Sendum pantanir yfir 5000 kr. frítt með Dropp eða í næsta póstbox 🤍 Loka

  • VERSLA
    Screenshot 2024-09-18 at 10.48.37

    ALLAR VÖRUR

    Tropic=Vorur-207

    LJÚFMETI

    your-superfoods-superfood-mix-single-mix-power-matcha-8718868809025-171011-organic-super-foods-17835632656

    HEILSUVÖRUR

    Lifestyle-3_EyeRoller+EyeCream_LR

    SNYRTIVÖRUR

  • UPPSKRIFTIR
  • BLOGG
  • GJAFAVARA
  • ÚTSALA
Tropic Tropic
Login / Register
1 item / kr.1.145
Menu
Tropic Tropic
1 item / kr.1.145
“Soap Travel Tin” hefur verið bætt í körfuna. Skoða körfu
Click to enlarge
Heim SNYRTIVÖRUR HÚÐVÖRUR Face Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera 60 ml.
Face Oil with Coffee and Rosehip Oil 30 ml.
Face Oil with Coffee and Rosehip Oil 30 ml. kr.4.990
Back to products
Eye Cream with Cucumber, Hyaluronic Acid + Coffee 15 ml.
Eye Cream with Cucumber, Hyaluronic Acid + Coffee 15 ml. kr.4.990

Face Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera 60 ml.

kr.5.990

MILT DAGKREM SEM VEITIR FRÁBÆRAN RAKA OG NÆRIR HÚÐINA MEÐ E-VÍTAMÍNI OG ÖÐRUM ANDOXUNAREFNUM SEM GETA HÆGT Á ÖLDRUN

Þetta dagkrem hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð. Við höfum einnig fengið endurgjöf frá konum með mikinn rósroða og virkilega slæma húð eftir barnsburð sem segja að þetta krem hafi algjörlega bjargað sér.

Kremið inniheldur fínmalað púður úr endurnýttum argan skeljum sem hefðu annars farið til spillis. Argan skeljarnar eru ríkar af E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem gera húðinni mikið gott. Kakósmjör, aloe vera, og blóðappelsína er einnig að finna í þessu dásemdar kremi en þessi innihaldsefni eru þekkt fyrir húðróandi áhrif.

Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. Þegar krukkan þín klárast, þá getur þú verslað áfyllingu í EkóHúsinu að Síðumúla 11.

„Þetta unaðslega dagkrem frá UpCircle kom eins og kallað inn í líf mitt 2019 þegar ég var að glíma við ýmis húðvandamál. Húðin mín hefur alla tíð verið ótrúlega þurr. Ef rakakremið gleymdist í ferðalögum þá var ég í vondum málum! Það voru meira að segja byrjaðir að myndast krónískir þurrkublettir framan í mér. Dagkremið frá UpCircle hefur gert kraftaverk fyrir mína húð þar sem ég get núna farið í sturtu án þess að líða eins og sandpappír í framan. Eins hafa bólur ekki gert eins mikið vart við sig eftir að ég byrjaði að nota UpCircle dagkremið (og hreinsimjólkina líka reyndar). Ef þú ert í svipuðum sporum og ég var í, að vera í dauðaleit af hinu fullkomna kremi sem er ekki með afgerandi lykt eða lætur þig klæja eða gefur þér roða í framan, þá er UpCircle dagkremið mjög sennilega fyrir þig!“ – einlæg umsögn frá Kristínu Amy, eiganda Tropic.

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af rakakreminu fæst þar líka

 

Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru

Á lager (hægt að leggja inn biðpöntun)

Vörunúmer: UC9 Flokkar: ALLAR VÖRUR, HÚÐVÖRUR, SNYRTIVÖRUR, UPCIRCLE Vörumerki: Upcircle
  • Lýsing
Lýsing

Hráefnin

99% náttúruleg hráefni: Aqua, Helianthus Annuus Seed Oil*, Butyrospermum Parkii (Shea) Butter*, Theobroma Cacao (Cocoa) Butter*, Glyceryl Stearate, Cetearyl Alcohol, Glycerin, Argania Spinosa (Argan) Kernel Extract, Citrus Aurantium Dulcis (Blood Orange) Peel Oil, Linum Usitatissimum (Linseed) Oil, Olea Europaea (Olive) Fruit Oil*, Aloe Barbadensis Leaf Extract*, Coconut Alcohol, Citrus Limonum Peel Oil, Tocopherol, Boswellia Carterii (Frankincense) Oil, Salvia Sclarea Oil, Citrus Aurantium Amara Leaf Oil, Sodium Stearoyl Glutamate, Sucrose Stearate, Benzyl Alcohol, Coco Glucoside, Xanthan Gum, Salicylic Acid, Sorbic Acid, ^Limonene, ^Linalool, ^Citral. *Organically-grown ingredients; ^Natural constituent of essential oils listed.

Umbúðir

Kremið er í glerkrukku með ál loki. Krukkan kemur í pappa umbúðum og því allar umbúðir 100% endurvinnanlegar.

Aðrar spennandi vörur

Eye Cream with Cucumber, Hyaluronic Acid + Coffee 15 ml.

kr.4.990

FÁANLEGT Í BIÐPÖNTUN, NÝ SENDING VÆNTANLEG VIKUNA 21.-25. JÚLÍ

Augnkrem unnið úr kaffiolíu og þykkni úr hlyntrésbörk Hefur róandi áhrif, endurnærir og dregur úr bólgum í húð Hentugt fyrir allar húðtýpur og má nota undir andlitsfarða Hýalúrónsýra hjálpar til við að þétta og slétta húðina Framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi AÐRIR SÖLUSTAÐIR: HRÍM Kringlunni EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af kreminu fæst þar líka    
Setja í körfu
Quick view
-40%

SPF 25 Steinefna Sólarvörn

kr.4.990 Original price was: kr.4.990.kr.2.994Current price is: kr.2.994.
Þessi árangursríka steinefna sólarvörn veitir húðinni nauðsynlega vörn gegn ótímabærri öldrun af völdum sólarinnar.
  • 100% vegan, án ofbeldis, plastlaus & endurvinnanleg!
Hún dregst hratt í húðina og færir henni einnig góðan raka ásamt því að innihalda andoxunarefni frá hindberjafræolíu sem getur dregið úr skaða sindurefna.
  • Inniheldur A & E vítamín sem getur örvað kollagen framleiðslu líkamanns
Það besta við þessa sólarvörn er að hún lifir í sátt og samlyndi við kóralrifin og hefur ekki skaðleg áhrif á þau eins og svo margar sólarvarnir í dag.  
Setja í körfu
Quick view
-50%

Cleansing Balm with Oat Oil + Vitamin E 55 ml.

kr.4.990 Original price was: kr.4.990.kr.2.495Current price is: kr.2.495.
Nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu. Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð. Við mælum með þessu hreinsikremi af heilum hug en það er framleitt á sjálfbæran máta í UK með náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.

NOTKUNARLEIÐBEININGAR

  • Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
  • Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af hreinsinum fæst þar líka
Setja í körfu
Quick view

Chocolate Ball Bar 50g

kr.490

HANDGERT SÚKKULAÐISTYKKI SEM BRAGÐAST EINS OG HEFÐBUNDIN SÆNSK SÚKKULAÐI/KÓKOSKÚLA

Fyllingin er dúnmjúk með dýrindis keim af kaffi og kókos. Fullkomið fyrir kósýkvöldið eða með kaffinu! Allt súkkulaði frá Vegan Delights er án pálmolíu og 100% vegan. Þau nota líka alltaf cocoa sem er framleitt á ábyrgan hátt með sjálfbærni að leiðarljósi

AÐRIR SÖLUSTAÐIR

HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og Akureyri
Setja í körfu
Quick view
-50%

Rakvélablöð 10 stk.

kr.890 Original price was: kr.890.kr.445Current price is: kr.445.

Hágæða rakvélablöð úr ryðfríu stáli
Fullkomnar í fjölnota rakvélarnar 
Koma 10x saman í pakka

Setja í körfu
Quick view

Coconut Bar 50g

kr.490

HANDGERT SÚKKULAÐISTYKKI SEM BRAGÐAST EINS OG BOUNTY NEMA BARA BETRA

Fyllingin er dúnmjúk með kókos og toffee. Fullkomið fyrir kósýkvöldið eða með kaffinu! Allt súkkulaði frá Vegan Delights er án pálmolíu og 100% vegan. Þau nota líka alltaf cocoa sem er framleitt á ábyrgan hátt með sjálfbærni að leiðarljósi

AÐRIR SÖLUSTAÐIR

HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og Akureyri
Setja í körfu
Quick view

Night Cream with Hyaluronic Acid + Niacinamide 55 ml.

kr.5.990
Milt og ilmefnalaust næturkrem sem er samþykkt af húðlæknum og hentar nær öllum húðtýpum. Þetta árangursríka krem sér um að næra, endurnýja og vernda húðina á meðan við nælum okkur í verðskuldaðan nætursvefn. Formúlan er rík af níasínamíði (B3 vítamín) sem jafnar húðtón, hyaluronic sýru sem bindur raka og viðheldur þéttleika húðarinnar ásamt rosehip-olíu sem hjálpar húðinni að endurnýja sig. Þetta næturkrem inniheldur einnig kaldpressað og afar andoxunarríkt bláberjaþykkn sem er ríkt af A vítamíni og getur varið húðina gegn útfjólubláum geislum. Einnig er bláberjaþykkni uppspretta pro-retínóls sem vinnur gegn öldrun húðarinnar. Nú getur þú aldreilis dekrað við húðina og boðið henni upp á þetta margverðlaunaða, 100% vegan næturkrem sem er engu líkt! AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af kreminu fæst þar líka  
Setja í körfu
Quick view
-40%

Maldives Mood Conditioner Bar

kr.2.290 Original price was: kr.2.290.kr.1.374Current price is: kr.1.374.
Maldives Mood hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Maldives Mood sjampóstykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir mangó og ananas keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd! Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS. Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt. Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði
Setja í körfu
Quick view
2025 TROPIC. ALLUR RÉTTUR ÁSKILINN.
Skilmálar - payments
  • Menu
  • Categories
  • HEILSUVÖRUR
  • GJAFAVARA
  • HÚÐVÖRUR
  • HÁRVÖRUR
  • PRÓTEIN
  • OFURFÆÐI
  • SÚKKULAÐI
  • ILMVÖTN
  • VÖRUMERKI
  • VERSLA
  • UPPSKRIFTIR
  • BLOGG
  • GJAFAVARA
  • ÚTSALA
  • Login / Register
Facebook Instagram
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Lestu um hvernig við notum vafrakökur.
More info Accept
Start typing to see products you are looking for.
Shop
1 item Cart
My account