• VERSLA
    Screenshot 2024-09-18 at 10.48.37

    ALLAR VÖRUR

    Tropic=Vorur-207

    LJÚFMETI

    your-superfoods-superfood-mix-single-mix-power-matcha-8718868809025-171011-organic-super-foods-17835632656

    HEILSUVÖRUR

    Lifestyle-3_EyeRoller+EyeCream_LR

    SNYRTIVÖRUR

  • UPPSKRIFTIR
  • HEILDSALA
  • BLOGG
  • GJAFAVARA
Tropic Tropic
Login / Register
0 items / kr.0
Menu
Tropic Tropic
0 items / kr.0
Click to enlarge
Heim SNYRTIVÖRUR HÁRVÖRUR Maldives Mood Shampoo Bar
Rakvélablöð 10 stk.
Rakvélablöð 10 stk. kr.890 Original price was: kr.890.kr.445Current price is: kr.445.
Back to products
Maldives Mood Conditioner Bar
Maldives Mood Conditioner Bar kr.2.290

Maldives Mood Shampoo Bar

kr.1.990

Maldives Mood sjampóstykkið okkar býr yfir vandaðri formúlu sem hentar flestum hártýpum og skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt með unaðslegum keim af mangó og ananas.

„Ég var orðin þreytt á því að prófa trekk í trekk ný sjampóstykki sem skildu hárið mitt eftir fitugt og hreinlega sjúskað. Ég vildi fá svipaða upplifun af hárþvotti eins og með hefðbundin sjampó sem maður kaupir á hárgreiðslustofu nema helst án skaðlegra efna. Ég tók því málin í mínar hendur og til varð Maldives Mood!“ – Amy stofnandi Tropic

Maldives Mood er vegan og cruelty-free eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben.

Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði

 

Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru

Á lager (hægt að leggja inn biðpöntun)

Vörunúmer: TRSH1 Flokkar: ALLAR VÖRUR, HÁRVÖRUR, SNYRTIVÖRUR, TROPIC Vörumerki: Tropic
  • Lýsing
Lýsing

INNIHALDSEFNI:

Sodium coco sulfate, kókosolía, ilmolíu blanda (fragrance án paraben og án phthalate), cocoa smjör, shea smjör, extra virgin ólífuolía, túrmerik.

Sodium coco sulfate er náttúrulegt hreinsiefni úr kókosolíu sem fjarlægir dauðar húðfrumur og óhreina fitu án þess að þurrka upp hársvörðinn. Sodium Coco Sulfate setur jafnvægi á náttúrulegar fitusýrur því þarftu talsvert minna af hárnæringu (ef þú notar hárnæringu yfirleitt).

HVERNIG SKAL NOTA:

Þú nuddar einfaldlega sjampóstykkinu við blautt hárið í sturtunni og það byrjar að freiða mjög vel. Þú þarft mjög lítið til að það byrji að freiða og nuddar vel í allt hárið, einnig hársvörð en þessi sjampóstykki eyða ekki þinni náttúrulegu olíu. Stykkið dugir í allt að 80 hárþvotta en ending fer eftir því hve sítt og þykkt hárið er.

Geymsluþol: geymist á köldum stað eða við stofuhita þar sem hársápan inniheldur náttúrulegar olíur og eiga þær til að bráðna/smita frá sér ef þær eru í 28°C+

Aðrar spennandi vörur

Hand + Body Wash with Kiwi Water 250ml

kr.3.490
Þessi unaðslega hand- og líkamssápa er gerð úr bólguminnkandi kiwi vatni sem er aukaafurð úr djúsa iðnaðinum. Í sápunni er einnig að finna sítrónugras og mandarínuolíu. Sápan róar og ver húðina ásamt því að gefa henni mýkt. Sápan hentar því einstaklega vel fyrir þurra húð og skilur líkamann eða hendurnar eftir talsvert ferskari!   
Setja í körfu
Quick view

Espresso Martini Soy Wax Candle

kr.5.190
100% vegan ilmkerti úr soja Handgerð í Yorkshire á Englandi Ilmar eins og unaðsleg Espresso Martini Inniheldur endurnýtt kaffi Brennslutími er ca. 35 klst. (180 ml.) Fullkomin umhverfisvæn gjafavara     
Setja í körfu
Quick view

Night Cream with Hyaluronic Acid + Niacinamide 55 ml.

