Sýna 25–36 af 135 niðurstöður

Power Matcha 150 gr.

kr.5.090
INNIHALDSEFNI: Matcha*, Moringa*, Maca*, Hveitigras* & Bygggras* (*lífrænt) Inniheldur 23 mg. af koffíni í hverjum skammti þökk sé matcha (1 tsk.)
  • Blandan var hönnuð af reyndum næringarfræðingum til að tryggja bestu samsetningu út frá virkni hráefna.
Blandaðu þér dýrindis matcha bolla með því að leysa upp 1 tsk. af Power Matcha í botnfylli af vatni og toppaðu síðan með flóaðri barista (plöntu)mjólk. Sætugjafi er síðan valkvæmur. Við kaup á þessari vöru færðu niðurhalanlega e-bók með fróðleik og uppskriftum! AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Spöng, Smáralind og Kringlunni. Lyfja Garðabæ, Lágmúla, Smáratorgi, Smáralind, Egilsstöðum, Reykjanesbæ og Árbæ Vegan Búðin Faxafeni 14

Detox Pakkinn

kr.21.080

5 DAGA HREINSUNIN FRÁ YOUR SUPER ER EIN ÁRANGURSRÍKASTA HREINSUNIN Á MARKAÐI Í DAG!

Nú er þessi öfluga hreinsun CITRUS LAB TESTED eða klínískt vottuð en það má lesa nánar um vottunina og niðurstöður rannsóknarinnar HÉR. 5 daga detox planið var hannað af reyndum næringarfræðingum ásamt Kristel, meðeiganda Your Super en það einkennist af þremur plöntumiðuðum máltíðum yfir daginn. Grænn smoothie í morgunmat, plöntumiðuð máltíð í hádegismat og berja smoothie í kvöldmat. Þú mátt einnig gæla þér á detox samþykktu snarli inn á milli. 86% þeirra sem gáfu endurgjöf tilkynntu bætta heilsu og betri líðan eftir hreinsunina. Þú HREINlega verður að prófa!

DETOX PAKKINN INNIHELDUR:

Skinny Protein 400 gr. Golden Mellow 200 gr. Super Green 200 gr. Forever Beautiful 200 gr. Gut Feeling 150 gr. Tvö 5 daga detox bæklinga (einnig niðurhalanlegt hér.) e-bók með dýrindis smoothie uppskrift Athugið að til þess að fylgja planinu eftir þarf einnig að gera matarinnkaup en hugmynd af innkaupalista fylgir detox planinu!

Rakakrem með argan skeljum

kr.3.912
Þetta unaðslega og margverðlaunaða andlitskrem veitir húðinni góðan raka og nærir hana vel. Kremið hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð. Rakakremið inniheldur fínmalað púður úr argan skeljum sem er ríkt af e vítamíni og andoxunarefnum. Kremið inniheldur einnig kakósmjör, aloe vera og blóðappelsínu sem er þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur! Þessi vara er framleidd á sjálfbæran máta í UK.        

Pink Latte Pakkinn

kr.8.654
Moon Balance inniheldur meðal annars ayurveda jurtir og aðlögunarefni sem eru talin gera kroppnum gott, sérstaklega fyrir okkur konurnar! Plant Collagen inniheldur síðan hráefni á borð við aloe vera sem hafa verið kennd við húðheilsu. Plant Collagen er bragðbesta varan frá Your Super að okkar mati en hún inniheldur vanillu frá Madagascar og er því fullkomið sem vanillu „creamer“ í hvaða drykk sem er.

INNIFALIÐ Í PAKKANUM ER:

  • Moon Balance 200 gr. (hibiscus*, maca*, rauðrófu*, shatavari*, amla* & baobab*)
  • Plant Collagen 120 gr. (tocos*, baunaprótein*, tremella*, lucuma*, vanilla* & aloe vera*)
  • Niðurhalanleg e-bók með fróðleik og uppskriftir fyrir Plant Collagen og Moon Balance

UPPSKRIFT AF MOON MILK

  • 1 tsk. Moon Balance
  • 1 tsk. Plant Collagen
  • 1 bolli plöntumjólk
  • 1 tsk. hlynsýróp (valkvætt)
Allt hitað í potti og flóað með Your Super mjólkurflóara, síðan borið fram í þínum uppáhalds bolla!

5 daga detox útprentað prógram

kr.0

5 DAGA DETOX PLANIÐ FRÁ YOUR SUPER ER EITT ÁRANGURSRÍKASTA DETOX PRÓGRAMIÐ Á MARKAÐI Í DAG!

Ástæðan fyrir þessu er að fólk er í rauninni að koma djúphreinsunarferlinu sínu af stað með raunverulegri, hollri og hreinni fæðu án þess að vera svangur eða svöng allan tímann. Með því að borða hreint og næringaríkt og sleppa unnum óþarfa getur þú upplifað flóruna af heilsufarslegum ávinningum á borð við minni uppþembu, minni sykurlöngun, aukið orkustög og heilt yfir betri andleg og líkamleg líðan! Við hvetjum þig til að skoða e-bókina sem inniheldur 5 daga detox planið frá Your Super og ef þú vilt festa kaup í detox pakkanum þá er hann að finna hér.

