FERSK HAND- OG LÍKAMSSÁPA Í FERÐASTÆRÐ SEM ÞÚ GETUR TEKIÐ MEÐ Í HANDFARANGURINN
Þessi unaðslega hand og líkamssápa inniheldur bólguminnkandi kiwi vatn en einnig sítrónugras- og mandarínuolíu sem gerir það að verkum að sápan þurrkar ekki upp húðina. Sápan róar og ver húðina ásamt því að gefa henni mýkt og hentar því einstaklega vel fyrir þurra húð.
Þú færð 25 vildarpunkta fyrir að deila þessari vöru
SPARAÐU 20% OG NÆLDU ÞÉR Í ÞESSA ÖFLUGU HÁRTVENNU FRÁ UPCIRCLE SEM INNIHELDUR SJAMPÓIÐ OG HÁRNÆRINGUNA ÞEIRRA
SJAMPÓ CRÉME: 100% náttúrulegt sjampó með hágæða endurnýttum hráefnum. Þessi nýstárlega og vandaða formúla skilar miklu árangri strax en einn þvottur er á við þrjá þvotta með hefðbundnu sjampói. Formúlan er auðvitað án sílíkons og súlfata.„I’m an ex senior hairstylist of 12 years. When I blow dried and straightened my hair after using this, I was blown away.“
Þú munt sennilega ekki vilja fara aftur í annað sjampó eftir að þú prófar þetta! The Telegraph lýsti vörunni sem: „a revelation“ og sjampóið hefur unnið verðlaunin Top Santé Best Buy.
CONDITIONER CRÉME: þessi hárnæring inniheldur hágæða hráefni á borð við kókosolíu, bambus þykkni og vax úr appelsínuberki sem verndar hárið og varðveitir næringuna í hárinu. Útkoman er silkimjúkt og heilbrigt hár, sem við viljum jú flest!
Appelsínubörkurinn sem notaður er í þessa hárnæringu er aukaafurð úr appelsínusafa framleiðslu. Vax úr appelsínuberki inniheldur „botanical lipids“ sem virkar eins og hálfgert mýkingarefni og mýkir hárið og veitir því raka. Vaxið er einnig ríkt af C-vítamíni og getur bætt styrkleikann í hárinu sem getur minnkað líkur á að endar slitni.
Báðar vörurnar henta öllum hártýpum; þar á meðal afro, krulluðu, lituðu, olíukenndu og þurru hári.
Þessi unaðslega hand- og líkamssápa er gerð úr bólguminnkandi kiwi vatni sem er aukaafurð úr djúsa iðnaðinum. Í sápunni er einnig að finna sítrónugras og mandarínuolíu. Sápan róar og ver húðina ásamt því að gefa henni mýkt. Sápan hentar því einstaklega vel fyrir þurra húð og skilur líkamann eða hendurnar eftir talsvert ferskari!
Nældu þér í vinsælustu vörurnar frá UpCircle á yfir 20% afslætti en við erum auðvitað að tala um andlitsserumið með kaffi- og rosehip olíu sem og augnkremið með hlyntré og kaffi.
Kemur saman í pakka og hentar því vel sem gjöf fyrir hana eða hann sem vill auka aðeins lífsgæðin!
Serumið er ríkt af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar! Margir hafa einnig notað það sem hár eða skeggolíu. Jojoba olían mýkir hárið á meðan rosehip olían viðheldur heilbrigðu hári og minnkar ertingu. Þvílík fjárfesting!
Augnkremið hefur róandi áhrif og getur dregið úr bólgum í húðinni sem og dregið úr pokum. Augnkremið inniheldur hýalúrónsýru sem getur hjálpað til við að þétta og slétta húðina.
ÁFYLLING:
áfyllingar fyrir þessar vörur eru fáanlegar í EkóHúsið Síðumúla 11
Augnkrem unnið úr kaffiolíu og þykkni úr hlyntrésbörk
Hefur róandi áhrif, endurnærir og dregur úr bólgum í húð
Hentugt fyrir allar húðtýpur og má nota undir andlitsfarða
Hýalúrónsýra hjálpar til við að þétta og slétta húðina
Framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi
AÐRIR SÖLUSTAÐIR:
HRÍM Kringlunni
EkóHúsið Síðumúla 11 & áfylling af kreminu fæst þar líka
Maldives Mood sjampóstykkið okkar býr yfir vandaðri formúlu sem hentar flestum hártýpum og skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt með unaðslegum keim af mangó og ananas.
"Ég var orðin þreytt á því að prófa trekk í trekk ný sjampóstykki sem skildu hárið mitt eftir fitugt og hreinlega sjúskað. Ég vildi fá svipaða upplifun af hárþvotti eins og með hefðbundin sjampó sem maður kaupir á hárgreiðslustofu nema helst án skaðlegra efna. Ég tók því málin í mínar hendur og til varð Maldives Mood!" - Amy stofnandi Tropic
Maldives Mood er vegan og cruelty-free eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben.Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
Fiji Feelin' sjampóstykkið okkar býr yfir vandaðri formúlu sem hentar flestum hártýpum og skilur hárið eftir líflegt og heilbrigt með unaðslegum keim af kryddaðri vanillu og kókos.
