• VERSLA
    Screenshot 2024-09-18 at 10.48.37

    ALLAR VÖRUR

    Tropic=Vorur-207

    LJÚFMETI

    your-superfoods-superfood-mix-single-mix-power-matcha-8718868809025-171011-organic-super-foods-17835632656

    HEILSUVÖRUR

    Lifestyle-3_EyeRoller+EyeCream_LR

    SNYRTIVÖRUR

  • UPPSKRIFTIR
  • HEILDSALA
  • BLOGG
  • GJAFAVARA
  • ÚTSALA
Tropic Tropic
Login / Register
1 item / kr.2.290
Menu
Tropic Tropic
1 item / kr.2.290
“Eye Roller” hefur verið bætt í körfuna. Skoða körfu
-30%
Click to enlarge
Heim SNYRTIVÖRUR HÚÐVÖRUR Lemongrass Body Scrub with Coffee 200 ml.
Face Toner with Hyaluronic Acid 100 ml.
Face Toner with Hyaluronic Acid 100 ml. kr.4.990
Back to products
Soap Travel Tin
Soap Travel Tin kr.2.290

Lemongrass Body Scrub with Coffee 200 ml.

kr.3.990 Original price was: kr.3.990.kr.2.793Current price is: kr.2.793.

  • Náttúrulegur líkamsskrúbbur sem hreinsar burt dauðar húðfrumur
  • Skilur húðina eftir mjúka, slétta og endurnærða
  • Unaðslegur ilmur af sítrónugrasi, límónu og kókos
  • Framleitt úr endurunnum kaffikorg frá kaffihúsum í London
  • Framleitt á sjálfbæran og siðferðislegan máta í Bretlandi
  • Líkamsskrúbburinn er 100% vegan

Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru

Aðeins 1 stk. eftir á lager

Vörunúmer: UC5 Flokkar: ALLAR VÖRUR, GJAFAVARA, HÚÐVÖRUR, SNYRTIVÖRUR, UPCIRCLE, ÚTSALA
  • Lýsing
Lýsing

Þessi vandaði og verðlaunaði líkamsskrúbbur úr kaffi og sítrónugrasi inniheldur einnig sjávarsalt, shea smjör, límónu- og kókosolíu.

Skrúbburinn hreinsar burt dauðar og þurrar húðfrumur og skilur húðina eftir mjúka, slétta og vel endurnærða. Shea smjörið sér til þess að næra húðina eftir skrúbbið.

Ilmurinn af sítrónugrasi, límónu- og kókosolíu minnir helst á suðræna paradís.

Kaffikorgurinn sem skrúbburinn inniheldur kemur einungis frá hágæða Arabísku kaffi.

Hvernig skal nota

Hrærðu aðeins í skrúbbnum í krukkunni áður en þú setur hann á líkamann. Eftir að þú hefur nuddað skrúbbinn vel skaltu bíða í nokkrar mínútur áður en þú skolar hann af þér.

Innihaldsefni

99% náttúruleg hráefni: Coffea Arabica Seed Powder, Sucrose, Sodium Chloride, Butyrospermum Parkii (Shea) Butter, Cocos Nucifera (Coconut) Fruit Oil, Citrus Aurantifolia (Lime) Peel Oil, Cymbopogon Citratus (Lemongrass) Leaf Oil, Cocos Nucifera Fruit Extract, Benzyl Alcohol, Dehydroacetic Acid, Benzoic Acid, Sorbic Acid, Limonene*, Linalool*, Citronellol*, Geraniol*, Citral*. *Natural constituent of essential oils listed

Umbúðir

Kemur í glerkrukku með ál loki. Ytri pakkningin er pappi. 100% endurvinnanlegar umbúðir

Aðrar spennandi vörur

Night Cream with Hyaluronic Acid + Niacinamide 55 ml.

