið Síðumúla 11 -
ALLAR VÖRUR
HAND + BODY DUO GIFT SET
kr. 6.390Original price was: kr. 6.390.kr. 5.112Current price is: kr. 5.112. Setja í körfu -
ALLAR VÖRUR
Peptide Serum with Custard Apple + Blood Orange
kr. 5.990Original price was: kr. 5.990.kr. 4.792Current price is: kr. 4.792. Setja í körfuNÝSTÁRLEGT ÞRÍPEPTÍÐ SERUM HANNAÐ TIL AÐ ÖRVA KOLLAGEN FRAMLEIÐSLU, DRAGA ÚR HRUKKUM OG VINNA GEGN ÖLDRUN HÚÐARINNAR
Formúlan inniheldur hátt hlutfall af níasínamíði (B3) sem jafnar húðlit og veitir raka fyrir mýkri og heilbrigðara yfirbragð húðarinnar. Eins og alltaf er þessi vara frá UpCircle Beauty vegan, ekki prófuð á dýrum, í 100% endurvinnanlegum umbúðum og handgerð í Bretlandi. 93% náttúruleg formúla.
Peptíðserum UpCircle bætir virkni annarra húðvara svo þú færð betri árangur úr allri húðrútínunni þinni. Serumið inniheldur endurnýtt rjómaepladuft sem býr yfir frábærri virkni en stuðlar meðal annars að jafnvægi í húðinni og dregur úr bólgum. Serumið inniheldur einnig endurnýtt blóðappelsínuþykkni sem verndar húðina gegn óhreinindum og öðrum mengandi þáttum í síbreytilegu umhverfi okkar.
-
ALLAR VÖRUR
Night Cream with Hyaluronic Acid + Niacinamide 55 ml.
kr. 5.990Original price was: kr. 5.990.kr. 4.792Current price is: kr. 4.792. Setja í körfuMilt og ilmefnalaust næturkrem sem er samþykkt af húðlæknum og hentar nær öllum húðtýpum. Þetta árangursríka krem sér um að næra, endurnýja og vernda húðina á meðan við nælum okkur í verðskuldaðan nætursvefn.
Formúlan er rík af níasínamíði (B3 vítamín) sem jafnar húðtón, hyaluronic sýru sem bindur raka og viðheldur þéttleika húðarinnar ásamt rosehip-olíu sem hjálpar húðinni að endurnýja sig. Þetta næturkrem inniheldur einnig kaldpressað og afar andoxunarríkt bláberjaþykkn sem er ríkt af A vítamíni og getur varið húðina gegn útfjólubláum geislum. Einnig er bláberjaþykkni uppspretta pro-retínóls sem vinnur gegn öldrun húðarinnar.
Nú getur þú aldreilis dekrað við húðina og boðið henni upp á þetta margverðlaunaða, 100% vegan næturkrem sem er engu líkt!
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af kreminu fæst þar líka -
ALLAR VÖRUR
Eye Cream with Cucumber, Hyaluronic Acid + Coffee 15 ml.
kr. 5.990Original price was: kr. 5.990.kr. 4.792Current price is: kr. 4.792. Setja í körfuMEST SELDA SNYRTIVARAN OKKAR OG EKKI AÐ ÁSTÆÐULAUSU
Augnkrem unnið úr kaffiolíu og þykkni úr hlyntrésbörk
Hefur róandi áhrif, endurnærir og dregur úr bólgum í húð
Hentugt fyrir allar húðtýpur og má nota undir andlitsfarða
Hýalúrónsýra hjálpar til við að þétta og slétta húðina
Framleiddur á sjálfbæran máta í BretlandiAÐRIR SÖLUSTAÐIR:
HRÍM Kringlunni
EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af kreminu fæst þar líka -
ALLAR VÖRUR
Face Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera 60 ml.
kr. 5.990Original price was: kr. 5.990.kr. 4.792Current price is: kr. 4.792. Setja í körfuMILT DAGKREM SEM VEITIR FRÁBÆRAN RAKA OG NÆRIR HÚÐINA MEÐ E-VÍTAMÍNI OG ÖÐRUM ANDOXUNAREFNUM SEM GETA HÆGT Á ÖLDRUN
Þetta dagkrem hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð. Við höfum einnig fengið endurgjöf frá konum með mikinn rósroða og virkilega slæma húð eftir barnsburð sem segja að þetta krem hafi algjörlega bjargað sér.
