99% NÁTTÚRULEG HRÁEFNI: Aqua, Butyrospermum Parkii (Shea) Butter, C14-22 Alcohols, C12-20 Alkyl Glucoside, Glycerin, Cucumis Sativus (Cucumber) Fruit Extract*, Helianthus Annuus Seed Oil*, Vitis Vinifera (Grape) Seed Oil, Acer Rubrum (Maple) Extract, Coffea Arabica (Coffee) Seed Extract, Sodium Hyaluronate, Calendula Officinalis Extract*, Anthemis Nobilis (Chamomile) Flower Oil, Olea Europaea (Olive) Fruit Oil, Rosmarinus Officinalis Leaf Extract*, Tocopherol, Citric Acid, Salicylic Acid, Sorbic Acid, Potassium Sorbate, Benzyl Alcohol, Limonene**. *Organically grown ingredients.**Natural constituent of essential oils listed.
“Hand + Body Lotion with Bergamot 250 ml.” hefur verið bætt í körfuna. Skoða körfu
Eye Cream with Cucumber, Hyaluronic Acid + Coffee 15 ml.
kr.5.990
MEST SELDA SNYRTIVARAN OKKAR OG EKKI AÐ ÁSTÆÐULAUSU
Augnkrem unnið úr kaffiolíu og þykkni úr hlyntrésbörk
Hefur róandi áhrif, endurnærir og dregur úr bólgum í húð
Hentugt fyrir allar húðtýpur og má nota undir andlitsfarða
Hýalúrónsýra hjálpar til við að þétta og slétta húðina
Framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
HRÍM Kringlunni
EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af kreminu fæst þar líka
Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru
Á lager (hægt að leggja inn biðpöntun)
Vörunúmer:
UC10
Flokkar: ALLAR VÖRUR, GJAFAVARA, HÚÐVÖRUR, SNYRTIVÖRUR, UPCIRCLE
Aðrar spennandi vörur
Maldives Mood Shampoo Bar
kr.2.290
Maldives Mood sjampóstykkið okkar býr yfir vandaðri formúlu sem hentar flestum hártýpum og skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt með unaðslegum keim af mangó og ananas.
"Ég var orðin þreytt á því að prófa trekk í trekk ný sjampóstykki sem skildu hárið mitt eftir fitugt og hreinlega sjúskað. Ég vildi fá svipaða upplifun af hárþvotti eins og með hefðbundin sjampó sem maður kaupir á hárgreiðslustofu nema helst án skaðlegra efna. Ég tók því málin í mínar hendur og til varð Maldives Mood!" - Amy stofnandi Tropic
Maldives Mood er vegan og cruelty-free eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben.
Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.




AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
NETTÓ • Glerártorgi, Mjódd, Egilsstöðum og Granda FJARÐARKAUP • Hólshraun 1b, 220 Hafnarfirði



Face Moisturiser with Vitamin E + Aloe Vera 60 ml.
kr.5.990
MILT DAGKREM SEM VEITIR FRÁBÆRAN RAKA OG NÆRIR HÚÐINA MEÐ E-VÍTAMÍNI OG ÖÐRUM ANDOXUNAREFNUM SEM GETA HÆGT Á ÖLDRUN
Þetta dagkrem hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð. Við höfum einnig fengið endurgjöf frá konum með mikinn rósroða og virkilega slæma húð eftir barnsburð sem segja að þetta krem hafi algjörlega bjargað sér. Kremið inniheldur fínmalað púður úr endurnýttum argan skeljum sem hefðu annars farið til spillis. Argan skeljarnar eru ríkar af E-vítamíni og öðrum andoxunarefnum sem gera húðinni mikið gott. Kakósmjör, aloe vera, og blóðappelsína er einnig að finna í þessu dásemdar kremi en þessi innihaldsefni eru þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. Þegar krukkan þín klárast, þá getur þú verslað áfyllingu í EkóHúsinu að Síðumúla 11. "Þetta unaðslega dagkrem frá UpCircle kom eins og kallað inn í líf mitt 2019 þegar ég var að glíma við ýmis húðvandamál. Húðin mín hefur alla tíð verið ótrúlega þurr. Ef rakakremið gleymdist í ferðalögum þá var ég í vondum málum! Það voru meira að segja byrjaðir að myndast krónískir þurrkublettir framan í mér. Dagkremið frá UpCircle hefur gert kraftaverk fyrir mína húð þar sem ég get núna farið í sturtu án þess að líða eins og sandpappír í framan. Eins hafa bólur ekki gert eins mikið vart við sig eftir að ég byrjaði að nota UpCircle dagkremið (og hreinsimjólkina líka reyndar). Ef þú ert í svipuðum sporum og ég var í, að vera í dauðaleit af hinu fullkomna kremi sem er ekki með afgerandi lykt eða lætur þig klæja eða gefur þér roða í framan, þá er UpCircle dagkremið mjög sennilega fyrir þig!" - einlæg umsögn frá Kristínu Amy, eiganda Tropic.AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af rakakreminu fæst þar líka
Coconut Bar 50g
kr.490
HANDGERT SÚKKULAÐISTYKKI SEM BRAGÐAST EINS OG BOUNTY NEMA BARA BETRA
Fyllingin er dúnmjúk með kókos og toffee. Fullkomið fyrir kósýkvöldið eða með kaffinu! Allt súkkulaði frá Vegan Delights er án pálmolíu og 100% vegan. Þau nota líka alltaf cocoa sem er framleitt á ábyrgan hátt með sjálfbærni að leiðarljósiAÐRIR SÖLUSTAÐIR
HAGKAUP • Garðabæ, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Spöng, Eiðistorg og AkureyriBath Salts with Epsom, Sea and Himalayan Pink Salt 350 ml.
kr.3.490
These beautifully scented bath salts feature luxurious natural salts and aromatic botanicals to help calm the mind and relax the body. Upcycled rose petals provide an uplifting floral scent, whilst the combination of lavender and geranium oil grounds the senses. Whilst you unwind and relax, the bath salts get to work.
Each jar is brimming with upcycled rose petals and contains a trio of natural salts. The three natural salts include muscle-relaxing Epsom salt, breakout-busting sea salt and anti-pollutant Himalayan pink salt.
Reused, repurposed, reloved: These bath salts are made with upcycled rose petals to inspire relaxation and to invigorate the senses.
The UpCircle Promise
Natural, sustainable, vegan & cruelty-free. Housed in 100% plastic-free, refillable packaging.
Face Toner with Hyaluronic Acid 100 ml.
kr.4.990
ANDLITSTÓNER MEÐ CHAMOMILE: virkilega ferskur og rakagefandi andlitstóner úr chamomile þykkni sem inniheldur einnig græna mandarínu sem endurvekur og frískar upp á húðina. Tónerinn inniheldur hýalúrónsýru sem viðheldur þéttleika húðarinnar og getur dregið úr fínum línum.
Þessi tóner er hentugur fyrir allar húðtýpur og það má nota hann undir andlitsfarða sem og eftir andlitshreinsun. Við mælum klárlega með því að nota hann reglulega yfir daginn til að viðhalda þéttleika og ferskleika húðarinnar!
Ásamt öllum vörum frá UpCircle, þá er tónerinn framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi og inniheldur einungis 99% náttúruleg hágæða hráefni sem sum hver eru endurnýtt til að sporna gegn sóun.
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af tónernum fæst þar líka