kr.5.990
Milt og ilmefnalaust næturkrem sem er samþykkt af húðlæknum og hentar nær öllum húðtýpum. Þetta árangursríka krem sér um að næra, endurnýja og vernda húðina á meðan við nælum okkur í verðskuldaðan nætursvefn. Formúlan er rík af níasínamíði (B3 vítamín) sem jafnar húðtón, hyaluronic sýru sem bindur raka og viðheldur þéttleika húðarinnar ásamt rosehip-olíu sem hjálpar húðinni að endurnýja sig. Þetta næturkrem inniheldur einnig kaldpressað og afar andoxunarríkt bláberjaþykkn sem er ríkt af A vítamíni og getur varið húðina gegn útfjólubláum geislum. Einnig er bláberjaþykkni uppspretta pro-retínóls sem vinnur gegn öldrun húðarinnar. Nú getur þú aldreilis dekrað við húðina og boðið henni upp á þetta margverðlaunaða, 100% vegan næturkrem sem er engu líkt! AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af kreminu fæst þar líka  
Setja í körfu
Quick view
-30%

Fiji Feelin Conditioner Bar

kr.2.290 Original price was: kr.2.290.kr.1.603Current price is: kr.1.603.
Fiji Feelin' hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Fiji Feelin' hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir kryddaði vanillu keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd. Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS. Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt. Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði
Setja í körfu
Quick view
Sold out

Safety Razor Stand

kr.1.990
Aluminium safety razor stand for safe and hygienic storage of your razor. This razor stand is 100% plastic-free.
Skoða vöru
Quick view

Organic Green Spirulina 500g

kr.6.490
SPIRULÍNA ER EIN PRÓTEINRÍKASTA FÆÐA SEM TIL ER EN UM 60-70% ÞESSARA ÞÖRUNGS ER PRÓTEIN Spirulínan er jafnframt sneisafull af mikilvægum næringarefnum og ein af næringarríkustu ofurfæðum sem finnast í heiminum. Inniheldur meðal anars járn, B1, B2 og B3-vítamín, magnesíum, beta karótín, chlorophyll og omega fitusýrur. Spirulínan er ræktuð í hreinum ferskvatnslaugum og fær orku frá sólarljósi til vaxtar. Spirulínan er lágsmarksunnin, aðeins náttúrulega þurrkað til að mynda fíngert duft. Passar vel í þeyting, jógúrt, drykkinn, yfirnóttu hafra eða chia graut.
Setja í körfu
Quick view

Face Oil with Coffee and Rosehip Oil 30 ml.

kr.4.990

MARGVERÐLAUNA OG EIN VINSÆLASTA UPCIRCLE VARAN FRÁ UPPHAFI SEM BÝR YFIR FRÁBÆRRI VIRKNI FYRIR FLESTAR HÚÐTÝPUR

Þessi unaðslega andlitsolía (hét áður andlitsserum) inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af kaffi sem og jojoba-, sea buckthorn og rosehip olíum. Þessi andlitsolía var hönnuð til að örva kollagen framleiðslu húðarinnar og viðhalda þéttleika hennar. Fyrir bestan árangur er best að nota olíuna kvölds og morgna. Þú getur sett olíuna á rakakremið sem bindur rakann betur í búðinni og þú þarft aðeins örfáa litla dropa til að fá góðan árangur! Þessi andlitsolía er samþykkt af húðlæknum og rík af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar. Margir hafa einnig notað þessa olíu sem hár eða skeggolíu og hentar því einnig fyrir karlmenn. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af seruminu fæst þar líka
Setja í körfu
Quick view
-30%

Coffee Face Scrub with Citrus Blend 100 ml.

kr.3.990 Original price was: kr.3.990.kr.2.793Current price is: kr.2.793.

