• VERSLA
    Screenshot 2024-09-18 at 10.48.37

    ALLAR VÖRUR

    Screenshot 2025-12-18 at 11.21.27

    LJÚFMETI

    your-superfoods-superfood-mix-single-mix-power-matcha-8718868809025-171011-organic-super-foods-17835632656

    HEILSUVÖRUR

    Tropic=Vorur-158

    SNYRTIVÖRUR

  • UPPSKRIFTIR
  • BLOGG
  • Gjafavara
  • Útsala
Tropic Tropic
Login / Register
1 item / kr.2.290
Menu
Tropic Tropic
1 item / kr.2.290
“Fiji Feelin Conditioner Bar” hefur verið bætt í körfuna. Skoða körfu
Click to enlarge
Heim Snyrtivörur Húðvörur Hand + Body Lotion with Bergamot 250 ml.
Night Cream with Hyaluronic Acid + Niacinamide 55 ml.
Night Cream with Hyaluronic Acid + Niacinamide 55 ml. kr.5.990
Back to products
HAND + BODY DUO GIFT SET
HAND + BODY DUO GIFT SET kr.6.390

Hand + Body Lotion with Bergamot 250 ml.

kr.3.990

  • Afar rakagefandi hand- og líkamskrem
  • Hentar flestum húðtýpum og sérstaklega þurri húð
  • Býr yfir ferskum sítrus ilm af bergamot, greipaldin og sítrónugrasi
  • Veitir húðinni vörn og aðstoðar við uppbyggingu hennar
  • Endurlífgar húðina og skilur hana eftir ögn ilmandi

   

Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru

Á lager

Vörunúmer: UC27 Flokkar: Allar vörur, Húðvörur, UpCircle
  • Lýsing
Lýsing

UPPLÝSINGAR

98% náttúrulegt hand- og líkamskrem eða lotion eins og það er kallað hjá UpCircle sem hentar öllum húðtýpum. Kremið veitir húðinni raka og skilur hana eftir vel endurnærða og ferska. Bergamot vatnið í kreminu er aukaafurð úr djús iðnaðinum, en það ásamt greip- og sítrónugrasolíunnar sér um að endurlífga húðina, veita henni vörn og aðstoða við uppbyggingu hennar. Þetta unaðslega krem eða lotation veldur svo sannarlega ekki vonbrigðum!

Við mælum heilshugar með heilögu tvennunni; Hand- + Líkamssápa með Kiwi & Hand + Líkamskremið með Bergamot. Taktu húðvörurnar á næsta stig og veldu UpCircle. Húðin þín á það skilið ?‍♀️

 

INNIHALD

98% NATURAL INGREDIENTS: Aqua, Helianthus Annuus Seed Oil, Cocos Nucifera (Coconut) Fruit Oil, Sodium Stearoyl Lactylate, Cetearyl Alcohol, Cetyl Alcohol, Prunus Amygdalus Dulcis (Almond) Oil, Simmondsia Chinensis (Jojoba) Seed Oil, Theobroma Cacao Seed Butter, Glyceryl Stearate, Citrus Aurantium Bergamia (Bergamot) Peel Water, Citrus Aurantium Dulcis (Orange) Peel Oil, Citrus Grandis (Grapefruit) Peel Oil, Mentha Piperita (Peppermint) Oil, Cymbopogon Flexuosus (Lemongrass) Oil, Tocopherol, Potassium Sorbate, 4-Terpineol, Dehydroacetic Acid, Benzyl Alcohol, Limonene^, Citronellol^, Linalool^, Geraniol^, Citral^. ^Natural constituent of essential oils listed.

UMBÚÐIR

Sápan er í glerflösku með plasttappa. Þegar sápan er búin – geymdu tappann og veldu flösku með ál-tappa í næstu pöntun.

Aðrar spennandi vörur

Bath Salts with Epsom, Sea and Himalayan Pink Salt 350 ml.

kr.3.490
These beautifully scented bath salts feature luxurious natural salts and aromatic botanicals to help calm the mind and relax the body. Upcycled rose petals provide an uplifting floral scent, whilst the combination of lavender and geranium oil grounds the senses. Whilst you unwind and relax, the bath salts get to work. Each jar is brimming with upcycled rose petals and contains a trio of natural salts. The three natural salts include muscle-relaxing Epsom salt, breakout-busting sea salt and anti-pollutant Himalayan pink salt. Reused, repurposed, reloved: These bath salts are made with upcycled rose petals to inspire relaxation and to invigorate the senses.   The UpCircle Promise Natural, sustainable, vegan & cruelty-free. Housed in 100% plastic-free, refillable packaging.
Setja í körfu
Quick view
Sold out

Tropic Organic Acaí Powder 1000g

kr.19.990

LÍFRÆNT VOTTUÐ FROSTÞURRKUÐ ACAÍ BER FRÁ AMAZON REGNSKÓGINUM

Þessi dökkfjólubláu ber sem eiga rætur sínar að rekja til Amazon regnskógarins hafa náð miklum vinsældum síðustu ár. Berin eru þekkt fyrir háan andoxunarstuðul en acaí ber eru talin búa yfir 3x meira magni af andoxunarefnum en til dæmis bláber. Duftið er fíngert og hentar vel í þeyting, chia graut eða jógúrtina fyrir aukin vítamín og steinefni. Það sem er í uppáhaldi hjá Tropic teyminu eru acaí skálar.

