Peanut Butter Dream 60g

kr.0

EINGÖNGU FÁANLEG Í HAGKAUP, EKKI Í NETVERSLUN TROPIC

Dýrindis hnetusmjörs hrákaka sem við handgerum frá grunni úr heiðarlegum hráefnum og stendur alveg undir nafni! Kakan er trefjarík og inniheldur 10g af próteini í hverri köku Innihaldsefni: Hnetusmjör (JARÐHNETUR, salt) 33%, Möndlumjöl (MÖNDLUR) 23%, Döðlur, Kakósmjör, Kókosolía, Kakóduft, Kókosmjólk (kókoshnetukjarni, vatn) 2%, Döðlusíróp 2% (döðlur, vatn), Vanilludropar (<1%), Salt (<1%). ✓ án soja✓ glútenlaus án mjólkurafurðaán viðbætts sykurs100% plöntumiðuð fullkomið með kaffinu

Organic Chaga Powder 100g

kr.7.490
Chaga (Inonotus obliquus) er sveppur sem vex aðallega á birkitrjám og hefur lengi verið notaður í te og bætiefni. Hann er ríkur af náttúrulegum andoxunarefnum og inniheldur fjölmörg virk efni. Sumir kjósa að nota chaga sem hluta af daglegri heilsurútínu sinni, meðal annars í tengslum við stuðning við ónæmiskerfið. Þessi vara eru tryggilega laus við hvers kyns aukaefni eins og sykrur og fitu og uppfylla allar evrópskar kröfur varðandi varnarefni. Gæði afurða okkar eru reglulega könnuð.

Organic Lions Mane Powder 100g

kr.6.990
Lion’s Mane (Hericium erinaceus) Lion’s Mane er næringarríkur lífvirkur sveppur sem hefur í aldaraðir verið notaður í asískum jurtalækningum og er nú vinsæll um allan heim. Margir velja Lion’s Mane sem hluta af daglegri rútínu til að styðja almenna vellíðan og fjölbreytt mataræði. Þessi vara er tryggilega laus við hvers kyns aukaefni eins og sykrur og fitu og uppfylla allar evrópskar kröfur varðandi varnarefni. Gæði afurða okkar eru reglulega könnuð.

Lion’s Mane Orku-Smoothie

  • 1 banani
  • 1 bolli möndlumjólk
  • ½ bolli mangó eða ananas (frosið)
  • 1 tsk Lion’s Mane duft
  • 1 msk möndlusmjör eða hnetusmjör
  • 1 tsk chiafræ eða hörfræ (valfrjálst)
  • ½ tsk kanill (valfrjálst)
Að innbyrða C-vítamín samhliða Lion's Mane getur aukið upptöku virku efnanna í líkamanum.

Organic Reishi Powder 100g

kr.6.990

REISHI, DROTTNING SVEPPARÍKISINS ÞEKKT FYRIR HINA ÓTAL MÖRGU HEILSUFARSLEGU ÁVINNINGA

Reishi hefur verið í asískum jurtalækningum í yfir 2000 ár en sveppurinn er næringarríkur og býr yfir fjölmörgum heilsufarslegum eiginleikum. Vinsælast þykir okkur að setja duftið í graut, smoothie eða ljúffengan cacao bolla en einnig er hægt að nota duftið í aðra matargerð. ✓ Einungis 100% hreint reishi duft Hálf til 1 teskeið fyrir aukin næringarefni Reishi duftið er lífrænt vottað, án aukaefna og framleitt á siðferðislegan máta með tilliti til fólks og náttúru.   

Blue Spirulina

kr.33.979

EIN NÆRINGARRÍKASTA FÆÐA SEM VÖL ER Á & GERIR MATINN SKEMMTILEGA BLÁAN

ath. eigum bara til 1kg poka eins og er Blá Spirulína (Phycocyanin) er unnin úr vel þekkta þörungnum spirulínu og inniheldur magn af próteini, vítamínum, steinefnum, karótenóíð og andoxunarefnum sem ættu að gefa þér gott "kick" inn í daginn. Það er nóg að setja hálfa til heila teskeið af duftinu í þeyting, jógúrt, ofurskál eða drykk til að fá fallegan bláan lit og aukin næringarefni. Við bendum samt á að liturinn passar misvel við aðra liti en það er mjög gaman að prófa sig áfram!

