kr.4.990Original price was: kr.4.990.kr.3.743Current price is: kr.3.743.
HREINT LÍFRÆNT VOTTAÐ PITAYA DUFT ÁN ALLRA AUKAEFNA
Pink pitaya eða bleikur drekaávöxtur er suðrænn ávöxtur sem þekktur er fyrir sinn fallega skærbleika lit og einstaka næringargildi. Ávöxturinn er ríkur af trefjum, C-vítamíni, beta-karótíni og betalain, en það er andoxunarefni sem gefur duftinu sinn fallega lit.
Duftið bætir ekki aðeins heilsu heldur gefur það hvers kyns drykkjum og máltíðum litríkt og girnilegt yfirbragð.
Duftið er unnið úr 100% lífrænt vottuðu pitaya sem hefur verið fryst og þurrkað samkvæmt GMP gæðastöðlum. Varan er án allra aukaefna, inniheldur hvorki rotvarnarefni né hefur verið geislað eða gerjað.
✓ Einungis 100% náttúrulegt duft úr bleikum drekaávexti
✓ Hálf til 2 teskeiðar fyrir fallegan lit og aukin næringarefni
✓ Við seljum Pink Pitaya duft einnig í 500 gr. pokum!
Í þessu próteini er að finna auðmeltanlega próteingjafa eða bauna- og rísprótein sem líkaminn á auðvelt með að vinna úr. Í hverjum skammti er 22 gr. af próteini og formúlan er auðguð með trefjum og meltingarensímum til þess að stuðla að bættri meltingu.
Við notum avókadó þykkni til þess að gera áferðina "rjómakennda" sem verður til þess að próteindrykkirnir verða talsvert grinilegri.
Það sem gerir okkar prótein sérstakt er að við notum stevíu sem sætugjafa og sniðgöngum alveg gerviefni á borð við → sucralose og acesulfam-K 🚫 Þar af leiðandi er próteinið ekki of sætt og ekki með óþarfa eftirbragð.
Próteinið er einnig glútenlaust, án GMO og 100% vegan 🤍
EINFALDUR VANILLU SMOOTHIE
1 banani
1 bolli af frosnum jarðaberjum
1 bolli af frosnum ananas bitum
30 ml. vanilluprótein (full scoop er 50 ml.)
1 msk. möndlusmjör
dass af plöntumjólk
2 tsk. acaí duft
hægt að bæta hampfræjum eða chia (valkvætt)
Allt sett saman í blandari þar til mjúk áferð myndast 👌🏽
Augnkrem unnið úr kaffiolíu og þykkni úr hlyntrésbörk
Hefur róandi áhrif, endurnærir og dregur úr bólgum í húð
Hentugt fyrir allar húðtýpur og má nota undir andlitsfarða
Hýalúrónsýra hjálpar til við að þétta og slétta húðina
Framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
HRÍM Kringlunni
EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af kreminu fæst þar líka
MARGVERÐLAUNA OG EIN VINSÆLASTA UPCIRCLE VARAN FRÁ UPPHAFI SEM BÝR YFIR FRÁBÆRRI VIRKNI FYRIR FLESTAR HÚÐTÝPUR
Þessi unaðslega andlitsolía (hét áður andlitsserum) inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af kaffi sem og jojoba-, sea buckthorn og rosehip olíum. Þessi andlitsolía var hönnuð til að örva kollagen framleiðslu húðarinnar og viðhalda þéttleika hennar. Fyrir bestan árangur er best að nota olíuna kvölds og morgna. Þú getur sett olíuna á rakakremið sem bindur rakann betur í búðinni og þú þarft aðeins örfáa litla dropa til að fá góðan árangur!
Þessi andlitsolía er samþykkt af húðlæknum og rík af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar. Margir hafa einnig notað þessa olíu sem hár eða skeggolíu og hentar því einnig fyrir karlmenn. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af seruminu fæst þar líka
HANDGERT SÚKKULAÐISTYKKI SEM BRAGÐAST EINS OG HEFÐBUNDIN SÆNSK SÚKKULAÐI/KÓKOSKÚLA 😋
Fyllingin er dúnmjúk með dýrindis keim af kaffi og kókos. Fullkomið fyrir kósýkvöldið eða með kaffinu! Allt súkkulaði frá Vegan Delights er án pálmolíu og 100% vegan. Þau nota líka alltaf cocoa sem er framleitt á ábyrgan hátt með sjálfbærni að leiðarljósi 💛
AÐRIR SÖLUSTAÐIR
HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og Akureyri
Í þessu próteini er að finna auðmeltanlega próteingjafa eða bauna- og rísprótein sem líkaminn á auðvelt með að vinna úr. Í hverjum skammti er 21 gr. af próteini og formúlan er auðguð með trefjum og meltingarensímum til þess að stuðla að bættri meltingu.
Við notum avókadó þykkni til þess að gera áferðina “rjómakennda” sem verður til þess að próteindrykkirnir verða talsvert grinilegri. Það sem gerir okkar prótein sérstakt er að við notum stevíu sem sætugjafa og sniðgöngum alveg gerviefni á borð við → sucralose og acesulfam-K 🚫 Þar af leiðandi er próteinið ekki of sætt og ekki með óþarfa eftirbragð.