UPPSKRIFT AF ACAÍ SKÁL

1 bolli af blönduðum frosnum berjum 30 ml. plöntuprótein (valkvæmt) 1-2 dl. af plöntumjólk 2 tsk. Tropic acaí duft 1 frosinn banani Öllu er blandað vel saman í blender eða matvinnsluvél. Þar sem mikið er frosið og áferðin verður ískennd að þá þarf blenderinn eða matvinnsluvélin að vera svolítið öflug. Stundum þarf að bæta við meiri vökva eða stoppa og hræra og byrja aftur, til að ná að blanda öllu almennilega saman Fullkomið "toppings" → fersk jarðaber, bananabitar, fersk bláber, hnetusmjör eða möndlusmjör, hempfræ, granóla og kakónibbur

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði Hagkaup: Garðabæ, Akureyri, Skeifunni, Smáralind, Spöng og Kringlu
Skoða vöru
Quick view

Face Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera 60 ml.

kr.5.990

MILT DAGKREM SEM VEITIR FRÁBÆRAN RAKA OG NÆRIR HÚÐINA MEÐ E-VÍTAMÍNI OG ÖÐRUM ANDOXUNAREFNUM SEM GETA HÆGT Á ÖLDRUN

Þetta dagkrem hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð. Við höfum einnig fengið endurgjöf frá konum með mikinn rósroða og virkilega slæma húð eftir barnsburð sem segja að þetta krem hafi algjörlega bjargað sér. Kremið inniheldur fínmalað púður úr endurnýttum argan skeljum sem hefðu annars farið til spillis. Argan skeljarnar eru ríkar af E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem gera húðinni mikið gott. Kakósmjör, aloe vera, og blóðappelsína er einnig að finna í þessu dásemdar kremi en þessi innihaldsefni eru þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. Þegar krukkan þín klárast, þá getur þú verslað áfyllingu í EkóHúsinu að Síðumúla 11. "Þetta unaðslega dagkrem frá UpCircle kom eins og kallað inn í líf mitt 2019 þegar ég var að glíma við ýmis húðvandamál. Húðin mín hefur alla tíð verið ótrúlega þurr. Ef rakakremið gleymdist í ferðalögum þá var ég í vondum málum! Það voru meira að segja byrjaðir að myndast krónískir þurrkublettir framan í mér. Dagkremið frá UpCircle hefur gert kraftaverk fyrir mína húð þar sem ég get núna farið í sturtu án þess að líða eins og sandpappír í framan. Eins hafa bólur ekki gert eins mikið vart við sig eftir að ég byrjaði að nota UpCircle dagkremið (og hreinsimjólkina líka reyndar). Ef þú ert í svipuðum sporum og ég var í, að vera í dauðaleit af hinu fullkomna kremi sem er ekki með afgerandi lykt eða lætur þig klæja eða gefur þér roða í framan, þá er UpCircle dagkremið mjög sennilega fyrir þig!" - einlæg umsögn frá Kristínu Amy, eiganda Tropic.

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af rakakreminu fæst þar líka  
Setja í körfu
Quick view
-25%Sold out

Organic Green Spirulina 500g

kr.6.490 Original price was: kr.6.490.kr.4.868Current price is: kr.4.868.
SPIRULÍNA ER EIN PRÓTEINRÍKASTA FÆÐA SEM TIL ER EN UM 60-70% ÞESSARA ÞÖRUNGS ER PRÓTEIN Spirulínan er jafnframt sneisafull af mikilvægum næringarefnum og ein af næringarríkustu ofurfæðum sem finnast í heiminum. Inniheldur meðal anars járn, B1, B2 og B3-vítamín, magnesíum, beta karótín, chlorophyll og omega fitusýrur. Spirulínan er ræktuð í hreinum ferskvatnslaugum og fær orku frá sólarljósi til vaxtar. Spirulínan er lágsmarksunnin, aðeins náttúrulega þurrkað til að mynda fíngert duft. Passar vel í þeyting, jógúrt, drykkinn, yfirnóttu hafra eða chia graut.
Skoða vöru
Quick view