JÓLA OFURSKÁL  

  • Nokkrir frosnir bananar (ég set stundum frosna kúrbít bita á móti til að minnka sætu)
  • 1-2 tsk. af blárri spirulínu
  • dass af plöntumjólk (ég elska kókosmjólk)
  • 2 msk. af jógúrti
  • 1/2 tsk. af kanil (má sleppa)
  • 1/2 tsk af engifer (má sleppa)
  • 1/2 tsk. af múskat (má sleppa)
Allt er blandað saman í öflugum blandara eða matvinnsluvél. Athugið að þar sem unnið er með mikið frosið hráefni þá gæti þurft að stoppa inn á milli og hræra með skeið eða jafnvel bæta smá meiri vökva. Toppaðu skálina með því sem þig girnist en við mælum með piparköku crumble eða jafnvel granóla!

Tropic Organic Acaí Powder 70g

kr.2.990

LÍFRÆNT VOTTUÐ FROSTÞURRKUÐ ACAÍ BER FRÁ AMAZON REGNSKÓGINUM

Þessi dökkfjólubláu ber sem eiga rætur sínar að rekja til Amazon regnskógarins hafa náð miklum vinsældum síðustu ár. Berin eru þekkt fyrir háan andoxunarstuðul en acaí ber eru talin búa yfir 3x meira magni af andoxunarefnum en til dæmis bláber. Duftið er fíngert og hentar vel í þeyting, chia graut eða jógúrtina fyrir aukin vítamín og steinefni. Það sem er í uppáhaldi hjá Tropic teyminu eru acaí skálar.

UPPSKRIFT AF ACAÍ SKÁL

1 bolli af blönduðum frosnum berjum 30 ml. plöntuprótein (valkvæmt) 1-2 dl. af plöntumjólk 2 tsk. Tropic acaí duft 1 frosinn banani Öllu er blandað vel saman í blender eða matvinnsluvél. Þar sem mikið er frosið og áferðin verður ískennd að þá þarf blenderinn eða matvinnsluvélin að vera svolítið öflug. Stundum þarf að bæta við meiri vökva eða stoppa og hræra og byrja aftur, til að ná að blanda öllu almennilega saman Fullkomið "toppings" → fersk jarðaber, bananabitar, fersk bláber, hnetusmjör eða möndlusmjör, hempfræ, granóla og kakónibbur

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

FJARÐARKAUP Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði KRÓNAN Skeifunni, Lindum, Flatahrauni, Granda, Bíldshöfða, Mosfellsbæ, Selfossi, FITJUM og Akureyri HAGKAUP  Garðabæ, Akureyri, Skeifunni, Smáralind, Spöng og Kringlu

Organic Matcha Powder 70g

kr.2.690

FÁANLEGT Í BIÐPÖNTUN, NÝ SENDING KEMUR MIÐJAN SPETEMBER

ORKUGJAFI ÚR NÁTTÚRUNNI, HÁGÆÐA JAPANSKT MATCHA FYRIR HREINA ORKU OG EINBEITINGU.

Ertu að leita leiða til að fá betri fókus og jafnari orku yfir daginn? Þá ráðleggjum við þér að prófa þetta 100% náttúrulega og lífrænt vottaða matcha grænte duft. Duftið er fínmalað úr japönskum grænte laufum og inniheldur ríkulegt magn andoxunarefna, vítamína og steinefna til að styðja við almenna heilsu. Matcha er þekkt fyrir að vera ríkt af andoxunarefnum en inniheldur u.þ.b. 3x meira magn af því en grænt te. Duftið er án allra aukaefna og engum sætugjafa viðbætt. Þú notar einfaldlega 1 tsk. til að útbúa matcha latte eða te. Eins getur þú notað matcha í  smoothie, baksturinn eða matargerð en duftið gefur fallegan daufan grænan lit. MATCHA PINA COLADA • 1 banani • 1 bolli af frosnum anans • 1 tsk. lífrænt matcha • Ríkuleg lúka af spínati • 1 dl. kókosmjólk í dós (þykki hlutinn) • 25 ml. af vanillupróteini (valkvætt) • Dass af köldu vatni

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og Akureyri KRÓNAN• Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni, FITJUM og Akureyri  

Matcha Bamboo Tea Beater

kr.4.990

FRÁBÆR GRIPUR Í MATCHA GERÐ TIL AÐ LEYSA UPP TE-IÐ Í HEITU VATNI

Matcha pískurinn er opin gerð af písk og helsta áhöldið sem notað er við undirbúning á matcha bolla. Pískurinn hjálpar til við að ná fram sem mestu bragði úr matcha duftinu en hann er búinn til úr einni heilli bambusstöng.