Próteinið er einnig glútenlaust, án GMO og 100% vegan 🤍Uppskrift af prótein kaffidrykk ☕️
settu eftirfarandi í blandara:
1 banani
1 msk möndlusmjör
2-3 döðlur
1 skeið Tropic súkkulaðiprótein
1-2 dl möndlumjólk
Settu 2 dl. af klökum í glas, helltu 1 dl. af kaffi yfir & því næst topparu með próteindrykknum. Hrærið og njótið 🫶🏼
MILT DAGKREM SEM VEITIR FRÁBÆRAN RAKA OG NÆRIR HÚÐINA MEÐ E-VÍTAMÍNI OG ÖÐRUM ANDOXUNAREFNUM SEM GETA HÆGT Á ÖLDRUN
Þetta dagkrem hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð. Við höfum einnig fengið endurgjöf frá konum með mikinn rósroða og virkilega slæma húð eftir barnsburð sem segja að þetta krem hafi algjörlega bjargað sér.
Kremið inniheldur fínmalað púður úr endurnýttum argan skeljum sem hefðu annars farið til spillis. Argan skeljarnar eru ríkar af E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem gera húðinni mikið gott. Kakósmjör, aloe vera, og blóðappelsína er einnig að finna í þessu dásemdar kremi en þessi innihaldsefni eru þekkt fyrir húðróandi áhrif.
Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. Þegar krukkan þín klárast, þá getur þú verslað áfyllingu í EkóHúsinu að Síðumúla 11.
"Þetta unaðslega dagkrem frá UpCircle kom eins og kallað inn í líf mitt 2019 þegar ég var að glíma við ýmis húðvandamál. Húðin mín hefur alla tíð verið ótrúlega þurr. Ef rakakremið gleymdist í ferðalögum þá var ég í vondum málum! Það voru meira að segja byrjaðir að myndast krónískir þurrkublettir framan í mér. Dagkremið frá UpCircle hefur gert kraftaverk fyrir mína húð þar sem ég get núna farið í sturtu án þess að líða eins og sandpappír í framan. Eins hafa bólur ekki gert eins mikið vart við sig eftir að ég byrjaði að nota UpCircle dagkremið (og hreinsimjólkina líka reyndar). Ef þú ert í svipuðum sporum og ég var í, að vera í dauðaleit af hinu fullkomna kremi sem er ekki með afgerandi lykt eða lætur þig klæja eða gefur þér roða í framan, þá er UpCircle dagkremið mjög sennilega fyrir þig!" - einlæg umsögn frá Kristínu Amy, eiganda Tropic.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af rakakreminu fæst þar líka
Fiji Feelin' sjampóstykkið okkar býr yfir vandaðri formúlu sem hentar flestum hártýpum og skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt með unaðslegum keim af kryddaðri vanillu og kókos.
"Ég var orðin þreytt á því að prófa trekk í trekk ný sjampóstykki sem skildu hárið mitt eftir fitugt og hreinlega sjúskað. Ég vildi fá svipaða upplifun af hárþvotti eins og með hefðbundin sjampó sem maður kaupir á hárgreiðslustofu nema helst án skaðlegra efna. Ég tók því málin í mínar hendur og til varð Fiji Feelin'!" - Amy stofnandi Tropic
Fiji Feelin er vegan og cruelty-free eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben.Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
HANDGERT VEGAN SNICKERS - NEMA BARA SVO MIKLU MIKLU BETRA 😋
Fyllingin er dúnmjúk & crunchy með karamellu og jarðhnetum. Fullkomið fyrir kósýkvöldið eða með kaffinu! Allt súkkulaði frá Vegan Delights er án pálmolíu og 100% vegan. Þau nota líka alltaf cocoa sem er framleitt á ábyrgan hátt með sjálfbærni að leiðarljósi 💛
AÐRIR SÖLUSTAÐIR
HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og Akureyri
GUÐDÓMLEGT súkkulaðistykki þar sem bleika og svarta hauskúpu gúmmíið og rjómakennt súkkulaði dekrar við bragðlaukana 😋
ATH. fáanlegt í forpöntun en ný sending er væntanleg 7.-11. júlí 🙉
Hún Anahita, stofnandi Vegan Delights elskar að koma með framandi nýjungar á markað og hefur þetta súkkulaðistykki gjörsamlega slegið í gegn! Alveg sama hvort þú ert vegan eða ekki, þessi nýjung ætti ekki að fara framhjá neinum 💗
Allt súkkulaði frá Vegan Delights er án pálmolíu og 100% vegan. Þau nota líka alltaf cocoa sem er framleitt á ábyrgan hátt með sjálfbærni að leiðarljósi. Þá eru öll súkkulaðistykki frá þeim einnig handgerð!
Milt og ilmefnalaust næturkrem sem er samþykkt af húðlæknum og hentar nær öllum húðtýpum. Þetta árangursríka krem sér um að næra, endurnýja og vernda húðina á meðan við nælum okkur í verðskuldaðan nætursvefn.
Formúlan er rík af níasínamíði (B3 vítamín) sem jafnar húðtón, hyaluronic sýru sem bindur raka og viðheldur þéttleika húðarinnar ásamt rosehip-olíu sem hjálpar húðinni að endurnýja sig. Þetta næturkrem inniheldur einnig kaldpressað og afar andoxunarríkt bláberjaþykkn sem er ríkt af A vítamíni og getur varið húðina gegn útfjólubláum geislum. Einnig er bláberjaþykkni uppspretta pro-retínóls sem vinnur gegn öldrun húðarinnar.
Nú getur þú aldreilis dekrað við húðina og boðið henni upp á þetta margverðlaunaða, 100% vegan næturkrem sem er engu líkt!
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af kreminu fæst þar líka