kr.5.990
Milt og ilmefnalaust næturkrem sem er samþykkt af húðlæknum og hentar nær öllum húðtýpum. Þetta árangursríka krem sér um að næra, endurnýja og vernda húðina á meðan við nælum okkur í verðskuldaðan nætursvefn. Formúlan er rík af níasínamíði (B3 vítamín) sem jafnar húðtón, hyaluronic sýru sem bindur raka og viðheldur þéttleika húðarinnar ásamt rosehip-olíu sem hjálpar húðinni að endurnýja sig. Þetta næturkrem inniheldur einnig kaldpressað og afar andoxunarríkt bláberjaþykkn sem er ríkt af A vítamíni og getur varið húðina gegn útfjólubláum geislum. Einnig er bláberjaþykkni uppspretta pro-retínóls sem vinnur gegn öldrun húðarinnar. Nú getur þú aldreilis dekrað við húðina og boðið henni upp á þetta margverðlaunaða, 100% vegan næturkrem sem er engu líkt! AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af kreminu fæst þar líka  
Setja í körfu
Quick view

Eye Cream with Cucumber, Hyaluronic Acid + Coffee 15 ml.

kr.4.990
Augnkrem unnið úr kaffiolíu og þykkni úr hlyntrésbörk Hefur róandi áhrif, endurnærir og dregur úr bólgum í húð Hentugt fyrir allar húðtýpur og má nota undir andlitsfarða Hýalúrónsýra hjálpar til við að þétta og slétta húðina Framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi AÐRIR SÖLUSTAÐIR: HRÍM Kringlunni EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af kreminu fæst þar líka    
Setja í körfu
Quick view

Eye Roller

kr.2.890
"Using this is my favourite new selfcare ritual, I find it so relaxing!" Augnrúlla sem hjálpar þér að fríska upp á, endurnæra og róa svæðið undir augunum. Þú einfaldlega nuddar varlega með augnkremi eða serumi. Með notkun augnrúllu hafa margir upplifað minni andlitsspennu, betri húðáferð og aukið blóðflæði í kringum augun sem hefur haft bjartan ljóma í för með sér! LÚXUS TRIX: geymdu augnrúlluna í kæli fyrir notkun! AÐRIR SÖLUSTAÐIR: BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni, Mosfellsbæ, Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎
Setja í körfu
Quick view

Cleansing Face Milk with Aloe Vera + Oat Powder 120 ml.

kr.4.490
Hversdags andlitshreinsir með aloe vera og fíngerðu dufti úr höfrum sem róar húðina og skilur hana eftir hreina og endurnærða. Hreinsimjólkin er mild og hefur þann eiginleika að geta bætt húðina og endurheimt rakahindrun hennar þökk sé höfrunum en þeir eru aukaafurð úr drykkja- og matvælaframleiðslu. Formúlan er fíngerð og kremkennd og veitir húðinni virkilega góðan raka. Mjólkin hentar öllum húðtýpum og það er nánast öruggt að húðin verður silkimjúk eftir notkun! "This is an immediate fave of mine! It's smooth and silky to apply, it effectively removes makeup and smells lovely. Only one or two pumps is needed so lasts a while. Doesn’t leave skin feeling tight and is suitable for sensitive skin!" Húðfræðingar hafa samþykkt þessa vöru fyrir viðkvæma húð sem og að þessa vöru má nota á börn. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11
Setja í körfu
Quick view

Face Toner with Hyaluronic Acid 100 ml.

kr.4.490
ANDLITSTÓNER MEÐ CHAMOMILE: virkilega ferskur og rakagefandi andlitstóner úr chamomile þykkni sem inniheldur einnig græna mandarínu sem endurvekur og frískar upp á húðina. Tónerinn inniheldur hýalúrónsýru sem viðheldur þéttleika húðarinnar og getur dregið úr fínum línum. Þessi tóner er hentugur fyrir allar húðtýpur og það má nota hann undir andlitsfarða sem og eftir andlitshreinsun. Við mælum klárlega með því að nota hann reglulega yfir daginn til að viðhalda þéttleika og ferskleika húðarinnar! Ásamt öllum vörum frá UpCircle, þá er tónerinn framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi og inniheldur einungis 99% náttúruleg hágæða hráefni sem sum hver eru endurnýtt til að sporna gegn sóun. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af tónernum fæst þar líka
Setja í körfu
Quick view

Fiji Feelin Conditioner Bar

kr.2.290
Fiji Feelin' hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Fiji Feelin' hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir kryddaði vanillu keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd. Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS. Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt. Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði
Setja í körfu
Quick view
2022 TROPIC. ALLUR RÉTTUR ÁSKILINN.
Skilmálar - payments
  • Menu
  • Categories
  • HEILSUVÖRUR
  • GJAFAVARA
  • HÚÐVÖRUR
  • HÁRVÖRUR
  • PRÓTEIN
  • OFURFÆÐI
  • SÚKKULAÐI
  • ILMVÖTN
  • VÖRUMERKI
  • VERSLA
  • UPPSKRIFTIR
  • HEILDSALA
  • BLOGG
  • GJAFAVARA
  • Login / Register
Facebook Instagram
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Lestu um hvernig við notum vafrakökur.
More info Accept
Start typing to see products you are looking for.

Sendum allar pantanir yfir 5000 kr. frítt með Dropp eða í næsta póstbox 🤍 Loka

Shop
0 items Cart
My account