Kremið inniheldur fínmalað púður úr endurnýttum argan skeljum sem hefðu annars farið til spillis. Argan skeljarnar eru ríkar af E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem gera húðinni mikið gott. Kakósmjör, aloe vera, og blóðappelsína er einnig að finna í þessu dásemdar kremi en þessi innihaldsefni eru þekkt fyrir húðróandi áhrif.
Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. Þegar krukkan þín klárast, þá getur þú verslað áfyllingu í EkóHúsinu að Síðumúla 11.
“Þetta unaðslega dagkrem frá UpCircle kom eins og kallað inn í líf mitt 2019 þegar ég var að glíma við ýmis húðvandamál. Húðin mín hefur alla tíð verið ótrúlega þurr. Ef rakakremið gleymdist í ferðalögum þá var ég í vondum málum! Það voru meira að segja byrjaðir að myndast krónískir þurrkublettir framan í mér. Dagkremið frá UpCircle hefur gert kraftaverk fyrir mína húð þar sem ég get núna farið í sturtu án þess að líða eins og sandpappír í framan. Eins hafa bólur ekki gert eins mikið vart við sig eftir að ég byrjaði að nota UpCircle dagkremið (og hreinsimjólkina líka reyndar). Ef þú ert í svipuðum sporum og ég var í, að vera í dauðaleit af hinu fullkomna kremi sem er ekki með afgerandi lykt eða lætur þig klæja eða gefur þér roða í framan, þá er UpCircle dagkremið mjög sennilega fyrir þig!” – einlæg umsögn frá Kristínu Amy, eiganda Tropic.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af rakakreminu fæst þar líka
-
ALLAR VÖRUR
Body Cream with Aloe Vera + Cocoa Butter 120 ml.
kr. 5.990Original price was: kr. 5.990.kr. 4.792Current price is: kr. 4.792. Setja í körfuRakagefandi líkamskrem sem nærir og mýkir húðina
Auðvelt að dreifa og er húðin fljót að draga kremið í sig
Búið til m.a. úr döðlusteinskjarna sem hefur róandi áhrif á húð
Inniheldur einnig shea smjör og hörfræolíu sem næra og veita raka
Hentar öllum húðtýpum og skilur húðina eftir mjúka og endurnærða
Náttúruleg verðlaunavara framleidd í UK úr endurnýttu hráefniAÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af rakakreminu fæst þar líka
-
ALLAR VÖRUR
Face Mask with Kaolin Clay 60 ml.
kr. 5.990Original price was: kr. 5.990.kr. 4.792Current price is: kr. 4.792. Setja í körfuMildur en árangursríkur andlitsmaski sem virkar á flestar húðtýpur
Dregur úr bólum og fílapennslum ásamt því að vinna gegn útbrotum
Maskinn gefur húðinni mýkt og gljáa og skilur hana eftir í jafnvægi
Kaolin leir er þekktur fyrir að draga í sig óþarfa olíur og óhreinindi
Unninn úr endurnýttu fínmöluðu púðri úr ólífusteinum
Framleiddur á Englandi á siðferðislegan og sjálfbæran háttAÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af maskanum fæst þar líka
-
ALLAR VÖRUR
Cleansing Balm with Oat Oil and Vitamin E 55 ml.
kr. 5.990Original price was: kr. 5.990.kr. 4.792Current price is: kr. 4.792. Setja í körfuNærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu.
Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð.
