Tropic Organic Acaí Powder 70g
kr.2.990
LÍFRÆNT VOTTUÐ FROSTÞURRKUÐ ACAÍ BER FRÁ AMAZON REGNSKÓGINUM
Þessi dökkfjólubláu ber sem eiga rætur sínar að rekja til Amazon regnskógarins hafa náð miklum vinsældum síðustu ár. Berin eru þekkt fyrir háan andoxunarstuðul en acaí ber eru talin búa yfir 3x meira magni af andoxunarefnum en til dæmis bláber.
Duftið er fíngert og hentar vel í þeyting, chia graut eða jógúrtina fyrir aukin vítamín og steinefni. Það sem er í uppáhaldi hjá Tropic teyminu eru acaí skálar.
UPPSKRIFT AF ACAÍ SKÁL
1 bolli af blönduðum frosnum berjum
30 ml. plöntuprótein (valkvæmt)
1-2 dl. af plöntumjólk
2 tsk. Tropic acaí duft
1 frosinn banani
Öllu er blandað vel saman í blender eða matvinnsluvél. Þar sem mikið er frosið og áferðin verður ískennd að þá þarf blenderinn eða matvinnsluvélin að vera svolítið öflug. Stundum þarf að bæta við meiri vökva eða stoppa og hræra og byrja aftur, til að ná að blanda öllu almennilega saman
Fullkomið „toppings“ → fersk jarðaber, bananabitar, fersk bláber, hnetusmjör eða möndlusmjör, hempfræ, granóla og kakónibbur
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði
KRÓNAN • Skeifunni, Lindum, Flatahrauni, Granda, Bíldshöfða, Mosfellsbæ, Selfossi, FITJUM og Akureyri
HAGKAUP • Garðabæ, Akureyri, Skeifunni, Smáralind, Spöng og Kringlu
Á lager (hægt að leggja inn biðpöntun)
Aðrar spennandi vörur
Fiji Feelin Shampoo Bar
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 HafnarfirðiEau De Parfum Flaura
FLAURA ILMURINN UMLYKUR ÞIG MEÐ BLÓMKENNDUM FERSKLEIKA & SKAPAR UPPLÍFGANDI JÁKVÆÐA ORKU
Top Notes Fresh, sparkling and uplifting bergamot with the juicy sweetness of blackcurrant. Heart Notes A floral aura from honeyed petals of orange blossom, green jasmine sambac and peachy tuberose. Base Notes A radiant base of Virginia cedarwood, velvety vanilla pods and warm fluffy musks. We've upcycled... Jasmine Sambac Green, floral, bright and blooming, jasmine sambac is grown in Tamil Nadu for use in bridal and ceremonial wear. Blossoms of these sacred flowers that remain unsold from markets are rescued and transformed into floral absolute for use in perfumery. It brings warm, blossoming sensuality to Flaura. Cinnamon Bark Spicy and peppery with a blush of vanilla, Sri Lankan cinnamon is heralded as the finest in the world. Sun-warmed cinnamon bark curls into quills on drying, but less uniform rolls are left behind. The spice market’s loss is our gain as these imperfect quills are distilled into a sweet, woody oil that exudes sophistication and elegance. FLAURA er 100% án phthalates & parabena.Coconut Bar 50g
HANDGERT SÚKKULAÐISTYKKI SEM BRAGÐAST EINS OG BOUNTY NEMA BARA BETRA
Fyllingin er dúnmjúk með kókos og toffee. Fullkomið fyrir kósýkvöldið eða með kaffinu! Allt súkkulaði frá Vegan Delights er án pálmolíu og 100% vegan. Þau nota líka alltaf cocoa sem er framleitt á ábyrgan hátt með sjálfbærni að leiðarljósiAÐRIR SÖLUSTAÐIR
HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og AkureyriFace Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera 60 ml.
MILT DAGKREM SEM VEITIR FRÁBÆRAN RAKA OG NÆRIR HÚÐINA MEÐ E-VÍTAMÍNI OG ÖÐRUM ANDOXUNAREFNUM SEM GETA HÆGT Á ÖLDRUN
Þetta dagkrem hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð. Við höfum einnig fengið endurgjöf frá konum með mikinn rósroða og virkilega slæma húð eftir barnsburð sem segja að þetta krem hafi algjörlega bjargað sér. Kremið inniheldur fínmalað púður úr endurnýttum argan skeljum sem hefðu annars farið til spillis. Argan skeljarnar eru ríkar af E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem gera húðinni mikið gott. Kakósmjör, aloe vera, og blóðappelsína er einnig að finna í þessu dásemdar kremi en þessi innihaldsefni eru þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. Þegar krukkan þín klárast, þá getur þú verslað áfyllingu í EkóHúsinu að Síðumúla 11. "Þetta unaðslega dagkrem frá UpCircle kom eins og kallað inn í líf mitt 2019 þegar ég var að glíma við ýmis húðvandamál. Húðin mín hefur alla tíð verið ótrúlega þurr. Ef rakakremið gleymdist í ferðalögum þá var ég í vondum málum! Það voru meira að segja byrjaðir að myndast krónískir þurrkublettir framan í mér. Dagkremið frá UpCircle hefur gert kraftaverk fyrir mína húð þar sem ég get núna farið í sturtu án þess að líða eins og sandpappír í framan. Eins hafa bólur ekki gert eins mikið vart við sig eftir að ég byrjaði að nota UpCircle dagkremið (og hreinsimjólkina líka reyndar). Ef þú ert í svipuðum sporum og ég var í, að vera í dauðaleit af hinu fullkomna kremi sem er ekki með afgerandi lykt eða lætur þig klæja eða gefur þér roða í framan, þá er UpCircle dagkremið mjög sennilega fyrir þig!" - einlæg umsögn frá Kristínu Amy, eiganda Tropic. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af rakakreminu fæst þar líka