Hand + Body Lotion with Bergamot 250 ml.
kr.3.990
Cleanse, Tone + Moisturise Set
kr.13.590
FULLKOMIÐ GJAFASETT SEM INNIHELDUR ÞRJÁR VINSÆLAR HÁGÆÐA HÚÐVÖRUR FRÁ ELSKU UPCIRCLE
RAKAKREM MEÐ ARGAN SKELJUM: Þetta unaðslega og margverðlaunaða andlitskrem er okkar vinsælasta UpCircle vara en kremið veitir húðinni góðan raka og nærir hana einstaklega vel. Kremið hentar öllum húðtýpum en er alveg sérstaklega gott fyrir þurra húð. Rakakremið inniheldur fínmalað púður úr argan skeljum sem er ríkt af E-vítamíni og andoxunarefnum. Kremið inniheldur einnig kakósmjör, aloe vera og blóðappelsínu sem eru þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur. HREINSIBALM MEÐ APRÍKÓSU: er virkilega árangursríkt, nærandi og rakagefandi hreinsikrem til hversdagsnota sem hreinsar farða, augnfarða, mengun og önnur óhreinindi af andliti á mildan máta án þess að valda húðertingu. Hreinsikremið djúphreinsar húðina og hefur á hana róandi áhrif. Það er gert úr fínmöluðu púðri frá apríkósusteinum sem er náttúruleg aukaafurð apríkósuolíuiðnaðarins og er bæði ríkt af andoxunarefnum og E vítamíni. Þetta hreinsikrem hentar flestum húðtýpum, hvort sem þú ert með þurra, venjulega eða olíukennda húð. ANDLITSTÓNER MEÐ CHAMOMILE: virkilega ferskur og rakagefandi andlitstóner úr chamomile þykkni sem inniheldur einnig græna mandarínu sem endurvekur og frískar upp á húðina. Tónerinn inniheldur hýalúrónsýru sem viðheldur þéttleika húðarinnar og getur dregið úr fínum línum. Þessi tóner er hentugur fyrir allar húðtýpur og það má nota hann undir andlitsfarða sem og eftir andlitshreinsun. Við mælum klárlega með því að nota hann reglulega yfir daginn til að viðhalda þéttleika og ferskleika húðarinnar! Við mælum með þessm vörum af heilum hug en þær eru framleiddar á sjálfbæran máta í UK með 99-100% náttúrulegum hágæða endurnýttum hráefnum sem hefðu annars farið til spillis.
Face Oil with Coffee and Rosehip Oil 30 ml.
kr.4.990
MARGVERÐLAUNA OG EIN VINSÆLASTA UPCIRCLE VARAN FRÁ UPPHAFI SEM BÝR YFIR FRÁBÆRRI VIRKNI FYRIR FLESTAR HÚÐTÝPUR
Þessi unaðslega andlitsolía (hét áður andlitsserum) inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af kaffi sem og jojoba-, sea buckthorn og rosehip olíum. Þessi andlitsolía var hönnuð til að örva kollagen framleiðslu húðarinnar og viðhalda þéttleika hennar. Fyrir bestan árangur er best að nota olíuna kvölds og morgna. Þú getur sett olíuna á rakakremið sem bindur rakann betur í búðinni og þú þarft aðeins örfáa litla dropa til að fá góðan árangur! Þessi andlitsolía er samþykkt af húðlæknum og rík af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar. Margir hafa einnig notað þessa olíu sem hár eða skeggolíu og hentar því einnig fyrir karlmenn. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: EkóHúsið Síðumúla 37 & áfylling af seruminu fæst þar líka