Við mælum með þessu hreinsikremi af heilum hug en það er framleitt á sjálfbæran máta í UK með náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
- Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
- Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af hreinsinum fæst þar líka
-
ALLAR VÖRUR
Refillable Deodorant with Macadamia + Refill
kr. 4.990Original price was: kr. 4.990.kr. 3.992Current price is: kr. 3.992. Setja í körfu100% NÁTTÚRULEGUR OG MILDUR SVITALYKTAREYÐIR SEM HELDUR ÞÉR FERSKRI/FERSKUM YFIR DAGINN
Þessi dásamlega nýjung frá UpCircle býr svo vel að vera auðguð með makadamíuolíu sem nærir og veitir raka og gerir það að verkum að handakrikinn helst mjúkur yfir daginn. Svitalyktareyðirinn býr yfir frískandi sítrusilm af bergamot og límónu sem og endurunninni kaktusfíkju sem hefur bólgueyðandi eiginleika og róar húðertingu. Þessi svitalyktareyðir hentar öllum húðtýpum en þá er hann tilvalinn fyrir viðkvæma húð.
Svitalyktareyðirinn veitir jafna og langvarandi vörn í allt að 24 klukkustundir. Þessi háþróaða formúla hjá UpCircle er án matarsóda og tryggir virkni án þess að valda ertingu, hvort sem það er á morgunæfingum eða kvöldviðburðum. Þessi náttúrulegi svitalyktareyðir, gerður úr maísmjölsgrunni, tryggir mjúka ásetningu og létta og þægilega áferð.
UPCIRCLE LOFORÐIÐ
Þessi svitalyktareyðir dregur úr umhverfisáhrifum með því að nota 100% endurvinnanlegar umbúðir úr áli, auk þess sem hver áfyllingarhylki eru gerð úr 100% niðurbrjótanlegu pappaefni.
-
ALLAR VÖRUR
Face Toner with Hyaluronic Acid 100 ml.
kr. 4.990Original price was: kr. 4.990.kr. 3.992Current price is: kr. 3.992. Setja í körfuANDLITSTÓNER MEÐ CHAMOMILE: virkilega ferskur og rakagefandi andlitstóner úr chamomile þykkni sem inniheldur einnig græna mandarínu sem endurvekur og frískar upp á húðina. Tónerinn inniheldur hýalúrónsýru sem viðheldur þéttleika húðarinnar og getur dregið úr fínum línum.
Þessi tóner er hentugur fyrir allar húðtýpur og það má nota hann undir andlitsfarða sem og eftir andlitshreinsun. Við mælum klárlega með því að nota hann reglulega yfir daginn til að viðhalda þéttleika og ferskleika húðarinnar!
Ásamt öllum vörum frá UpCircle, þá er tónerinn framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi og inniheldur einungis 99% náttúruleg hágæða hráefni sem sum hver eru endurnýtt til að sporna gegn sóun.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af tónernum fæst þar líka -
ALLAR VÖRUR
Face Oil with Coffee and Rosehip Oil 30 ml.
kr. 4.990Original price was: kr. 4.990.kr. 3.992Current price is: kr. 3.992. Setja í körfuMARGVERÐLAUNA OG EIN VINSÆLASTA UPCIRCLE VARAN FRÁ UPPHAFI SEM BÝR YFIR FRÁBÆRRI VIRKNI FYRIR FLESTAR HÚÐTÝPUR
Þessi unaðslega andlitsolía (hét áður andlitsserum) inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af kaffi sem og jojoba-, sea buckthorn og rosehip olíum. Þessi andlitsolía var hönnuð til að örva kollagen framleiðslu húðarinnar og viðhalda þéttleika hennar. Fyrir bestan árangur er best að nota olíuna kvölds og morgna. Þú getur sett olíuna á rakakremið sem bindur rakann betur í búðinni og þú þarft aðeins örfáa litla dropa til að fá góðan árangur!
Þessi andlitsolía er samþykkt af húðlæknum og rík af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar. Margir hafa einnig notað þessa olíu sem hár eða skeggolíu og hentar því einnig fyrir karlmenn. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af seruminu fæst þar líka

