Choco Bar with Caramel 30 gr.

kr.690
Þetta 100% vegan og lífræna súkkulaðistykki inniheldur karamellu fyllingu sem enginn súkkulaði unnandi má láta framhjá sér fara! Þetta súkkulaði er handgert af ást hjá fjölskyldufyrirtæki í Tékklandi þar sem aðeins eru notuð hágæða hráefni á borð við hrátt perúskt cacao dauft og lífrænan kókospálmasykur. Það sem einkennir hrátt súkkulaði er að það er matreitt undir 42°C til þess að varðveita næringarefnin sem eru til staðar. Þú finnur engin óþarfa aukaefni í súkkulaðinu frá My Raw Joy þar sem þau leggja áherslu á heiðarleika og gæði

Augnkrem með Hlyntré og Kaffi

kr.2.632
Augnkrem unnið úr kaffiolíu og þykkni úr hlyntrésbörk Hefur róandi áhrif, endurnærir og dregur úr bólgum í húð Hentugt fyrir allar húðtýpur og má nota undir andlitsfarða Hýalúrónsýra hjálpar til við að þétta og slétta húðina Framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi  

Your Super Mjólkurflóari

kr.2.490
Flóaðu mjólkina í einum grænum með mjólkurflóaranum frá Your Super!
  • Búinn til úr bambus og FDA samþykktu BPA fríu plasti
  • Fullkominn fyrir kakó-ið eða latte bollann
  • Best að handþvo með heitu vatni
  • Gengur fyrir batteríum

Fiji Feels Combo

kr.3.384
Fiji Feels sjampó- og hárnæringarstykkið vinna fullkomlega saman við að gera hárið þitt sem líflegast, heilbrigðast og að auki silkimjúkt. Stykkin búa yfir unaðslegum ilm af kryddaðri vanillu og kókos sem fær mann til að hlakka til næsta hárþvottar! Stykkin eru auðvitað vegan og siðferðisleg (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaus, pálmolíulaus, án SLS og án paraben. Stykkin eru einnig handgerð í USA. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

Möndlusmjör 200 gr.

kr.1.272
LOKSINS virkjað, vegan og 100% lífrænt möndlusmjör úr einungis 3 hráefnum!  Þetta möndlusmjör býr yfir dúnmjúkri áferð og er virkilega bragðgott eitt og sér en einnig afar hentugt í allskonar uppskriftir sem og með epla bitum, sem topping eða í þeyting!
  • 100% plöntumiðað
  • Lífrænt vottað
  • Rjómakennd áferð
  • Handgert í Tékklandi
  • Hráfæði (unnið undir 42° C)
  • Án pálmolíu og án hertar fitu
  • Inniheldur engann unninn sykur
Allar hnetur og möndlur hjá My Raw Joy eru virkjaðar sem þýðir að þær eru látnar liggja í vatni í 15 klst. Þannig eykst næringargildið þeirra og þær verða auðmeltanlegri. 

Mumbai Mood sjampóstykki

kr.1.592
ÖRLÍTIÐ BREYTT & BÆTT FORMÚLA, NÝJAR VÖRUMYNDIR Í VINNSLU! Mumbai Mood sjampóstykkið okkar býr yfir vandaðri samsetningu af náttúrulegum hráefnum sem gerir gæfumun og skilur hárið eftir líflegt og með unaðslegum keim af mangó og ananas. Hársápustykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben. Hársápustykkin eru einnig handgerð í USA!  Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

Curcumin 50 gr.

kr.3.490

100% HREINT KÚRKÚMÍN DUFT SEM ER VIRKA EFNIÐ Í TÚRMERIK

Þetta krydd hefur verið notað í ayurveda og aðrar náttúrulækningar í þúsundir ára. Kúrkúmín hefur sterka andoxunareiginleika sem getur haft jákvæð áhrif á ónæmiskerfið. Kryddið er þekkt fyrir að geta dregið úr krónískum bólgum í líkamanum sem er mikilvægt til að vinna gegn krónískum sjúkdómum. Eins hefur kúrkúmín hjálpað mörgum sem eru að glíma við liðagigt með því að draga úr verkjum og stífleika í liðunum. Heilsufarslegur ávinningur kúrkúmín má einnig tengja við heilaheilsu, sjónheilsu og nýrnaheilsu. Athugið að eitt og sér getur líkaminn átt erfitt með upptöku á kúrkúmín en ef þú setur smá svartan pipar á móti, þá eykur það upptökuna og ávinning sömuleiðis

ÞÚ SETUR EINFALDLEGA 1 TSK. Í FLÓAÐA MJÓLK, HOLLAN SMOOTHIE, BAKSTURINN, GRAUTINN, JÓGÚRTIÐ EÐA HVAÐ SEM ER.

DUFTIÐ GEFUR FALLEGAN GULAN LIT OG GETUR VIRKAÐ SEM NÁTTÚRULEGUR MATARLITUR.