Sýna 28–36 af 94 niðurstöður

Rawnella Spread Organic 200 g.

kr.1.590
Nutella heyrir sögunni til, RAWNELLA er klárlega málið! Þessi súkkulaðismyrja er strangheiðarleg og ó, svo ljúffeng! Inniheldur aðeins þekkt og 100% lífræn hráefni. Smyrjan er tilvalin á ristað brauð, í hafragrautinn, til að dýfa jarðaberjum í, sem topping á ofurskálar eða jógúrt eða í baksturinn. Þú getur jafnvel borðað það eintómt með skeið...
  • 100% plöntumiðað
  • Lífrænt vottað
  • Rjómakennd áferð
  • Handgert í Tékklandi
  • Hráfæði (unnið undir 42° C)
  • Án pálmolíu og án hertar fitu
  • Inniheldur engann unninn sykur
Allar hnetur og möndlur hjá My Raw Joy eru virkjaðar sem þýðir að þær eru látnar liggja í vatni í 15 klst. Þannig eykst næringargildið þeirra og þær verða auðmeltanlegri.  AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Smáralind og Kringlu

Choco Bar Organic with Peppermint 30 g.

kr.790
Þetta 100% vegan og lífræna súkkulaðistykki inniheldur piparmyntu fyllingu sem enginn súkkulaði unnandi má láta framhjá sér fara! Súkkulaðið er handgert af ást hjá fjölskyldufyrirtæki í Tékklandi þar sem aðeins eru notuð hágæða hráefni á borð við hrátt perúskt cacao dauft og lífrænan kókospálmasykur. Það sem einkennir hrátt súkkulaði er að það er matreitt undir 42°C til þess að varðveita næringarefnin sem eru til staðar. Þú finnur engin óþarfa aukaefni í súkkulaðinu frá My Raw Joy þar sem þau leggja áherslu á heiðarleika og gæði AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Smáralind og Kringlu

Cashew Spread Organic 200 g.

kr.1.590
DÝRINDIS KASJÚHNETUSMJÖR SEM ER 100% LÍFRÆNT & INNIHELDUR AÐEINS VIRKJAÐAR HNETUR Þetta kasjúhnetusmjör býr yfir dúnmjúkri áferð og er virkilega bragðgott eitt og sér en einnig afar hentugt í allskonar uppskriftir sem og í þeyting og sem topping. Allar hnetur og möndlur hjá My Raw Joy eru virkjaðar sem þýðir að þær eru látnar liggja í vatni í 15 klst. sem eykur næringargildið þeirra og þær verða auðmeltanlegri. Þessi vara er handgerð af yndislegu fjölskyldufyrirtæki í Tékklandi og flokkast varan sem hráfæði þar sem hún er unnin undir 42° C. Allar vörur frá My Raw Joy eru ávallt án pálmolíu og án hertar fitu. Ásamt því innihalda vörur frá My Raw Joy aldrei unninn sykur. AÐRIR SÖLUSTAÐIR: Hagkaup: Skeifunni, Garðabæ, Akureyri, Smáralind og Kringlu

Fiji Feelin’ Combo

kr.3.664
Fiji Feels sjampó- og hárnæringarstykkið vinna fullkomlega saman við að gera hárið þitt sem líflegast, heilbrigðast og að auki silkimjúkt. Stykkin búa yfir unaðslegum ilm af kryddaðri vanillu og kókos sem fær mann til að hlakka til næsta hárþvottar! Stykkin eru auðvitað vegan og siðferðisleg (cruelty-free) ásamt því að vera 100% plastlaus, pálmolíulaus, án SLS og án paraben. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

Raw Plain Chocolate Organic 90 g.

kr.690
Dýrindis hrátt 67% súkkulaði sem býr þó yfir rjómakenndri áferð og er 100% lífrænt og vegan Þetta súkkulaði er handgert af ást hjá fjölskyldufyrirtæki í Tékklandi þar sem aðeins eru notuð hágæða hráefni á borð við hrátt perúskt cacao dauft og lífrænan kókospálmasykur. Það sem einkennir hrátt súkkulaði er að það er matreitt undir 42°C til þess að varðveita næringarefnin sem eru til staðar. Þú finnur engin óþarfa aukaefni í súkkulaðinu frá My Raw Joy þar sem þau leggja áherslu á heiðarleika og gæði

Eye Cream with Cucumber, Hyaluronic Acid + Coffee 15 ml.

kr.3.290
Augnkrem unnið úr kaffiolíu og þykkni úr hlyntrésbörk Hefur róandi áhrif, endurnærir og dregur úr bólgum í húð Hentugt fyrir allar húðtýpur og má nota undir andlitsfarða Hýalúrónsýra hjálpar til við að þétta og slétta húðina Framleiddur á sjálfbæran máta í Bretlandi ÁFYLLING: fáanleg í EkóHúsið Síðumúla 11   

Maldives Mood Shampoo Bar

kr.1.832
ÖRLÍTIÐ BREYTT & BÆTT FORMÚLA, NÝJAR VÖRUMYNDIR Í VINNSLU! Maldives Mood sjampóstykkið okkar býr yfir vandaðri samsetningu af náttúrulegum hráefnum sem gerir gæfumun og skilur hárið eftir líflegt og með unaðslegum keim af mangó og ananas. Hársápustykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

Fiji Feelin Shampoo Bar

kr.1.832
ÖRLÍTIÐ BREYTT & BÆTT FORMÚLA, NÝJAR VÖRUMYNDIR Í VINNSLU! Fiji Feelin' sjampóstykkið okkar býr yfir vandaðri samsetningu af náttúrulegum hráefnum sem gerir gæfumun og skilur hárið eftir líflegt og með unaðslegum keim af kryddaðri vanillu. Hársápustykkið er auðvitað vegan og siðferðislegt (cruelty-free) eins og allar okkar vörur ásamt því að vera 100% plastlausar, pálmolíulausar, án SLS og án paraben. Passið endilega að hafa hársápustykkið liggjandi þar sem næst að leka af því svo það þorni á milli skipta. Í stöðugri bleytu á það í hættu á að einfaldlega skemmast. Við mælum með því að nota sápudiska.

OrangeFit Jarðaberjaprótein – 25 gr.

kr.245kr.5.490
Virkilega bragðgott jarðaberjaprótein sem inniheldur auðmeltanlegan próteingjafa eða baunaprótein. Þú ættir því ekki að upplifa uppþembu eins og gerist stundum með mysu- og sojaprótein. Ef þú vilt fyrst prófa, þá seljum við þetta prótein í 25 gr. pokum sem samsvarar einum skammti Próteinið inniheldur allar nauðsynlegu amínósýrurnar og er glútenlaust, 100% vegan og án gervisætu. Í HVERJUM SKAMMTI: Kaloríur: 99 Prótein: 19,4 gr. Kolvetni: 0,8 gr. Fita: 2,2 gr.

Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til.