Tropic Chocolate Protein with Probiotics 500g

kr.3.990

LJÚFFENGT PLÖNTUPRÓTEIN MEÐ SÚKKULAÐI BRAGÐI

Í þessu próteini er að finna auðmeltanlega próteingjafa eða bauna- og rísprótein sem líkaminn á auðvelt með að vinna úr. Í hverjum skammti er 20 gr. af próteini og formúlan er auðguð með, góðgerlum, sem þarf ekki að hafa í kæli, trefjum og meltingarensímum til þess að stuðla að bættri meltingu. Við notum avókadó þykkni til þess að gera áferðina “rjómakennda” sem verður til þess að próteindrykkirnir verða talsvert grinilegri. Það sem gerir okkar prótein sérstakt er að við notum stevíu sem sætugjafa og sniðgöngum alveg gerviefni á borð við → sucralose og acesulfam-K Þar af leiðandi er próteinið ekki of sætt og ekki með óþarfa eftirbragð. Próteinið er einnig glútenlaust, án GMO og 100% vegan Uppskrift af prótein kaffidrykk   settu eftirfarandi í blandara: 1 banani 1 msk möndlusmjör 2-3 döðlur 1 skeið Tropic súkkulaðiprótein 1-2 dl möndlumjólk Settu 2 dl. af klökum í glas, helltu 1 dl. af kaffi yfir & því næst topparu með próteindrykknum. Hrærið og njótið

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði KRÓNAN • Grandi, Lindum, Flatahraun, Skeifan, Mosfellsbær, Selfossi, Akureyri, FITJUM og Bíldshöfði HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og Akureyri NETTÓ • Granda, Mjódd, Krossmóa, Glerártorgi og Egilsstöðum
Setja í körfu
Quick view

Maldives Mood Conditioner Bar

kr.2.290
Maldives Mood hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Maldives Mood sjampóstykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir mangó og ananas keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd! Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS. Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt. Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

NETTÓ • Glerártorgi, Mjódd, Egilsstöðum og Granda FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði
Setja í körfu
Quick view

Face Oil with Coffee and Rosehip Oil 30 ml.

kr.4.990

MARGVERÐLAUNA OG EIN VINSÆLASTA UPCIRCLE VARAN FRÁ UPPHAFI SEM BÝR YFIR FRÁBÆRRI VIRKNI FYRIR FLESTAR HÚÐTÝPUR

Þessi unaðslega andlitsolía (hét áður andlitsserum) inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af kaffi sem og jojoba-, sea buckthorn og rosehip olíum. Þessi andlitsolía var hönnuð til að örva kollagen framleiðslu húðarinnar og viðhalda þéttleika hennar. Fyrir bestan árangur er best að nota olíuna kvölds og morgna. Þú getur sett olíuna á rakakremið sem bindur rakann betur í búðinni og þú þarft aðeins örfáa litla dropa til að fá góðan árangur! Þessi andlitsolía er samþykkt af húðlæknum og rík af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar. Margir hafa einnig notað þessa olíu sem hár eða skeggolíu og hentar því einnig fyrir karlmenn. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af seruminu fæst þar líka
Setja í körfu
Quick view

Conditioner Crème with Rosemary Oil + Vitamin E

kr.3.890

HÁRNÆRINGIN FRÁ UPCIRCLE PARAST FULLKOMLEGA VIÐ SJAMPÓIÐ FRÁ ÞEIM OG VEITIR ÞÍNU HÁRI DJÚPA NÆRINGU MEÐ HÁGÆÐA HRÁEFNUM

Þessi hárnæring inniheldur náttúruleg hágæða hráefni á borð við kókosolíu, bambus þykkni og vax úr appelsínuberki sem verndar og varðveitir næringuna í hárinu. Útkoman er silkimjúkt og heilbrigt hár, sem við viljum jú flest! Appelsínubörkurinn sem notaður er í þessa hárnæringu er aukaafurð úr appelsínusafa framleiðslu. Vax úr appelsínuberki inniheldur "botanical lipids" sem virkar eins og hálfgert mýkingarefni og mýkir hárið og veitir því raka. Vaxið er einnig ríkt af C-vítamíni og getur bætt styrkleikann í hárinu sem getur minnkað líkur á að endar slitni. Hárnæringin hentar öllum hártýpum, þar á meðal afro, krulluðu, lituðu, olíukenndu og þurru hári.
Setja í körfu
Quick view
2025 TROPIC. ALLUR RÉTTUR ÁSKILINN.
Skilmálar - payments
  • Menu
  • Categories
  • Heilsuvörur
  • Gjafavara
  • Húðvörur
  • Hárvörur
  • Prótein
  • Ofurfæði
  • Súkkulaði
  • Ilmvötn
  • Vörumerki
  • VERSLA
  • UPPSKRIFTIR
  • BLOGG
  • Gjafavara
  • Útsala
  • Login / Register
Facebook Instagram
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Lestu um hvernig við notum vafrakökur.
More info Accept
Start typing to see products you are looking for.
Shop
1 item Cart
My account