Tropic Chocolate Protein with Probiotics 500g

kr.3.990

LJÚFFENGT PLÖNTUPRÓTEIN MEÐ SÚKKULAÐI BRAGÐI

Í þessu próteini er að finna auðmeltanlega próteingjafa eða bauna- og rísprótein sem líkaminn á auðvelt með að vinna úr. Í hverjum skammti er 20 gr. af próteini og formúlan er auðguð með, góðgerlum, sem þarf ekki að hafa í kæli, trefjum og meltingarensímum til þess að stuðla að bættri meltingu. Við notum avókadó þykkni til þess að gera áferðina “rjómakennda” sem verður til þess að próteindrykkirnir verða talsvert grinilegri. Það sem gerir okkar prótein sérstakt er að við notum stevíu sem sætugjafa og sniðgöngum alveg gerviefni á borð við → sucralose og acesulfam-K Þar af leiðandi er próteinið ekki of sætt og ekki með óþarfa eftirbragð. Próteinið er einnig glútenlaust, án GMO og 100% vegan Uppskrift af prótein kaffidrykk   settu eftirfarandi í blandara: 1 banani 1 msk möndlusmjör 2-3 döðlur 1 skeið Tropic súkkulaðiprótein 1-2 dl möndlumjólk Settu 2 dl. af klökum í glas, helltu 1 dl. af kaffi yfir & því næst topparu með próteindrykknum. Hrærið og njótið

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

FJARÐARKAUP Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði KRÓNAN Grandi, Lindum, Flatahraun, Skeifan, Mosfellsbær, Selfossi, Akureyri, FITJUM og Bíldshöfði HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og Akureyri 

Tropic Vanilla Protein 500g

kr.3.790

TROPIC PLÖNTUPRÓTEIN MEÐ VANILLUBRAGÐI

Í þessu próteini er að finna auðmeltanlega próteingjafa eða bauna- og rísprótein sem líkaminn á auðvelt með að vinna úr. Í hverjum skammti er 22 gr. af próteini og formúlan er auðguð með trefjum og meltingarensímum til þess að stuðla að bættri meltingu. Við notum avókadó þykkni til þess að gera áferðina "rjómakennda" sem verður til þess að próteindrykkirnir verða talsvert grinilegri. Það sem gerir okkar prótein sérstakt er að við notum stevíu sem sætugjafa og sniðgöngum alveg gerviefni á borð við sucralose og acesulfam-K Þar af leiðandi er próteinið ekki of sætt og ekki með óþarfa eftirbragð. Próteinið er einnig glútenlaust, án GMO og 100% vegan

EINFALDUR VANILLU SMOOTHIE

  • 1 banani
  • 1 bolli af frosnum jarðaberjum
  • 1 bolli af frosnum ananas bitum
  • 30 ml. vanilluprótein (full scoop er 50 ml.)
  • 1 msk. möndlusmjör
  • dass af plöntumjólk
  • 2 tsk. acaí duft
  • hægt að bæta hampfræjum eða chia (valkvætt)
Allt sett saman í blandari þar til mjúk áferð myndast

AÐRIR SÖLUSTAÐIR:

FJARÐARKAUP Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði KRÓNAN Lindum, Flatahrauni, Granda, Mosfellsbæ, Bíldshöfða, Selfossi, Skeifunni, FITJUM og Akureyri. HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og Akureyri

Organic Matcha 1000 gr.

kr.26.990
Ertu að leita leiða til að fá betri fókus og jafnari orku yfir daginn? Þá ráðleggjum við þér að prófa þetta 100% hreina og lífrænt vottaða matcha. Duftið er fínmalað úr japönskum grænte laufum og inniheldur ríkulegt magn andoxunarefna, vítamína og steinefna til að styðja við almenna heilsu. Matcha er þekkt fyrir að vera ríkt af andoxunarefnum en inniheldur u.þ.b. 3x meira magn af því en grænt te. Duftið er án allra aukaefna og engum sætugjafa viðbætt. Þú notar einfaldlega 1 tsk. til að útbúa matcha latte eða te. Eins getur þú notað matcha í  smoothie, baksturinn eða matargerð en duftið gefur fallegan daufan grænan lit.  

Organic Green Spirulina 500g

kr.6.490
SPIRULÍNA ER EIN PRÓTEINRÍKASTA FÆÐA SEM TIL ER EN UM 60-70% ÞESSARA ÞÖRUNGS ER PRÓTEIN Spirulínan er jafnframt sneisafull af mikilvægum næringarefnum og ein af næringarríkustu ofurfæðum sem finnast í heiminum. Inniheldur meðal anars járn, B1, B2 og B3-vítamín, magnesíum, beta karótín, chlorophyll og omega fitusýrur. Spirulínan er ræktuð í hreinum ferskvatnslaugum og fær orku frá sólarljósi til vaxtar. Spirulínan er lágsmarksunnin, aðeins náttúrulega þurrkað til að mynda fíngert duft. Passar vel í þeyting, jógúrt, drykkinn, yfirnóttu hafra eða chia graut.