UNAÐSLEGUR KAFFISKRÚBBUR MEÐ SÍTRUS FYRIR FLESTAR HÚÐTEGUNDIR EN SÉRSTAKLEGA HANNAÐUR FYRIR ÞURRA HÚÐ

Þessi andlitsskrúbbur frá UpCircle inniheldur rosehip-, sætappelsínu og sítrónukjarnaolíur. Sætappelsínuolían hefur sótthreinsandi og bólgueyðandi áhrif sem stuðlar að minni roða og ertingu í húð, á meðan sítrónuolían frískar upp á húðina. Með þessum sótthreinsandi eiginleikum getur skrúbburinn hjálpað við meðhöndlun á bólum og öðrum blettum. Skrúbburinn fjarlægir dauðar húðfrumur og skilur húðina eftir mýkri, sléttari og endurnærðari. Sheasmjörið í skrúbbnum setur síðan punktinn yfir i-ið með góðum raka. Skrúbburinn er unninn úr úrvals Arabica kaffibaunakorg sem hefði annars farið til spillis frá kaffihúsum víðsvegar um London. Þessi skrúbbur hefur fengið birtingu í tímaritum á borð við The Times, Forbes, Glamour, The Sunday Times, Refinery 29, The Independent, Good Housekeeping og fleiri tímaritum.

AF HVERJU AÐ NOTA KAFFISKRÚBB? 

  • Kaffiskrúbbar eru fullir af andoxunarefnum og koffíni sem bæði hreinsar og eykur blóðflæði
  • Hentar sérstaklega vel þeim sem glíma við exem, acne, bólur og slitför
  • Koffínn hefur náttúrulega bólgueyðandi eiginleika sem hjálpar þeim sem glíma við bólgur og roða
Setja í körfu
Quick view

Hand + Body Lotion with Bergamot 250 ml.

kr.3.990
  • Afar rakagefandi hand- og líkamskrem
  • Hentar flestum húðtýpum og sérstaklega þurri húð
  • Býr yfir ferskum sítrus ilm af bergamot, greipaldin og sítrónugrasi
  • Veitir húðinni vörn og aðstoðar við uppbyggingu hennar
  • Endurlífgar húðina og skilur hana eftir ögn ilmandi
   
Setja í körfu
Quick view
-30%

Bath Salts with Epsom, Sea and Himalayan Pink Salt 350 ml.

kr.3.490 Original price was: kr.3.490.kr.2.443Current price is: kr.2.443.
These beautifully scented bath salts feature luxurious natural salts and aromatic botanicals to help calm the mind and relax the body. Upcycled rose petals provide an uplifting floral scent, whilst the combination of lavender and geranium oil grounds the senses. Whilst you unwind and relax, the bath salts get to work. Each jar is brimming with upcycled rose petals and contains a trio of natural salts. The three natural salts include muscle-relaxing Epsom salt, breakout-busting sea salt and anti-pollutant Himalayan pink salt. Reused, repurposed, reloved: These bath salts are made with upcycled rose petals to inspire relaxation and to invigorate the senses.   The UpCircle Promise Natural, sustainable, vegan & cruelty-free. Housed in 100% plastic-free, refillable packaging.
Setja í körfu
Quick view
2025 TROPIC. ALLUR RÉTTUR ÁSKILINN.
Skilmálar - payments
  • Menu
  • Categories
  • HEILSUVÖRUR
  • GJAFAVARA
  • HÚÐVÖRUR
  • HÁRVÖRUR
  • PRÓTEIN
  • OFURFÆÐI
  • SÚKKULAÐI
  • ILMVÖTN
  • VÖRUMERKI
  • VERSLA
  • UPPSKRIFTIR
  • HEILDSALA
  • BLOGG
  • GJAFAVARA
  • ÚTSALA
  • Login / Register
Facebook Instagram
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Lestu um hvernig við notum vafrakökur.
More info Accept
Start typing to see products you are looking for.

Sendum allar pantanir yfir 5000 kr. frítt með Dropp eða í næsta póstbox 🤍 Loka

Shop
1 item Cart
My account