"Ég var orðin þreytt á því að prófa trekk í trekk ný sjampóstykki sem skildu hárið mitt eftir fitugt og hreinlega sjúskað. Ég vildi fá svipaða upplifun af hárþvotti eins og með hefðbundin sjampó sem maður kaupir á hárgreiðslustofu nema helst án skaðlegra efna. Ég tók því málin í mínar hendur og til varð Fiji Feelin'!" - Amy stofnandi Tropic
Fiji Feelin er vegan og cruelty-free eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben.Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
DÁSAMLEGT SETT SEM VEITIR RAKA OG NÆRIR HÚÐINA. TILVALIÐ FYRIR ÞÍNA HÚÐRÚTÍNU!
SETTIÐ INNIHELDUR EFTIRFARANDI VÖRUR:
Lífrænt andlitsserum með kaffiolíu frá UpCircle (30 ml.) Serumið inniheldur kaffiolíu og býr yfir vægum en unaðslegum náttúrulegum ilm af því sem og jojoba-, sea buckthorn- og rosehip olíu. Serumið er ríkt af C vítamíni og andoxunarefnum sem getur dregið úr blettamyndun og stuðlað að bjartara yfirbragði húðarinnar. Notaðu serumið á morgnana eða á kvöldin til að örva kollagen framleiðslu og viðhalda þéttleika húðarinnar.
Rakakrem með E-vítamíni og argan skeljum (60 ml.) kremið er ríkt af andoxunarefnum og hentar öllum húðtýpum en er alveg einstaklega gott fyrir þurra húð. Kremið inniheldur kakósmjör, aloe vera og blóðappelsínu sem er þekkt fyrir húðróandi áhrif. Við mælum með því að þú berir kremið á hreina húð, tvisvar á dag fyrir bestan árangur!
Næturkrem með hýalúrónsýru og niacinamide (B3 vítamín) (55 ml.) milt og ilmefnalaust sem hentar öllum húðtýpum. Kremið sér um að næra, endurnýja og vernda húðina á meðan við nælum okkur í verðskuladðan svefn.
Þetta sett er fullkomin gjafavara
UPCIRCLE LOFORÐIÐ
100% endurvinnanlegar umbúðir og allar vörur eru framleiddar á siðferðislegan máta án pálmolíu, parabens, phthalates, sílíkon, steinefnaolíu og parfum. Þessar vöru eru náttúrulegar, umhverfisvænar, vegan og án ofbeldis.
ÁFYLLING:
fáanlegar í EkóHúsið Síðumúla 11
Maldives Mood hárnæringarstykkið okkar parast fullkomlega við Maldives Mood sjampóstykkið en hárið verður silkimjúkt og ekki skemmir mangó og ananas keimurinn sem minnir helst á kvöldstund á suðrænni strönd!
Hárnæringarstykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaust, án pálmolíu, án paraben & án SLS.
Þú einfaldlega greiðir stykkinu í gegnum blautt hárið, okkur finnst nóg að setja bara í endana og skolar næringuna síðan vandlega úr hárinu þegar það er orðið mjúkt.
Passið endilega að hafa stykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.
SPIRULÍNA ER EIN PRÓTEINRÍKASTA FÆÐA SEM TIL ER EN UM 60-70% ÞESSARA ÞÖRUNGS ER PRÓTEIN
Spirulínan er jafnframt sneisafull af mikilvægum næringarefnum og ein af næringarríkustu ofurfæðum sem finnast í heiminum. Inniheldur meðal anars járn, B1, B2 og B3-vítamín, magnesíum, beta karótín, chlorophyll og omega fitusýrur.
Spirulínan er ræktuð í hreinum ferskvatnslaugum og fær orku frá sólarljósi til vaxtar. Spirulínan er lágsmarksunnin, aðeins náttúrulega þurrkað til að mynda fíngert duft. Passar vel í þeyting, jógúrt, drykkinn, yfirnóttu hafra eða chia graut.
LÍFRÆNT VOTTUÐ FROSTÞURRKUÐ ACAÍ BER FRÁ AMAZON REGNSKÓGINUM
Þessi dökkfjólubláu ber sem eiga rætur sínar að rekja til Amazon regnskógarins hafa náð miklum vinsældum síðustu ár. Berin eru þekkt fyrir háan andoxunarstuðul en acaí ber eru talin búa yfir 3x meira magni af andoxunarefnum en til dæmis bláber.
Duftið er fíngert og hentar vel í þeyting, chia graut eða jógúrtina fyrir aukin vítamín og steinefni. Það sem er í uppáhaldi hjá Tropic teyminu eru acaí skálar.
UPPSKRIFT AF ACAÍ SKÁL
1 bolli af blönduðum frosnum berjum
30 ml. plöntuprótein (valkvæmt)
1-2 dl. af plöntumjólk
2 tsk. Tropic acaí duft
1 frosinn banani
Öllu er blandað vel saman í blender eða matvinnsluvél. Þar sem mikið er frosið og áferðin verður ískennd að þá þarf blenderinn eða matvinnsluvélin að vera svolítið öflug. Stundum þarf að bæta við meiri vökva eða stoppa og hræra og byrja aftur, til að ná að blanda öllu almennilega saman 🥣
Fullkomið "toppings" → fersk jarðaber, bananabitar, fersk bláber, hnetusmjör eða möndlusmjör, hempfræ, granóla og kakónibbur 😋