Tropic Organic Acaí Powder 70g
kr.2.990
LÍFRÆNT VOTTUÐ FROSTÞURRKUÐ ACAÍ BER FRÁ AMAZON REGNSKÓGINUM
Þessi dökkfjólubláu ber sem eiga rætur sínar að rekja til Amazon regnskógarins hafa náð miklum vinsældum síðustu ár. Berin eru þekkt fyrir háan andoxunarstuðul en acaí ber eru talin búa yfir 3x meira magni af andoxunarefnum en til dæmis bláber.
Duftið er fíngert og hentar vel í þeyting, chia graut eða jógúrtina fyrir aukin vítamín og steinefni. Það sem er í uppáhaldi hjá Tropic teyminu eru acaí skálar.
UPPSKRIFT AF ACAÍ SKÁL
1 bolli af blönduðum frosnum berjum
30 ml. plöntuprótein (valkvæmt)
1-2 dl. af plöntumjólk
2 tsk. Tropic acaí duft
1 frosinn banani
Öllu er blandað vel saman í blender eða matvinnsluvél. Þar sem mikið er frosið og áferðin verður ískennd að þá þarf blenderinn eða matvinnsluvélin að vera svolítið öflug. Stundum þarf að bæta við meiri vökva eða stoppa og hræra og byrja aftur, til að ná að blanda öllu almennilega saman
Fullkomið „toppings“ → fersk jarðaber, bananabitar, fersk bláber, hnetusmjör eða möndlusmjör, hempfræ, granóla og kakónibbur
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði
KRÓNAN • Skeifunni, Lindum, Flatahrauni, Granda, Bíldshöfða, Mosfellsbæ, Selfossi, FITJUM og Akureyri
HAGKAUP • Garðabæ, Akureyri, Skeifunni, Smáralind, Spöng og Kringlu
Á lager
Aðrar spennandi vörur
HAND + BODY DUO GIFT SET
Cleansing Balm with Oat Oil + Vitamin E 55 ml.

NOTKUNARLEIÐBEININGAR
- Þú nuddar kreminu einfaldlega jafnt og þétt yfir andlitið en við núninginn bráðnar það og brýtur niður farða, mengun, sólarvörn og þann óþarfa sem hefur safnast saman á andlitinu okkar yfir daginn.
- Þú skolar síðan kremið af með blautum þvottapoka eða fjölnota bómullarskífu. Ég mæli síðan sterklega með því að þú endurtakir leikinn einu sinni í viðbót til að vera fullviss um að allur farði sé 100% farinn.
Tropic Vanilla Protein 500g
TROPIC PLÖNTUPRÓTEIN MEÐ VANILLUBRAGÐI
Í þessu próteini er að finna auðmeltanlega próteingjafa eða bauna- og rísprótein sem líkaminn á auðvelt með að vinna úr. Í hverjum skammti er 22 gr. af próteini og formúlan er auðguð með trefjum og meltingarensímum til þess að stuðla að bættri meltingu. Við notum avókadó þykkni til þess að gera áferðina "rjómakennda" sem verður til þess að próteindrykkirnir verða talsvert grinilegri. Það sem gerir okkar prótein sérstakt er að við notum stevíu sem sætugjafa og sniðgöngum alveg gerviefni á borð við → sucralose og acesulfam-K Þar af leiðandi er próteinið ekki of sætt og ekki með óþarfa eftirbragð. Próteinið er einnig glútenlaust, án GMO og 100% veganEINFALDUR VANILLU SMOOTHIE
- 1 banani
- 1 bolli af frosnum jarðaberjum
- 1 bolli af frosnum ananas bitum
- 30 ml. vanilluprótein (full scoop er 50 ml.)
- 1 msk. möndlusmjör
- dass af plöntumjólk
- 2 tsk. acaí duft
- hægt að bæta hampfræjum eða chia (valkvætt)
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði KRÓNAN • Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni, FITJUM og Akureyri. HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og AkureyriFace Oil with Coffee and Rosehip Oil 30 ml.
MARGVERÐLAUNA OG EIN VINSÆLASTA UPCIRCLE VARAN FRÁ UPPHAFI SEM BÝR YFIR FRÁBÆRRI VIRKNI FYRIR FLESTAR HÚÐTÝPUR
Þessi unaðslega andlitsolía (hét áður andlitsserum) inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af kaffi sem og jojoba-, sea buckthorn og rosehip olíum. Þessi andlitsolía var hönnuð til að örva kollagen framleiðslu húðarinnar og viðhalda þéttleika hennar. Fyrir bestan árangur er best að nota olíuna kvölds og morgna. Þú getur sett olíuna á rakakremið sem bindur rakann betur í búðinni og þú þarft aðeins örfáa litla dropa til að fá góðan árangur! Þessi andlitsolía er samþykkt af húðlæknum og rík af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar. Margir hafa einnig notað þessa olíu sem hár eða skeggolíu og hentar því einnig fyrir karlmenn. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af seruminu fæst þar líka
Conditioner Crème with Rosemary Oil + Vitamin E
HÁRNÆRINGIN FRÁ UPCIRCLE PARAST FULLKOMLEGA VIÐ SJAMPÓIÐ FRÁ ÞEIM OG VEITIR ÞÍNU HÁRI DJÚPA NÆRINGU MEÐ HÁGÆÐA HRÁEFNUM
Þessi hárnæring inniheldur náttúruleg hágæða hráefni á borð við kókosolíu, bambus þykkni og vax úr appelsínuberki sem verndar og varðveitir næringuna í hárinu. Útkoman er silkimjúkt og heilbrigt hár, sem við viljum jú flest! Appelsínubörkurinn sem notaður er í þessa hárnæringu er aukaafurð úr appelsínusafa framleiðslu. Vax úr appelsínuberki inniheldur "botanical lipids" sem virkar eins og hálfgert mýkingarefni og mýkir hárið og veitir því raka. Vaxið er einnig ríkt af C-vítamíni og getur bætt styrkleikann í hárinu sem getur minnkað líkur á að endar slitni. Hárnæringin hentar öllum hártýpum, þar á meðal afro, krulluðu, lituðu, olíukenndu og þurru hári.
Face Mask with Kaolin Clay 60 ml.

White Coconut Bar 50g
HANDGERT SÚKKULAÐISTYKKI SEM BRAGÐAST EINS OG BOUNTY NEMA BARA BETRA
Fyllingin er dúnmjúk með kókos og toffee. Fullkomið fyrir kósýkvöldið eða með kaffinu! Allt súkkulaði frá Vegan Delights er án pálmolíu og 100% vegan. Þau nota líka alltaf cocoa sem er framleitt á ábyrgan hátt með sjálfbærni að leiðarljósiAÐRIR SÖLUSTAÐIR
HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og AkureyriMaldives Mood Conditioner Bar
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði




