Fiji Feelin Conditioner Bar
Fiji Feelin' hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Fiji Feelin' hársápustykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir kryddaði vanillu keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd.
Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS.
Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt.
Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni og Mosfellsbæ. Varan er væntanleg í Bónus Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎
Face Mask with Kaolin Clay 60 ml.
Mildur en árangursríkur andlitsmaski sem virkar á flestar húðtýpur
Dregur úr bólum og fílapennslum ásamt því að vinna gegn útbrotum
Maskinn gefur húðinni mýkt og gljáa og skilur hana eftir í jafnvægi
Kaolin leir er þekktur fyrir að draga í sig óþarfa olíur og óhreinindi
Unninn úr endurnýttu fínmöluðu púðri úr ólífusteinum
Framleiddur á Englandi á siðferðislegan og sjálfbæran hátt
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
BÓNUS • Holtagörðum, Skeifunni, Kauptúni, Smáratorgi, Spönginni, Miðhrauni og Mosfellsbæ. Varan er væntanleg í Bónus Norðurtorgi á Akureyri, Selfossi og Njarðvík 🤎
EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af maskanum fæst þar líka
Peppermint Body Scrub with Coffee 200 ml.
Face Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera 30ml
MILT DAGKREM SEM VEITIR FRÁBÆRAN RAKA OG NÆRIR HÚÐINA MEÐ E-VÍTAMÍNI OG ÖÐRUM ANDOXUNAREFNUM SEM GETA HÆGT Á ÖLDRUN
"Þetta unaðslega dagkrem frá UpCircle kom eins og kallað inn í líf mitt 2019 þegar ég var að glíma við ýmis húðvandamál. Húðin mín hefur alla tíð verið ótrúlega þurr. Ef rakakremið gleymdist í ferðalögum þá var ég í vondum málum! Það voru meira að segja byrjaðir að myndast krónískir þurrkublettir framan í mér. Dagkremið frá UpCircle hefur gert kraftaverk fyrir mína húð þar sem ég get núna farið í sturtu án þess að líða eins og sandpappír í framan. Eins hafa bólur ekki gert eins mikið vart við sig eftir að ég byrjaði að nota UpCircle dagkremið (og hreinsimjólkina líka reyndar). Ef þú ert í svipuðum sporum og ég var í, að vera í dauðaleit af hinu fullkomna kremi sem er ekki með afgerandi lykt eða lætur þig klæja eða gefur þér roða í framan, þá er UpCircle dagkremið mjög sennilega fyrir þig!" - einlæg umsögn frá Kristínu Amy, eiganda Tropic. Þetta dagkrem hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð eins og hefur komið fram. Við höfum einnig fengið endurgjöf frá konum með mikinn rósroða og virkilega slæma húð eftir barnsburð sem segja að þetta krem hafi algjörlega bjargað sér. Kremið inniheldur fínmalað púður úr endurnýttum argan skeljum sem hefðu annars farið til spillis. Argan skeljarnar eru ríkar af E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem gera húðinni mikið gott. Kakósmjör, aloe vera, og blóðappelsína er einnig að finna í þessu dásemdar kremi en þessi innihaldsefni eru þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. Þegar krukkan þín klárast, þá getur þú verslað áfyllingu í EkóHúsinu að Síðumúla 11. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 11SPF 25 Steinefna Sólarvörn
Þessi árangursríka steinefna sólarvörn veitir húðinni nauðsynlega vörn gegn ótímabærri öldrun af völdum sólarinnar.
- 100% vegan, án ofbeldis, plastlaus & endurvinnanleg!
- Inniheldur A & E vítamín sem getur örvað kollagen framleiðslu líkamanns
Face Serum with Coffee + Rosehip Oil 10ml
MARGVERÐLAUNA OG EIN VINSÆLASTA UPCIRCLE VARAN FRÁ UPPHAFI SEM BÝR YFIR FRÁBÆRRI VIRKNI FYRIR FLESTAR HÚÐTÝPUR
Þessi unaðslega andlitsolía (hét áður andlitsserum) inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af kaffi sem og jojoba-, sea buckthorn og rosehip olíum. Þessi andlitsolía var hönnuð til að örva kollagen framleiðslu húðarinnar og viðhalda þéttleika hennar. Fyrir bestan árangur er best að nota olíuna kvölds og morgna. Þú getur sett olíuna á rakakremið sem bindur rakann betur í búðinni og þú þarft aðeins örfáa litla dropa til að fá góðan árangur! Þessi andlitsolía er samþykkt af húðlæknum og rík af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar. Margir hafa einnig notað þessa olíu sem hár eða skeggolíu og hentar því einnig fyrir karlmenn. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu.Eye Roller
"Using this is my favourite new selfcare ritual, I find it so relaxing!"
Augnrúlla sem hjálpar þér að fríska upp á, endurnæra og róa svæðið undir augunum. Þú einfaldlega nuddar varlega með augnkremi eða serumi.
Með notkun augnrúllu hafa margir upplifað minni andlitsspennu, betri húðáferð og aukið blóðflæði í kringum augun sem hefur haft bjartan ljóma í för með sér!
LÚXUS TRIX: geymdu augnrúlluna í kæli fyrir notkun!
Hand + Body Lotion with Bergamot 250 ml.
Lemongrass Body Scrub with Coffee 200 ml.
- Náttúrulegur líkamsskrúbbur sem hreinsar burt dauðar húðfrumur
- Skilur húðina eftir mjúka, slétta og endurnærða
- Unaðslegur ilmur af sítrónugrasi, límónu og kókos
- Framleitt úr endurunnum kaffikorg frá kaffihúsum í London
- Framleitt á sjálfbæran og siðferðislegan máta í Bretlandi
- Líkamsskrúbburinn er 100% vegan
Shampoo Créme with Pink Berry
100% náttúrulegt sjampó með hágæða endurnýttum hráefnum. Þessi nýstárlega og vandaða formúla skilar miklu árangri strax en einn þvottur er á við þrjá þvotta með hefðbundnu sjampói.
Þetta sjampó er vegan og hentar öllum hártýpum á borð við afro, litað hár, þurrt hár og fitugt hár. Formúlan er auðvitað án sílíkons og súlfata.
"I'm an ex senior hairstylist of 12 years. When I blow dried and straightened my hair after using this, I was blown away."
Þú munt sennilega ekki vilja fara aftur í annað sjampó eftir að þú prófar þetta! The Telegraph lýsti vörunni sem: "a revelation" og sjampóið hefur unnið verðlaunin Top Santé Best Buy.
Caffeinated Duo Set
Nældu þér í vinsælustu vörurnar frá UpCircle á yfir 20% afslætti en við erum auðvitað að tala um andlitsserumið með kaffi- og rosehip olíu sem og augnkremið með hlyntré og kaffi.
Kemur saman í pakka og hentar því vel sem gjöf fyrir hana eða hann sem vill auka aðeins lífsgæðin!
Serumið er ríkt af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar! Margir hafa einnig notað það sem hár eða skeggolíu. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu. Þvílík fjárfesting!
Augnkremið hefur róandi áhrif og getur dregið úr bólgum í húðinni sem og dregið úr pokum. Augnkremið inniheldur hýalúrónsýru sem getur hjálpað til við að þétta og slétta húðina.
ÁFYLLING:
áfyllingar fyrir þessar vörur eru fáanlegar í EkóHúsið Síðumúla 11
Cleansing Face Milk with Aloe Vera + Oat Powder 120 ml.
Hversdags andlitshreinsir með aloe vera og fíngerðu dufti úr höfrum sem róar húðina og skilur hana eftir hreina og endurnærða.
Hreinsimjólkin er mild og hefur þann eiginleika að geta bætt húðina og endurheimt rakahindrun hennar þökk sé höfrunum en þeir eru aukaafurð úr drykkja- og matvælaframleiðslu.
Formúlan er fíngerð og kremkennd og veitir húðinni virkilega góðan raka. Mjólkin hentar öllum húðtýpum og það er nánast öruggt að húðin verður silkimjúk eftir notkun!
"This is an immediate fave of mine! It's smooth and silky to apply, it effectively removes makeup and smells lovely. Only one or two pumps is needed so lasts a while. Doesn’t leave skin feeling tight and is suitable for sensitive skin!"
Húðfræðingar hafa samþykkt þessa vöru fyrir viðkvæma húð sem og að þessa vöru má nota á börn.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 11