Organic Green Spirulina 100g
SPIRULÍNA ER EIN PRÓTEINRÍKASTA FÆÐA SEM TIL ER EN UM 60-70% ÞESSARA ÞÖRUNGS ER PRÓTEIN
Spirulínan er jafnframt sneisafull af mikilvægum næringarefnum og ein af næringarríkustu ofurfæðum sem finnast í heiminum. Inniheldur meðal anars járn, B1, B2 og B3-vítamín, magnesíum, beta karótín, chlorophyll og omega fitusýrur. Spirulínan er ræktuð í hreinum ferskvatnslaugum og fær orku frá sólarljósi til vaxtar. Spirulínan er lágsmarksunnin, aðeins náttúrulega þurrkað til að mynda fíngert duft. Passar vel í þeyting, jógúrt, drykkinn, yfirnóttu hafra eða chia graut.Tropic Chocolate Protein with Probiotics 500g
LJÚFFENGT PLÖNTUPRÓTEIN MEÐ SÚKKULAÐI BRAGÐI
Í þessu próteini er að finna auðmeltanlega próteingjafa eða bauna- og rísprótein sem líkaminn á auðvelt með að vinna úr. Í hverjum skammti er 20 gr. af próteini og formúlan er auðguð með, góðgerlum, sem þarf ekki að hafa í kæli, trefjum og meltingarensímum til þess að stuðla að bættri meltingu. Við notum avókadó þykkni til þess að gera áferðina “rjómakennda” sem verður til þess að próteindrykkirnir verða talsvert grinilegri. Það sem gerir okkar prótein sérstakt er að við notum stevíu sem sætugjafa og sniðgöngum alveg gerviefni á borð við → sucralose og acesulfam-K Þar af leiðandi er próteinið ekki of sætt og ekki með óþarfa eftirbragð. Próteinið er einnig glútenlaust, án GMO og 100% vegan Uppskrift af prótein kaffidrykk settu eftirfarandi í blandara: 1 banani 1 msk möndlusmjör 2-3 döðlur 1 skeið Tropic súkkulaðiprótein 1-2 dl möndlumjólk Settu 2 dl. af klökum í glas, helltu 1 dl. af kaffi yfir & því næst topparu með próteindrykknum. Hrærið og njótiðAÐRIR SÖLUSTAÐIR:
FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði KRÓNAN • Grandi, Lindum, Flatahraun, Skeifan, Mosfellsbær, Selfossi, Akureyri, FITJUM og Bíldshöfði HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og Akureyri NETTÓ • Granda, Mjódd, Krossmóa, Glerártorgi og EgilsstöðumTropic Vanilla Protein 500g
TROPIC PLÖNTUPRÓTEIN MEÐ VANILLUBRAGÐI
Í þessu próteini er að finna auðmeltanlega próteingjafa eða bauna- og rísprótein sem líkaminn á auðvelt með að vinna úr. Í hverjum skammti er 22 gr. af próteini og formúlan er auðguð með trefjum og meltingarensímum til þess að stuðla að bættri meltingu. Við notum avókadó þykkni til þess að gera áferðina "rjómakennda" sem verður til þess að próteindrykkirnir verða talsvert grinilegri. Það sem gerir okkar prótein sérstakt er að við notum stevíu sem sætugjafa og sniðgöngum alveg gerviefni á borð við → sucralose og acesulfam-K Þar af leiðandi er próteinið ekki of sætt og ekki með óþarfa eftirbragð. Próteinið er einnig glútenlaust, án GMO og 100% veganEINFALDUR VANILLU SMOOTHIE
- 1 banani
- 1 bolli af frosnum jarðaberjum
- 1 bolli af frosnum ananas bitum
- 30 ml. vanilluprótein (full scoop er 50 ml.)
- 1 msk. möndlusmjör
- dass af plöntumjólk
- 2 tsk. acaí duft
- hægt að bæta hampfræjum eða chia (valkvætt)
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði KRÓNAN • Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni, FITJUM og Akureyri. HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og Akureyri NETTÓ • Granda, Mjódd, Krossmóa, Glerártorgi og EgilsstöðumOrganic Pink Pitaya Powder 100g
HREINT LÍFRÆNT VOTTAÐ PITAYA DUFT ÁN ALLRA AUKAEFNA
Pink pitaya eða bleikur drekaávöxtur er suðrænn ávöxtur sem þekktur er fyrir sinn fallega skærbleika lit og einstaka næringargildi. Ávöxturinn er ríkur af trefjum, C-vítamíni, beta-karótíni og betalain, en það er andoxunarefni sem gefur duftinu sinn fallega lit.
Duftið bætir ekki aðeins heilsu heldur gefur það hvers kyns drykkjum og máltíðum litríkt og girnilegt yfirbragð.
Duftið er unnið úr 100% lífrænt vottuðu pitaya sem hefur verið fryst og þurrkað samkvæmt GMP gæðastöðlum. Varan er án allra aukaefna, inniheldur hvorki rotvarnarefni né hefur verið geislað eða gerjað.
✓ Einungis 100% náttúrulegt duft úr bleikum drekaávexti ✓ Hálf til 2 teskeiðar fyrir fallegan lit og aukin næringarefni ✓ Við seljum Pink Pitaya duft einnig í 500 gr. pokum!




